Lífeyrissjóðir í ólgusjó - Krefjandi aðstæður á alþjóðamörkuðum

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða ávöxt­uð­ust um rúm­lega tíu pró­sent á síð­asta ári. En þegar horft er yfir lengra tíma­bil, hefur raun­á­vöxt­unin ekki verið svo góð, að því er fram kemur í skýrslu OECD.

Raun­á­vöxtun íslenskra líf­eyr­is­sjóða hefur aðeins verið 1,7% að með­al­tali á ári und­an­far­inn ára­tug. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD um líf­eyr­is­sjóði þeirra ríkja sem til­heyra sam­tök­unum. Til sam­an­burðar má nefna að þessi ávöxtun var 5,4% hjá dönskum líf­eyr­is­sjóðum og rúm­lega 4% hjá þeim norsku á sama tíma­bili. Af þeim 26 þjóðum sem bornar eru saman í skýrsl­unni eru aðeins fimm fyrir neðan Ísland þegar kemur að raun­á­vöxtun líf­eyr­i­s­jóða þeirra. Meðal þeirra eru Banda­ríkin, Japan og Tékkland en hjá þeim þjóðum er raun­á­vöxt­unin um eða undir 0,5%,

Breskir líf­eyr­is­sjóðir hafa staðið sig best í að ávaxta fé sitt á ára­tugnum fram að árs­lokum 2014 en raun­á­vöxtun þeirra hefur verið 6,5% að með­al­tali á ári. Af öðrum þjóðum má nefna Holland með 4,8% ávöxtun og Kanada með 4,7%. Athygl­is­vert er að á einu línu­rit­anna í skýrsl­unni má sjá að hol­lenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið fór mun verr út úr hrun­inu 2008 en það íslenska. Samt sem áður er hol­lenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið með nær þrefalt betri raun­á­vöxtun en það íslenska.

Síðasta ár í lagi

Skýrsla OECD fjallar að mestu um árið 2014, það er nær frá des­em­ber­lokum 2013 til þar­síð­ustu ára­móta. Á því ári eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir aðeins að rétta úr kútnum og eru fyrir ofan með­al­talið þegar kemur að raun­á­vöxtun en hún reynd­ist 7,2% hjá þeim íslensku. Einfalt með­al­tal er 6,8%, og svo­kallað vegið með­al­tal (weighted average) er 5%, meðal þjóða OECD. Danskir líf­eyr­is­sjóðir eru með lang­bestu ávöxt­un­ina og raunar er hún ævin­týra­leg eða 16,7% á umræddu ári. Næst á eftir koma Hol­lend­ingar með álíka ávöxtun eða rúm­lega 15% og Belgar eru í þriðja sæti með 10,7%. Í neðstu sæt­unum eru Banda­ríkin, Japan og Tékkland með raun­á­vöxtun upp á 1,2 til 3,4%.

Erfitt umhverfi

Í for­mál­anum að skýrsl­unni er farið almennum orðum um þá stöðu sem líf­eyr­is­sjóðir þjóð­anna innan OECD þurfa að glíma við í dag þegar kemur að ávöxtun á fjár­munum þeirra. Sú staða er væg­ast sagt erfið. Vest­rænar þjóðir búa nú almenn við lélegan hag­vöxt, litla verð­bólgu og lága vexti. Þetta er krefj­andi staða fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina og býður þeirri hættu heim, að mati skýrslu­höf­una, að sjóð­irnir leiti í auknum mæli í áhættu­sam­ari fjár­fest­ingar en rík­is­skulda­bréf og aðra álíka örugga papp­íra.

Fjár­fest­ing­ar­geta líf­eyr­is­sjóð­anna innan OECD er gríð­ar­leg þegar á heild­ina er litið. Sam­an­lagðar eignir þeirra fóru yfir 25 trilljón doll­ara markið í fyrsta sinn í sög­unni á síð­asta ári. Þessar eignir eru að stærstum hluta bundnar í skulda- og verð­bréfum, hlutafé og inn­lánum eða lausafé. Af þeim eru 51,3% í skulda- og verð­bréfum, 23,8% í hlutafé og 9,6% í inn­eignum eða lausafé. Það sem eftir stendur eru fjár­fest­ingar af ýmsum toga eins og t.d. einka­hluta­fé­lög í Brasilíu, land­ar­eignir og bygg­ingar í Kanada, afleiður í Bret­landi og ýmsar eignir í Banda­ríkj­unum, að því er segir í skýrsl­unni.

Mikilvægi lífeyrissjóða mikið á Íslandi

Fram kemur í skýrsl­unni að mik­il­vægi líf­eyr­is­sjóða í sam­hengi við hlut­fall af lands­fram­leiðslu sé einn mest á Íslandi af öllum þjóðum innan OECD. Aðeins Hollandi skorar hærra hvað þetta varðar á sam­an­burð­ar­lista yfir þjóð­irnar. Umfang líf­eyr­is­sjóða í Hollandi er rúm­lega 159% af lands­fram­leiðslu lands­ins. Á Íslandi er umfangið 146,8% og Sviss vermir svo þriðja sætið með umfang upp á 120,3%.

Hvað hin Norð­ur­löndin varðar kemur fram að umfangið í Finn­landi er 51% og í Danmörku 48,6% en í Svíþjóð og Noregi aðeins í kringum 9% hjá hvoru landi.

Neðst á þessum lista eru lönd á borð við Grikk­land og Frakk­land með umfang á um eða undir 0,6% en í þeim löndum sér hið opin­bera nær alfarið um líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur til þegna sinna.

Höftin hamla

Í fyrr­greindum sam­an­burði verður að geta þess að laga­legt umhverfi íslenskra líf­eyr­is­sjóða tak­mark­aði getu þeirra til erlendra fjár­fest­inga fyrir hrunið 2008. Eftir hrunið hafa þeir svo verið bundnir innan gjald­eyr­is­hafta. Í fyrra var hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­ann þannig aðeins 22% af heild­ar­eignum þeirra. Þetta hlut­fall fór hæst í tæp 30% fyrir hrunið 2008. Í Danmörku er hlut­fall erlendra eigna þar­lendra líf­eyr­ir­sjóða rúm­lega 31% og í Noregi er það tæp 29%. (Hér er norski olíu­sjóð­ur­inn ekki tal­inn með en yfir 90% allra eigna hans eru erlendar.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár