Brynhildur vill verða stjórnarformaður - fimm í framboði

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, gjald­keri Bjartar fram­tíðar og vara­þing­maður, hefur skilað inn fram­boði til stjórn­ar­for­mennsku í flokknum. Bryn­hildur er þar með fimmti fram­bjóð­and­inn í emb­ættið, en áður höfðu þau Guðlaug Krist­jáns­dóttir, Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, Matthías Freyr Matth­í­as­son og Preben Pét­urs­son boðið sig fram. Fram­boðs­frestur til emb­ætta rennur út áður en árs­fundur flokks­ins hefst á morgun.

Bryn­hildur bauð sig einnig fram til stjórn­ar­for­manns á auka­árs­fundi flokks­ins í jan­úar síð­ast­liðnum. Þá tap­aði hún fyrir Margréti Mart­eins­dóttur, sem nú lætur af störfum sem stjórn­ar­for­maður flokks­ins eftir sjö mán­uði í starfi.

Aðeins einn hefur skilað form­legu fram­boði til emb­ættis for­manns Bjartar fram­tíðar, en það er Óttarr Proppé. Sem fyrr segir gætu þó bæst við fram­boð enda rennur fram­boðs­frestur ekki út fyrr en fund­ur­inn hefst.

Óttar til­kynnti um fram­boð sitt á Facebook fyrir viku síðan og sagð­ist þá hafa óbilandi trölla­trú á erindi flokks­ins. „Það er þörf og eft­ir­spurn eftir frjáls­lyndu, grænu og mann­rétt­indasinn­uðu stjórn­mála­afli. Björt fram­tíð leggur áherslu á póli­tíska sið­bót og hefur stað­fasta sýn á lang­tíma­hugsun og það að almanna­hags­munir standi framar sér­hags­munum. Ég vil gera mitt í þess­ari bar­áttu.“

Áður hafði Guðlaug Krist­jáns­dóttir, sem er for­seti bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði, lýst yfir að hún vildi vera í for­ystu flokks­ins og bauð sig fram í bæði for­manns­emb­ættin. Hún hefur nú skilað inn form­legu fram­boði aðeins í emb­ætti stjórn­ar­for­manns.

Öll for­ysta Bjartar fram­tíðar, for­maður, stjórn­ar­for­maður og þing­flokks­for­maður, hefur ákveðið að hætta þeim störfum. Guð­mundur Stein­gríms­son for­maður til­kynnti að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram á nýjan leik í ágúst, eftir að gagn­rýni á hans störf og flokk­inn kom fram. Róbert Marshall þing­flokks­for­maður ákvað á sama tíma að hætta sem þing­flokks­for­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár