Fréttatíminn: Tekjulaus miðill sem unnin er í sjálfboðavinnu huldumanna

Í byrjun síð­asta árs keypti maður lén og Facebook-síðu úr þrota­búi Frétta­tím­ans og end­ur­skráði mið­il­inn hjá fjöl­miðla­nefnd. Síðan þá hafa birst á miðl­inum fjöld­inn allur af fréttum sem eng­inn er skrif­aður fyrir.

Frétta­tím­inn er, sam­kvæmt Facebook-síðu sinni, óháður mið­ill. Hann er líka fjöl­mið­ill sem er unn­inn í sjálf­boða­vinnu án eig­in­legra starfs­manna. Þar vinna hvorki rit­stjóri né blaða­menn þrátt fyrir að um skráðan fjöl­miðil sé að ræða. Eini kostn­að­ur­inn sem fylgir rekstri mið­ils­ins er árlegur kostn­aður vegna end­ur­nýj­unar á léni hans. Tekjur Frétta­tím­ans eru engar.

Þetta segir Guð­laugur Her­manns­son, eig­andi mið­ils­ins. Í sam­tali við Kjarnann stað­festi Guð­laugur að hann hefði keypt lén Frétta­tím­ans og Facebook-síðu hans út úr þrota­búi Morg­un­dags, fyrr­ver­andi útgáfu­fé­lags þess, og síðan í upp­hafi árs 2018 hafi hann, í sam­ein­ingu við kollega, birt efni á vefnum. „Þetta er lít­ill fjöl­mið­ill bara í gamni“.

Allt efni sem birt­ist á vef Frétta­tím­ans er birt undir höf­und­inum „rit­stjórn Frétta­tímanns“. Guð­laugur vill ekki upp­lýsa hverjir skrifa það efni. Hann segir að vel hafi verið tekið í þetta fram­tak, sér­stak­lega að und­an­förnu í tengslum við umræður um þriðja orku­pakk­ann.

Aðspurður um hver bæri ábyrgð á miðl­inum, í ljósi þess að eng­inn sé skráður höf­undur frétta, sagði Guð­laugur að það væri hann sjálfur.

Er sæbjúgnaútflytjandi

Frétta­tím­inn er rek­inn af félagi sem heitir G. Her­manns­son ehf., félagið sem hefur þann skil­greinda til­gang sam­kvæmt skrán­ingu að stunda heild­verslun með fisk og fiskaf­urðir. G. Her­manns­son hét áður Select Seafood og árið 2016 var engin starf­semi í félag­inu. Árið 2017 var hún í lág­marki en tekjur þess á því ári námu 16,3 millj­ónum króna.

Í fyrra tók starf­semi G. Her­manns­sonar ehf. hins vegar kipp og tekjur þess marg­föld­uð­ust. Á árinu 2108 námu þær 475,5 millj­ónum króna og félagið skil­aði smá­vægi­legum hagn­aði á rekstri sínum. Í árs­reikn­ingi G. Her­manns­sonar ehf. kemur fram að félagið hafi selt „fiskaf­urðir til erlendra kaup­enda á síð­ari hluta árs­ins 2017 og allt árið 2018. Umfangið jókst mikið árið 2018 og gekk rekst­ur­inn sam­kvæmt áætlun.“

Engin sund­ur­liðun er gerð á þeirri starf­semi sem G. Her­manns­son ehf. stund­aði á árinu 2018 í árs­reikn­ingnum. Guð­laugur segir í sam­tali við Kjarnann að G. Her­manns­son sé stærsti útflytj­andi á sæbjúgum á Íslandi og að tekju­aukn­ing félags­ins sé vegna þeirrar starf­semi. Engin kostn­aður né tekjur sé af rekstri Frétta­tím­ans. Eina aug­lýs­ingin sem birt­ist á vef mið­ils­ins er frá fyr­ir­tæk­inu Glæsigeymslur.is.

Þarf ekki að aðgreina rekstur fjölmiðils frá öðru

Kjarninn hafði sam­band við fjöl­miðla­nefnd, en allir fjöl­miðlar lands­ins þurfa sam­kvæmt lögum að vera skráðir hjá stofn­un­inni, og leit­aði svara við því hvort að fjöl­miðlar mættu reka sig í félagi með bland­aðan rekstur. Hvort til að mynda fisk­sala og fjöl­miðla­rekstur gæti farið saman í félagi með sömu kenni­tölu án þess að fjöl­miðla­nefnd kall­aði sér­stak­lega eftir rekstar­upp­lýs­ingum um fjöl­miðla­hlut­ann. Þar var bent á að sam­kvæmt fjöl­miðla­lögum séu sér­stakar skyldur lagðar á leyfi­skylda fjöl­miðla í þessum efnum. í 19. grein þeirra laga segir: „Rekstri, bók­haldi og fjár­reiðum vegna hinnar leyf­is­skyldu starf­semi skal haldið aðgreindum frá öðrum rekstri og fjár­reiðum leyf­is­hafa. Fjöl­miðla­nefnd getur kraf­ist upp­lýs­inga úr bók­haldi og reikn­ingum leyf­is­hafa, ef þess er talin þörf, um hvort laga- eða reglu­gerð­ar­á­kvæði eða leyf­is­skil­málar hafi verið brotnir.“

Leyf­is­skyldir miðlar eru hins vegar ein­ungis þeir sem miðla hljóð og mynd­máli og þurfa að sækja um leyfi til útsend­inga. Sú skil­grein­ing nær því bara til sjón­varps- og útvarps­miðla. Prent- og net­miðlar eru ekki leyf­is­skyldir, heldur ein­ungis skrán­ing­ar­skyldir. Slíkir miðlar þurfa ekki að aðgreina rekstur sinn sér­stak­lega. Því er ekk­ert ólög­legt við það að rekstr­ar­fé­lag Frétta­tím­ans sýni ekki hverjar tekjur, gjöld eða lán­veit­ingar þess séu vegna fjöl­miðla­starf­semi.

Fjöl­miðla­nefnd óskar árlega eftir skýrslu­gjöf fjöl­miðla þar sem meðal ann­ars er farið er fram á að allir skráðir fjöl­miðlar upp­lýsi stofn­un­ina um fjöl­miðla­rekstur sinn og hvers eðlis tekjur þeirra séu. Ekki er opin­bert hversu stórt hlut­fall skráðra fjöl­miðla skilar þess­ari skýrslu en fyrir liggur að mik­ill minni­hluti fjöl­miðla hefur gert það und­an­farin ár. Stjórn­valds­sektum hefur ekki verið beitt gagn­vart þeim sem ekki skila inn skýrsl­unni.

Var umsvifamikill fjölmiðill

Frétta­tím­inn var upp­haf­lega stofn­aður sem íslenskt frétta­blað sem kom út einu sinni í viku og var dreift frítt á föstu­dögum í 82 þús­und ein­tökum. Fyrsta ein­tak blaðs­ins kom út 1. októ­ber 2010.

Í lok nóv­em­ber 2015 keypti hópur fjár­festa undir stjórn Gunnars Smára Egils­sonar blaðið. Aðrir fjár­festar voru Árni Hauksson, Hall­björn Karlsson og Sigurður Gísli Pálmason. Árni og Hall­björn eru á meðal eig­enda Kjarnans í dag eftir að hafa keypt 4,67 pró­sent hlut í honum í sumar.

Gunnar Smári Egilsson, landskunnur fjölmiðlamaður, leiddi hóp sem keypti Fréttatímann 2015. Hann hvarf frá miðlinum snemma árs 2017 og tengist þeirri útgáfu hans sem nú er í loftinu ekki á nokkurn hátt.
Gunnar Smári Egilsson, lands­kunnur fjöl­miðla­maður, leiddi hóp sem keypti Frétta­tím­ann 2015. Hann hvarf frá miðl­inum snemma árs 2017 og teng­ist þeirri útgáfu hans sem nú er í loft­inu ekki á nokkurn hátt.

Útgáfu­tíðni blaðs­ins var aukin og margt reynslu­mikið starfs­fólk ráðið. Rekst­ur­inn gekk hins vegar illa og í febr­úar 2017 var greint var frá því að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing á frí­blað­inu Frétta­tím­anum stæði yfir.

Í byrjun apríl var ljóst að það stefndi í óefni. Gunnar Smári til­kynnti þá að hann væri hættur afskiptum af útgáf­unni. Starfs­menn höfðu á þessum tíma ekki fengið greidd laun og erf­ið­lega gekk að fá nokkrar upp­lýs­ingar frá stjórn­endum um hvort að slíkt stæði til.

Frétta­tím­inn kom út í síð­asta sinn föstu­dag­inn 7. apríl 2017. Skömmu áður hafði verið greint frá því að blaðið hefði tapað 151 millj­ónum króna á árinu 2016. Tapið hafði tífald­ast milli ára.

Útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans var tekið til gjald­þrota­skipta í júlí og kröfur í búið námu 236 millj­ónum króna.

Keypti úr þrotabúi

Í jan­úar 2018 fór vefur Frétta­tím­ans skyndi­lega aftur í loftið.

Þann 11. jan­úar 2018 var Frétta­tím­inn.is skráður sem fjöl­mið­ill hjá fjöl­miðla­nefnd. G. Her­manns­son ehf., sem er skráður eig­andi hans, hafði eign­ast lénið www.frettatiminn.is og Facebook-síðu mið­ils­ins, sem hefur 23.802 fylgj­endur. Því er ljóst að sá sem stýrir miðl­inum getur náð til að miðla efni sínu mjög víða um íslenskt staf­rænt sam­fé­lag.

Í skrán­ingu á vef fjöl­miðla­nefnd segir að rit­stjórn­ar­stefna Frétta­tím­ans sé „almennar fréttir og afþrey­ing­ar­efni, eins og tíðkast hjá öðrum vef­miðlum á inter­net­inu.“

Ekkert annað kemur fram utan þess að Guð­laugur Her­manns­son sé fyr­ir­svars- og ábyrgð­ar­maður. Hann seg­ist sjálfur bera ábyrgð á efn­inu sem birt­ist á vefnum en að vefnum sé haldið úti í sam­starfi við kollega. Guð­laugur vill ekki gefa upp hver eða hverjir það séu.

„Ritstjórn Fréttatímanns“

Síðan að hinn nýi Frétta­tími fór í loftið hafa verið birt mörg efni þar dag­lega, nú í á annað ár. Margt sem þar birt­ist er unnið með hætti sem stenst illa grund­vall­ar­reglur blaða­mennsku, t.d. hvað varðar heim­ildar­öflun og fram­setn­ingu. Auk þess er eng­inn blaða­maður skráður á vefnum og allt efni sem þar birt­ist skráð sem skrifað af „Rit­stjórn Frétta­tímanns“.

Það efni sem Frétta­tím­inn birtir er margs­konar. Margt af því er unnið upp úr frétta­til­kynn­ingum sem sent er á alla íslenska miðla dag­lega. Sumt snýst um veð­ur­far. En það efni sem tekur mest pláss, og vekur mesta athygli, snýst um stjórn­mál sam­tím­ans og er oft sett fram sem opnar spurn­ingar í tengslum við mál sem eru ofar­lega á baugi á hverjum tíma.

Guð­laugur segir að það hafi verið tekið vel í umfjöllun Frétta­tím­ans frá því að hann hóf að birta efni í byrjun árs í fyrra. Það eigi sér­stak­lega við í tengslum við umræður um þriðja orku­pakk­ann. Þar hefur mið­ill­inn enda farið mik­inn.

Ráðherra hótað lífláti

Síðustu daga hafa efni Frétta­tím­ans verið mjög áber­andi. Mesta athygli hafa vakið fréttir sem tengj­ast þriðja orku­pakk­anum eða stjórn­mála­mönnum sem hafa tekið virkan þátt í umræðum um hann. Þannig birt­ist frétt á fimmtu­dag undir fyr­ir­sögn­inni: „Skilar orku­pakki 3, 625 millj­ónum í vasa utan­rík­is­ráð­herra?“ Efn­is­lega snýst frétt­inn um að upp­reikna mögu­legar tekjur af virkjun sem hefur ekki verið byggð miðað við að raf­magns­verð hækki og hverju það gæti skilað Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra í vas­ann vegna eign­ar­halds hans og eig­in­konu hans á jörð sem er á áhrifa­svæði Búlands­virkj­unar og Hólmsár­virkj­unar.

Guð­laugur hafði áður svarað opin­ber­lega fyrir slíkar ávirð­ingar, í apríl 2019, þegar þær voru settar fram á Eyjunni, og þá greint frá því að þetta væri skóg­rækt­ar­jörð sem hann og eig­in­kona hans hefðu keypt af tengda­for­eldrum hans, en þau hefðu átt hana frá 1982. „Hvorki ég né fjöl­skylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkj­un. Ef svo ólík­lega færi að hún yrði að veru­leika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar nei­kvæð. Von­andi eru allar hug­myndir um þessa virkjun út af borð­inu um alla fram­tíð. Um það erum við fjöl­skyldan öll sam­mála[...]Dylgjur sem fram koma í ofan­greindri umfjöllun Eyj­unnar bera vitni um mál­efna­fá­tækt þeirra sem hafa ákveðið að berj­ast gegn þriðja orku­pakk­anum með öðru en rök­um. Von­andi verður hægt að ræða þetta mál með mál­efna­legri hætti í fram­tíð­inni.“

Í ummælum við færslu um frétt­ina á Facebook var Guðlaugi Þór meðal ann­ars hótað líf­láti vegna þess sem fram kom í henni og hefur verið gripið til sér­stakra örygg­is­ráð­staf­ana vegna máls­ins. Hótunin er auk þess komin í far­veg hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Guð­laugur Her­manns­son segir að hann eða Frétta­tím­inn geti ekki borið ábyrgð á ummælum sem fólk lætur falla um fréttir Frétta­tím­ans á Facebook.

Hér er orkupakkinn, um orkupakkann...

Annað dæmi er frétt með fyr­ir­sögn­inni: „Sæstrengs­verk­efni milli Íslands og Bret­lands er til­búið og full­fjár­magnað – Allt klappað og klárt“. Henni hefur verið dreift aftur og aftur á Facebook-síðu Frétta­tím­ans.

Í raun er ekki um frétt að ræða heldur ein­hvers­konar pistil eftir Arnhildi Ásdísi Kolbeins, sem titluð er fjár­mála­stjóri og lög­fræði­nemi. Arn­hildur var á lista Mið­flokks­ins í Hafn­ar­firði í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Pistill­inn byggir á álykt­unum vegna verk­efn­is­ins Atlantic Superconnection sem margir hverjar hafa verið ítar­lega hraktar opin­ber­lega í fjöl­miðlum, meðal ann­ars af for­svars­mönnum Atlantic Superconnection og íslenskum ráða­mönnum.

Í gær birt­ist frétt þar sem fyr­ir­sögn var enn og aftur í spurn­ing­ar­formi: „Er for­seti van­hæfur?“. Í umfjöll­un­inni er því haldið fram að frétt Frétta­tím­ans um Guðlaug Þór, sem hann fékk lífsláts­hótun í kjöl­farið á, væri rétt og að „hver fylgd­ar­sveinn ráð­herra hefur síðan sprottið fram og hrópað úlfur úlfur og borið fyrir sig að um rang­færslur sé að ræða í frétt­inni.“ Í kjöl­farið er lagt upp frá því að Frétta­blaðið hafi tekið þátt í „klúð­urs­legri vörn“ fyrir utan­rík­is­ráð­herr­ann, en einn eig­anda þess er fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son.

Þar sem Helgi hefði gefið sam­tals 800 þús­und krónur til fram­boðs Guðna Th. Jóhann­es­sonar í gegnum ann­ars vegar félag sitt og hins vegar í eigin nafni, þá gæti for­set­inn verið van­hæfur til að skrifa undir lög sem tengj­ast inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans.

Fréttin er þétt­setin af rang­færslum og hálf­sann­leik, meðal ann­ars um hverjir eig­endur félaga eru sem gáfu til fram­boðs Guðna. Þar er Ásgeir Mar­geirs­son, frá­far­andi for­stjóri HS Orku, meðal ann­ars kall­aður við­skipta­fé­lagi eig­in­konu Guðlaugs Þórs, sem á hlut í Bláa lón­inu. HS Orka á ekki hlut í Bláa lón­inu og Ásgeir á heldur ekki hlut í HS Orku. Alls námu fjár­fram­lög til fram­boðs Guðna Th. 25 millj­ónum króna og fram­lög Helga, sem eru í sam­ræmi við lög um hámark fram­laga til fram­boða og greint var frá opin­ber­lega ásamt öllum fram­lögum yfir 200 þús­und krónum, því um þrjú pró­sent af heild­ar­fram­lögum til fram­boðs­ins.

Miðflokkurinn áberandi

Þá eru fréttir af fram­göngu Mið­flokks­ins, með jákvæðum for­merkjum, mjög áber­andi á vef Frétta­tím­ans. Á síð­ast­lið­inni rúmri viku hefur vef­ur­inn meðal ann­ars end­ur­birt aðsenda grein eftir Gunnar Braga Sveins­son, vara­for­mann Mið­flokks­ins, sem birt­ist fyrst í Morg­un­blað­inu og bar heitið „Að gyrða sig í brók sjálf­stæð­is­menn“, og birt fréttir af fundum sem Mið­flokk­ur­inn hélt um þriðja Orku­pakk­ann ann­ars vegar í Keflavík og hins vegar á Selfossi þar sem áhersla var lögð á hversu fjöl­mennir fund­irnir hefðu verið.

Þá var birt frétt með fyr­ir­sögn­inni: „Mið­flokk­ur­inn leið­réttir ósann­indi for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herra“ þar sem full­yrt er að að for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra hafi sagt ósatt í ræðum sínum í umræðum um þriðja orku­pakk­ann. Í þeirri frétt sagði meðal ann­ars að mynda­vélar sem taka upp þing­ræður, sem streymt er beint á net­inu, taki „því miður“ ekki myndir af salnum þar sem þing­menn sitji. Þar hefði mátt „sjá fliss og grettur fylgj­enda þriðja orku pakkanns“ þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hélt 46. ræðu sína um orku­pakk­ann. Sú setn­ing gefur til kynna að höf­undur frétt­ar­innar hafi verið staddur í þing­sal en ekki verið að horfa á ræð­urnar í gegnum streymi Alþingis.

Loks var birt frétt um „ágætis við­tal“ við Sigmund Davíð á Sky sjón­varps­stöð­inni í vik­unni sem leiddi svo inn í skrif Sig­mundar Davíðs um þriðja orku­pakk­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár