Tíðinda að vænta af orkusamningi Alcoa 2028

Samn­ing­ur­inn sem er á milli Lands­virkj­unar og Alcoa varðar almenn­ing miklu. Ef samið er upp á nýtt gæti hagn­aður Lands­virkj­unar auk­ist um marga millj­arða.

Álver Alcoa á Reyð­ar­firði er stærsti raf­orku­kaup­and­inn á Íslandi. Vís­bend­ingar eru um að Lands­virkjun og Alcoa muni end­ur­semja um raf­orku­verðið til álvers­ins ekki síðar en 2028. Þá kann orku­verðið til Fjarða­áls sem sagt að hækka veru­lega. Sú verð­hækkun ein og sér gæti aukið hagnað Lands­virkj­unar um 8-10 millj­arða króna. Forsenda verð­hækk­un­ar­innar er sú breyt­ing sem er að verða – og er þegar hafin – á íslenskum raf­orku­mark­aði. Hér verður fjallað um þetta tæki­færi.

Stærsti raforkusamningur á Íslandi

Samn­ingur Lands­virkj­unar og Alcoa vegna álvers Fjarða­áls á Reyð­ar­firði er langstærsti raf­orku­samn­ingur á Íslandi. Þessi samn­ingur nær til um þriðj­ungs af allri raf­orku sem Lands­virkjun fram­leiðir og um fjórð­ungs allrar raf­roku sem fram­leidd er á Íslandi. Umræddur samn­ingur hefur þess vegna grund­valla­r­á­hrif á arð­semi Lands­virkj­unar og líka mikil áhrif á meðal-arð­semi í raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi.

[links]Álverið á Reyð­ar­firði tók til starfa um mitt ár 2007 og náði fullum afköstum nokkru síðar. Raf­orku­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður 2003, en gild­is­tíma­bil hans er 40 ár frá umsömdum föstum afhend­ing­ar­degi orkunnar. Hann rennur því út um 2048. En þrátt fyrir að samn­ing­ur­inn gildi til árs­ins 2048 er mögu­legt að Lands­virkjun eigi góða von um að raf­orku­verðið hækki mjög veru­lega tutt­ugu árum fyrr, þ.e. strax árið 2028.

Lágt raforkuverð en endurskoðunarákvæði verður virkt um 2028

Þó svo umræddur raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar og Alcoa hafi ekki verið birtur opin­ber­lega er unnt að reikna orku­verðið út af tölu­verðri nákvæmni. Þess vegna er t.a.m. vitað að raf­orku­verðið skv. þessum samn­ingi er mjög lágt í alþjóð­legu sam­hengi. Verðið er reyndar svo lágt og að Fjarðaál er að greiða eitt lægsta raf­orku­verðið af öllum álverum heims­ins, en þau eru á þriðja hund­rað tals­ins.

Þetta lága orku­verð til Fjarða­áls heldur aftur af arð­semi Lands­virkj­unar, enda býr fyr­ir­tækið við mik­inn fjár­magns­kostnað vegna Kára­hnjúka­virkj­unar. Lang­tíma­skuldir Lands­virkj­unar eru hátt í tveir millj­arðar USD og stór hluti þeirra skulda er vegna Kára­hnjúka­virkj­unar. Sem einmitt var reist vegna álvers Alcoa og er stærsta vatns­afls­virkjun í Evrópu utan Rúss­lands.

Vitað er að í orku­samn­ingi Lands­virkj­unar og Alcoa segir að á miðjum samn­ings­tím­anum, þ.e. þegar líður að 2028, skuli aðilar taka raf­orku­verðið til end­ur­skoð­unar. Þetta kemur t.a.m. fram í skjölum sem sjá má á vef Alþingis. Stóra spurn­ingin er bara hversu mikið svig­rúm þetta samn­ings­á­kvæði veitir til að hækka raf­orku­verðið þarna á miðju samn­ings­tíma­bil­inu.

[adspot]

Tækifæri 2028 til verulegrar tekjuaukningar Landsvirkjunar

Fram til þessa hafa flestir sem hafa tjáð sig um þennan raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar og Alcoa talið ólík­legt að end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði samn­ings­ins um raf­orku­verðið opni á veru­legar breyt­ingar á verð­inu. Sá sem þetta skrifar hefur einnig lengst af verið á þess­ari skoðun. En vegna mik­il­vægra breyt­inga sem eru að verða á íslenska raf­orku­mark­aðnum er senni­lega til­efni til að end­ur­meta slíkar álykt­anir.

Það er sem sagt mögu­legt að Lands­virkjun geti náð fram veru­legri hækkun á raf­orku­verði til Fjarða­áls strax árið 2028. Þar með gæti árlegur hagn­aður Lands­virkj­unar auk­ist mjög. Slíkt yrði mik­il­vægur þáttur í því að Lands­virkjun geti farið að skila við­un­andi og jafn­vel góðri arð­semi.

Þróun raforkuverðs gæti réttlætt mikla verðhækkun

Í skjölum Alþingis, þar sem á sínum tíma var fjallað um raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar og Alcoa, kemur fram að þegar 18 ár verða liðin frá upp­hafi orku­af­hend­ingar, skuli samn­ings­að­il­arnir „taka upp samn­ings­við­ræður um end­ur­skoðað orku­verð með hlið­sjón af aðstæðum á þeim tíma“. Og umsamið nýtt raf­orku­verð skal þá „ gilda hin síð­ari 20 ár samn­ings­tím­ans“.

Ekki er aug­ljóst hversu mikið svig­rúm þarna skap­ast til að hækka raf­orku­verðið til Fjarða­áls strax árið 2028. Af orða­lag­inu „með hlið­sjón af aðstæðum á þeim tíma“ má þó ráða, að þarna skipti máli hvernig raf­orku­mark­að­ur­inn þró­ast á tíma­bil­inu frá því samn­ing­ur­inn var stað­festur árið 2003 og fram til 2028. Í því ljósi er mögu­legt og jafn­vel lík­legt að raf­orku­verðið til Fjarða­áls kunni að hækka um allt að eða jafn­vel meira en 100% - ekki síðar en 2028.

Slíkt myndi að sjálf­sögðu hafa geysi­lega jákvæð áhrif á hagnað og arð­semi Lands­virkj­unar. Verð­hækkun af þessu tagi yrði ein mik­il­væg­asta for­sendan að baki marg­földum á arð­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins til eig­anda síns; íslenska rík­is­ins. Að þetta gangi eftir er þó háð ýmsum fyr­ir­vörum og t.a.m. myndi svo mikil hækkun kannski ekki ganga eftir ef álverð verður mjög lágt.

Raforkumarkaðurinn er að breytast

Á síð­ustu árum hefur raf­orku­verð til nýrra iðn­aðar- og stór­iðju­verk­efna, svo og vegna end­ur­nýj­aðra orku­samn­inga eldri stór­iðju hér, hækkað veru­lega. Þetta er nokkuð skýr vís­bend­ing um breyttan íslenskan raf­orku­markað. Og sá mark­aður mun að öllum lík­indum breyt­ast ennþá meira á kom­andi árum, eins og skýrt kom fram á nýlegum morg­un­fundi á vegum Lands­virkj­unar.

Til að skilja breyt­ing­una er gott að hafa í huga að á liðnu ári (2016) var með­al­verð Lands­virkj­unar til stórra iðn­fyr­ir­tækja ein­ungis um 24 USD/MWst. Flutn­ings­kostn­aður er inni­fal­inn í þessu verði. Sjálft raf­orku­verðið til iðn­fyr­ir­tækj­anna, þ.e. þegar flutn­ings­kostn­aður hefur verið dreg­inn frá, var því að með­al­tali nokkuð undir 20 USD/MWst. Raf­orku­verðið til Fjarða­áls var svo miklu lægra eða nálægt 15 USD/MWst. Þá er átt við með­al­verð til álvers­ins yfir árið 2016 og flutn­ings­kostn­að­ur­inn ekki tal­inn með.

Á síð­ustu árum og miss­erum hefur raf­orku­verð í nýjum og end­ur­nýj­uðum samn­ingum við stórnot­endur raf­orku aftur á móti verið miklu hærra, eða nálægt 30-35 USD/MWst (flutn­ings­kostn­aður ekki tal­inn með). Þannig slagar t.d. raf­orku­verðið í nýlegum samn­ingi Lands­virkj­unar við RTA/ÍSAL, vegna álvers­ins í Straums­vík, nú hátt í 30 USD/MWst (verð án flutn­ings­kostn­aðar). Og skv. sam­tölum grein­ar­höf­undar við fólk í orku­geir­anum, er algengt byrj­un­ar­verð á raf­orku í nýlegum samn­ingum við nýja stórnot­endur hér nálægt 35 USD/MWst. Sem er ansið mikið hærra verð en „gamla“ verðið.

Nýja almenna viðmiðunin er að lágmarki 35 USD/MWst

Umrædd ný við­miðun um raf­orku­verð hér er ekki algild. T.a.m. er vafi um að umsamið verð við öll kís­il­verin hér nái umræddri fjár­hæð. Engu að síður eru sterkar vís­bend­ingar um að algengt byrj­un­ar­verð til flestra stórnot­enda sé nálægt 35 USD/MWst.

Verðið fer svo hækk­andi þegar líður á starf­semi hinna nýju fyr­ir­tækja. Og stefnir þá lík­lega í átt að 40 USD/MWs og jafn­vel rúm­lega það (enda aug­lýsir Lands­virkjun verð í nýjum samn­ingum upp á 43 USD/MWst). Við upp­hæð­ina bæt­ist svo flutn­ings­kostn­aður Lands­nets. Af þessum sökum má tala um að þessa dag­ana sé við­mið­un­ar­verð raf­orku í nýjum samn­ingum til stórra not­enda senni­lega almennt að lág­marki nálægt 35 USD/MWs - og hækki þegar líður á samn­ings­tím­ann.

Nýjar virkjanir kalla á hærra raforkuverð

Hækkandi raf­orku­verð er ekki bara ein­hver hug­detta hjá Lands­virkjun, heldur kemur hærra verð til af ýmsum mark­aðs­drifnum ástæðum. Svo sem þeirri að hér er raf­orku­mark­að­ur­inn orð­inn sam­keppn­is­mark­aður og þar með hefur dregið úr póli­tískum áhrifum á raf­orku­verð. Önnur mik­il­væg ástæða hækk­andi raf­orku­verðs er sú að búið er að virkja flesta ódýr­ustu kost­ina í vatns­afli og nýjar virkj­anir því að verða sífellt dýr­ari m.v. upp­sett afl og fram­leiðslu. Þetta þýðir að ekki er raun­hæft að unnt verði að fjár­magna hér nýjar virkj­anir nema raf­orku­verð hækki umtals­vert.

Þetta sést vel þegar litið er til virkj­un­ar­kosta í nýt­ing­ar­flokki Ramma­á­ætl­unar. Þar verða fæstar virkj­an­anna reistar nema raf­orku­verðið verði a.m.k. á bil­inu 35-45 USD/MWst. Þetta er mik­il­vægur drif­kraftur í því að raf­orku­verð hér fari hækk­andi; að lág­markið í nýjum samn­ingum sé nálægt 35 USD/MWst og að almennt stefni verð til iðn­fyr­ir­tækja í nýlegum samn­ingum í um 40 USD/MWst. Og jafn­vel eitt­hvað hærra. Til aðeins lengri fram­tíðar má hugsa sér að tíma­bundið jafn­vægi myndi nást nálægt 45 USD/MWst. Enda yrði við þær aðstæður unnt að fjár­magna mikið nýtt afl og nýta sam­spil vatns­afls og vinda­fls í veru­legum mæli með við­un­andi arð­semi.

Margskonar áhrifaþættir þrýsta raforkuverði á Íslandi upp

Þróunin er sem sagt sú að eftir um ára­tug er lík­legt að raf­orku­verð hér til almenns iðn­aðar verði í flestum til­vikum orðið a.m.k. 35 USD/MWst (að núvirði). Svo bæt­ist flutn­ings­kostn­að­ur­inn við, þ.a. að algengt orku­verð til iðn­aðar ásamt flutn­ingi verður þá vænt­an­lega nokkuð yfir 40 USD/MWst. Verð til almennra not­enda verður svo senni­lega eitt­hvað hærra og stefnir í eða yfir 40 USD/MWst án flutn­ings. Með auk­inni eft­ir­spurn eftir raf­orku myndi verðið svo hækka meira.

Þessar tölur eru vissu­lega óvissar, enda eru margir þættir sem geta haft áhrif á þróun orku­verðs. Verðið gæti orðið lægra og það gæti orðið hærra! Miðað við aðstæð­urnar í dag eru umrædd verð senni­lega fremur van­mat en ofmat, enda fer Íslend­ingum fjölg­andi og mögu­lega mun ferða­mönnum einnig fjölga tals­vert áfram. Þetta merkir aukna eft­ir­spurn eftir raf­orku, sem mun vænt­an­lega þrýsta verð­inu upp; jafn­vel nokkru hærra upp en hér hefur verið rakið.

Alcoa frá um 15 USD/MWst núna í a.m.k. 30 USD/MWst árið 2028

En snúum okkur aftur að kjarna grein­ar­innar; raf­orku­verð­inu til Fjarða­áls. Fram­an­greind þróun veldur því að þegar Lands­virkjun og Alcoa taka upp samn­ings­við­ræður „um end­ur­skoðað orku­verð með hlið­sjón af aðstæðum“, sbr. áður­nefnt orða­lag í skjölum Alþingis, má telja lík­legt að raf­orku­verðið til iðn­fyr­ir­tækja á Íslandi verði þá að með­al­tali nálægt 35 USD/MWst að núvirði.

Stærstu not­end­urnir munu mögu­lega vera að greiða aðeins lægra verð og ýmsir af smærri stórnot­endum munu vænt­an­lega vera að greiða nokkru hærra verð. Þetta þýðir að eftir u.þ.b. ára­tug muni raf­orku­verð á Íslandi almennt liggja á bil­inu 30-40 USD/MWst (og svo bæt­ist flutn­ings­kostn­að­ur­inn við). Enn og aftur skal minnt á að allar þessar tölur eru mið­aðar við núvirði. Þessari þróun allri er lýst á mynd­rænan hátt á graf­inu hér að ofan.

Eðlilegt kann að vera að allra stærstu stór­iðju­fyr­ir­tækin njóti ein­hvers afsláttar. Af þeim sökum má gera ráð fyrir að við end­ur­samn­ingu á raf­orku­verð­inu, þegar líður að 2028, muni Fjarða­áli bjóð­ast orku­verð upp á um 30-35 USD/MWst (m.v. núvirði). Þar með færi raf­orku­verðið þarna sem sagt úr núver­andi u.þ.b. 15 USD/MWst (m.v. 2016) og í um 30-35 USD/MWst. Sem aug­ljós­lega yrði kær­komið fyrir Lands­virkjun. Flutn­ings­kostn­aður bæt­ist svo að sjálf­sögðu við orku­verðið.

Þróun álverðs getur mögulega haldið aftur af verðhækkuninni

Þetta nýja verð til Alcoa kæmi lík­lega til fram­kvæmda ekki síðar en í árs­byrjun 2028. Umsamið nýtt orku­verð myndi svo „gilda hin síð­ari 20 ár samn­ings­tím­ans“, líkt og segir í skjölum Alþingis. Hafa má í huga að umsamið nýtt verð til Fjarða­áls yrði ekki endi­lega tengt við þróun álverðs, líkt og núver­andi verð. Þarna gæti samist um að tengja verðið við t.d. banda­ríska neyslu­vísi­tölu, líkt og í nýlegum samn­ingi við ÍSAL/RTA, eða við orku­verð á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum, líkt og gert var í nýjum samn­ingi við Norðurál.

Sem fyrr segir eru margir þættir sem geta brenglað þessa fram­tíð­ar­mynd sem hér hefur verið kynnt. T.d. er mik­il­vægt að þróun álverðs verði með þeim hætti að fram­leiðsla Fjarða­áls geti staðið undir verð­hækk­un­inni. En ef ekki verður uppi meiri­háttar heimskreppa þarna eftir um ára­tug, eða af öðrum ástæðum offram­boð af áli, ætti þetta að geta gengið upp, þ.e. að raf­orku­verðið til Fjarða­áls hækki um 100% eða jafn­vel rúm­lega það strax árið 2028.

Árleg tekjuaukning upp á um 8-10 milljarða króna

Fram­an­greind verð­breyt­ing til Fjarða­áls myndi leiða til þess að árlegar tekjur Lands­virkj­unar af raf­orku­sölu til álvers­ins myndu senni­lega hækka um u.þ.b. 8-10 millj­arða króna frá því sem var 2016. Og það sem sagt strax árið 2028. Til sam­an­burðar má nefna að tekjur Lands­virkj­unar vegna raf­orku­sölu til Fjarða­áls árið 2016 námu senni­lega tæpum 8 millj­örðum króna. Og heild­ar­tekjur Lands­virkj­unar af raf­orku­sölu á því ári námu nálægt 40 millj­örðum króna. Þarna gætu tekjur Lands­virkj­unar sem sagt auk­ist um fimmt­ung á einu bretti.

Umrædd tekju­aukn­ing myndi að öllum lík­indum auka árlega arð­greiðslu­getu Lands­virkj­unar um u.þ.b. 6,5-8 millj­arða króna. Til sam­an­burðar má hafa í huga að und­an­farin ár hefur arð­greiðslan verið 1,5 millj­arður króna og líkur eru á að eftir um þrjú til fjögur ár geti arð­greiðslan verið farin að nálg­ast 10 millj­arða króna. Með verð­hækk­un­inni til Fjarða­áls um 2028 er raun­hæft að þá geti árleg arð­greiðsla Lands­virkj­unar orðið nálægt 20 millj­örðum króna eða jafn­vel rúm­lega það. Það væru góð tíð­indi fyrir eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins.

-------------------------------------


Ítrekun á nokkrum mik­il­vægum fyr­ir­vörum: Þegar settar eru fram tölur um það hversu mikil verð­hækkun er mögu­leg frá núver­andi raf­orku­verði til Fjarða­áls þarf að hafa í huga að tekjur af raf­orku­sölu til Fjarða­áls eru síbreyti­legar, því raf­orku­verðið er tengt þróun álverðs. Þegar settar eru fram tölur um hagnað og arð­greiðslur í fram­tíð­inni þarf að hafa í huga að lög um skatt­hlut­fall orku­fyr­ir­tækja og arð­greiðslur þeirra geta breyst. Þegar settar eru fram tölur um raf­orku­verð Lands­virkj­unar, hagnað og/eða arð­greiðslur, þarf að hafa í huga að geng­is­þróun getur haft áhrif á þær tölur. Þegar settar eru fram tölur um hversu hátt raf­orku­verð Fjarðaál myndi þola þarf að hafa í huga að það ræðst m.a. af þróun álverðs sem er óviss stærð. Þetta er ekki tæm­andi taln­ing á óvissu­þátt­unum. Loks þarf að hafa í huga, að sú ályktun að veru­leg end­ur­skoðun á raf­orku­verð­inu til Fjarða­áls geti orðið strax um 2028 byggir á því sem segir um end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði orku­samn­ings­ins í skjölum Alþingis. Það er ekki eitt og hið sama og sjálfur samn­ing­ur­inn og því ekki unnt að full­yrða hversu mikið svig­rúm er til að end­ur­semja um raf­orku­verðið á miðju samn­ings­tíma­bil­inu. Af þessu öllu leiðir, að taka verður þeim álykt­unum sem fram koma í grein­inni með marg­vís­legum fyr­ir­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár