
Hægt að túlka mál á 48 tímum í stað 48 mánaða
Í viðkvæmum málum er oft tekist á um túlkun útlendingalaga, eins og mál 12 og 14 ára drengja frá Palestínu, þeirra Sameer Omran og Yazan Kaware. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, er með LLM-próf í mannréttindum frá Kaþólska háskólanum í Leuven. Hún telur Útlendingastofnun ekki vera að beita lögunum rétt.










































