Þétting byggðar getur aukið losun gróðurhúsalofttegunda

Rann­sóknir dokt­ors á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði HÍ sýna að þétt­ing byggðar getur aukið losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. End­ur­varps­á­hrif og aðrir þættir, svo sem ráð­stöf­un­ar­tekjur og lífs­við­horf, geta þurrkað út ávinn­ing af þétt­ingu byggðar.

Bygg­inga­kranar fara ekki fram­hjá neinum þeim sem eiga leið um miðbæ Reykja­víkur, en á síð­ustu árum hefur stefnan verið tekin í átt að þétt­ingu byggðar. Helsta rétt­læt­ingin fyrir þeirri stefnu er að þétt­ing byggðar dregur úr bíla­um­ferð og þar með úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda

Það skýtur hins vegar skökku við að þegar fræðin eru skoðuð byggir þessi stefna á afar veikum vís­inda­legum grunni. Þegar horft er á kolefn­is­spor borg­ar­búa eru þeir sem búa næst mið­borg­inni með hæsta kolefn­is­sporið, þrátt fyrir minni notkun á einka­bílnum. Áróra Árna­dóttir, doktor á verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og fram­kvæmda­stjóri Grænni Byggðar, hefur bent á þessa þver­sögn í ýmsum rann­sóknum sem hún og félagar hennar við HÍ hafa unnið að á síð­ustu árum.

Endurvarpsáhrifin

Þéttari byggð = styttri vega­lengdir

Styttri vega­lengdir = minni umferð

Minni umferð = minni losun koltví­sýr­ings

Þessi jafna hljómar ein­föld og skyn­sam­leg, og fræðin hafa vissu­lega sýnt að losun frá vega­sam­göngum er minni þar sem byggð er þétt­ari, en rann­sóknir hafa líka leitt í ljós að á sama tíma getur þétt­ingin valdið aukna losun á öðrum sviðum, og þegar allt kemur til alls er hætta á því að ávinn­ing­ur­inn verði eng­inn eða jafn­vel nei­kvæður.

Einn þáttur sér­stak­lega getur komið í veg fyrir að þétt­ing byggðar skili árangri: það eru hin svoköll­uðu „end­ur­varps­á­hrif‟. Breski hag­fræð­ing­ur­inn William Stanley Jevons var sá fyrsti til að átta sig á þessu mót­sagn­ar­kennda fyr­ir­bæri, sem hefur líka verið nefnt „þver­sögn Jevons‟.

[adspot]Í bók sinni The Coal Question virti Jevons fyrir sér fram­tíð kola­iðn­að­ar­ins í Bret­landi: hann tók eftir því að þrátt fyrir tækni­legar fram­farir í hönnun gufu­véla, sem gerðu vél­arnar spar­neytn­ari, var heild­ar­notkun á kolum alltaf að aukast. Eftir miklar vanga­veltur komst hann að skýr­ing­unni á þess­ari þver­sögn: um leið og gufu­vél­arnar urðu spar­neytn­ari urðu þær líka ódýr­ari í rekstri, sem þýddi að fleiri áttu efni á þeim og þar af leið­andi fjölg­aði þeim. Fjölgun gufu­véla varð til þess að þrátt fyrir aukna skil­virkni jókst eft­ir­spurn eftir kolum.

Þversögn Jevons skýrir hvers vegna tækni­fram­farir síð­ustu 200 ára hafa alltaf leitt til auk­innar ásóknar í nátt­úru­auð­lindir en ekki öfugt.

Tásumyndir frá Tene

Þétting byggðar eykur vissu­lega skil­virkni eða „spar­neytni” borg­ar­innar, en end­ur­varps­á­hrifin geta verið ýmis­leg: borg­ar­búar sem þurfa ekki lengur á bíl að halda eru að spara sér tölu­verðar upp­hæðir sem geta þá farið í neyslu á ann­ars konar vöru og þjón­ustu. „Með þétt­býl­is­myndun verður mikið fram­boð af vöru og þjón­ustu á einum stað, og þar af leið­andi verður meiri neysla,‟ segir Áróra. Í sumum til­fellum getur þetta breytta neyslu­mynstur leitt til enn meiri los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, til dæmis ef pen­ing­ur­inn sem spar­ast í bíla­kostn­aði fer í stað­inn í flug­ferðir til útlanda. Til að mynda veldur flug­ferð fyrir tvo til Tenerife jafn mik­illi losun og með­al­stór bens­ín­bíll losar á heilu ári miðað við með­al­notkun, en kostar miklu minna.

Það sem meira er, borg­ar­búar sem kjósa að lifa bíl­lausum lífs­stíl eru í stuttri fjar­lægð frá alþjóða­flug­velli og geta hall­ast til þess að ferð­ast frekar til útlanda heldur en inn­an­lands, þar sem verð­lagn­ing á bíla­leigu­bílum inn­an­lands í sam­an­burði við milli­landa­flug er þess eðlis að utan­lands­ferðin virð­ist oft vera hag­stæð­ari kost­ur­inn. Utan­lands­ferð getur hins vegar valdið miklu meiri losun en ferð inn­an­lands. Þessi sama flug­ferð til Tenerife losar til dæmis fimmtán sinnum meira en ferð frá Reykja­vík til Akur­eyrar á bens­ín­bíl.

Rannsókn Áróru Árna­dóttur og félaga sýna að milli­landa­flug er stór þáttur í kolefn­is­spori ungra Reyk­vík­inga (25-40 ára), og því nær mið­bænum sem komið er, því hærra er flug­tengda kolefn­is­sporið.

Losun frá flugi sam­svarar 66 pró­sent af ferða­tengdu kolefn­is­spori ungra Reyk­vík­inga, og er þrefalt meiri en losun vegna dag­legra ferða þeirra. Hún er að með­al­tali 3 tonn Co2-ígilda á mann, eða sem sam­svarar 60 pró­sent af árlegum los­un­ar­kvóta hvers manns­barns ef halda á hlýnun innan 1,5°c (5 tonn á mann). Hjá íbúum í mið­borg­inni er ekki óal­gengt að flug­tengt kolefn­is­spor sé um og yfir 5 tonn á mann, og þá eru vinnu­tengdar flug­ferðir ekki taldar með.

Tásu­myndir frá Tene virð­ast vera fíll­inn í stof­unni þegar kemur að kolefn­is­spori borg­ar­búa.

Fræði­menn eru ekki á einu máli um hvort hærra kolefn­is­spor frá flugi hjá íbúum mið­borgar skýrist af end­ur­varps­á­hrifum. Rannsókn Áróru sýnir að aðrir þættir geta spilað inn í, svo sem ráð­stöf­un­ar­tekjur, lífs­við­horf og félags­legur bak­grunnur, en erfitt getur reynst að greina milli þeirra. Þrátt fyrir það er ljóst að séu end­ur­varps­á­hrifin til staðar geta þau auð­veld­lega þurrkað út allan ávinn­ing af þétt­ingu byggðar.

Þetta á reyndar líka við um aðrar lofts­lagstengdar aðgerðir svo sem efl­ingu almenn­ings­sam­gangna eða íviln­anir til kaup­enda raf­bíla. Þversögn Jevons hefur ekki farið fram hjá sér­fræð­ingum í mark­aðs­setn­ingu, eins og þessi aug­lýs­ing bíla­fram­leið­anda ber með sér:

Þetta segir okkur að yfir­völd sem vilja ná raun­veru­legum árangri í lofts­lags­málum þurfa að taka mið af mögu­legum end­ur­varps­á­hrifum ef ætl­unin er að draga úr losun almennt, en ekki ein­göngu innan marka borg­ar­innar.

Borgir byggjast á jarðefnaeldsneyti

Það er síðan önnur og djúp­stæð­ari ástæða til að setja spurn­ing­ar­merki við þétt­ing­ar­stefn­una. Fræði­menn hafa lengi velt fyrir sér þeirri stað­reynd að þétt­býl­is­myndun ann­ars vegar og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hins vegar hafa yfir­leitt þró­ast í sömu átt á síð­ustu 200 ár. Sú þróun byrj­aði með iðn­bylt­ing­unni, þegar verk­smiðjur af ýmsum toga fóru að laða að sér vinnu­afl inn í borg­ina. Vél­væð­ingin í land­bún­aði gerði það að verkum að færri hendur þurfti til að fram­leiða mat­væli, en um leið vant­aði fleiri hendur í iðn­aði. Margir fluttu þá í borg­ina til að vinna í verk­smiðjum, þar sem það reynd­ist hent­ugt að stað­setja verk­smiðjur í borgum, nær hvor annarri og í stuttu færi frá ýmsum þjón­ustu­að­ilum.

Því meira aðgengi að jarð­efna­elds­neyti, því fleiri verk­smiðjur risu, og því fleiri fluttu í borg­ina. Af þessum sökum héld­ust þétt­býl­is­myndun og losun koltví­sýr­ings hönd í hönd. Þegar leið á tutt­ug­ustu öld­ina flutt­ist hluti af iðn­að­inum aftur út úr borg­inni, að hluta til af umhverf­is­á­stæðum og að hluta til vegna hnatt­væð­ingar (margar verk­smiðjur flutt­ust frá Vest­ur­löndum til aust­urs og suð­urs þar sem vinnu­aflið var ódýr­ara). Um leið hófst vél­væð­ingin í iðn­aði en hún fækk­aði störfum í verk­smiðj­unum eins og hún hafði gert áður í land­bún­aði. Störfum fækk­aði í iðn­aði en fram­leiðslan hélt áfram að aukast þar sém vél­unum fjölg­aði, og útblást­ur­inn fór áfram sömu leið.

Þjónustugeirinn er háður iðnaðinum

Aukin fram­leiðsla á alls kyns vöru kall­aði hins vegar á aukið vinnu­afl í þjón­ustu­geir­ann: sá geiri hefur umsjón með flæði vara sem vél­arnar fram­leiða: sölu­menn, flutn­ings­að­ilar, bók­arar, gæða­stjórar, mark­aðs­fræð­ingar, ráð­gjafar, trygg­ing­ar­salar, banka­menn og sér­fræð­ingar af ýmsum toga. Sem fyrr reynd­ist hent­ug­ast að stað­setja öll þessi störf á einum og sama stað og borgin var til­valin til þess.

Vöxtur þjón­ustu­geirans í borg­inni bygg­ist þannig á auk­inni fram­leiðslu, og aukin fram­leiðsla bygg­ist á auk­inni orku­vinnslu, þar á meðal vinnslu jarð­efna­elds­neytis. Þess vegna hefur aukin þétt­býl­is­myndun áfram farið hönd í hönd með auk­inni losun koltví­sýr­ings, þótt störfum hafi fækkað í iðn­aði en fjölgað í þjón­ustu­geir­anum þökk sé vél­væð­ing­unni.

En hvað hefur þetta með þétt­ingu byggðar að gera?

Þegar talað er um að þétta byggð­ina er ekki verið að tala um að flytja hús í úthverfum borg­ar­innar nær miðj­unni (sem væri kannski hin raun­veru­lega þétt­ing byggðar), heldur er verið að tala um að þétta með því að fjölga íbúum borg­ar­innar. Til þess að fjölga borg­ar­búum þarf hins vegar að skapa fleiri störf í þjón­ustu­geir­anum, því fólk flytur yfir­leitt ekki í borg­ina nema þar sé vinnu að fá, en til að fjölga störfum í þjón­ustu­geir­anum þarf að fjölga vélum og auka fram­leiðslu (þó ekki endi­lega í borg­inni sjálfri), og þar með losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Vöxtur Reykja­vík­ur­borgar á síð­ustu árum hvílir að stórum hluta á hröðum vexti ferða­þjón­ust­unnar, en sú grein byggir á flug­iðn­að­inum. Í þessu til­felli er ekki um hefð­bundna vöru­fram­leiðslu að ræða: flug­iðn­að­ur­inn „fram­leiðir“ enga vöru aðra en flug­vélar, en hann flytur ferða­menn, og til þess þarf hann mikið magn af jarð­efna­elds­neyti rétt eins og flestar aðrar iðn­greinar. Ef við berum saman losun frá öllum vega­sam­göngum í Reykja­vík við losun vegna inn­flutn­ings og brennslu þotu­elds­neytis þá er hlut­fallið svona:

Ferða­mönnum hefur fjölgað hratt á síð­ustu árum, en inn­flutn­ingur þotu­elds­neytis tvö­fald­að­ist á aðeins fjórum árum frá 2014 til 2018. Þessi þróun var meðal ann­ars drifin áfram af bygg­ingu gisti­staða í Reykja­vík, en fram­boð her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur um það bil tvö­fald­ast á síð­ustu 5 árum. Súlu­ritið hér að ofan sýnir að jafn­vel þótt borg­inni tæk­ist með þétt­ingu byggðar að draga úr losun um 50 pró­sent í vega­sam­göngum (sem mundi telj­ast ótrú­legur árangur), myndi aðeins sjö pró­sent vöxtur í flug­um­ferð um Keflavík vegna auk­ins fram­boðs gisti­rýma í Reykja­vík þurrka út allan ávinn­ingin. Fjölgun ferða­manna á árunum fyrir Covid-far­ald­ur­inn var að jafn­aði 25 pró­sent á ári og miðað við slíkan vöxt tæki ekki nema fjóra mán­uði fyrir flug­iðn­að­inn að jafna út 50 pró­sent sam­drátt í vega­sam­göngum innan Reykja­víkur.

Aukin losun frá byggingariðnaði

Við þetta bæt­ist að upp­bygg­ing ferða­þjón­ustu­geirans, ásamt flutn­ingi fólks úr sveit í borg, kallar á miklar bygg­ing­ar­fram­kvæmdir í borg­inni (hótel, veit­inga­staðir og versl­anir fyrir ferða­menn og íbúðir, skólar og aðrir inn­viðir fyrir nýja íbúa), en bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn er ábyrgur fyrir 10 pró­sent af allri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu (fyrst og fremst vegna sem­ents- og stálfram­leiðslu). Sú losun á sér stað að stóru leyti í útlöndum í til­felli Íslands, þar sem megnið af bygg­ing­ar­efn­inu er inn­flutt, og er los­unin þess vegna hvorki skráð í kolefn­is­bók­haldi Reykja­vík­ur­borgar, né Íslands. Hún á sér stað engu að síður.

Þétt­ing­ar­stefnan er í raun vaxt­ar­stefna, og vöxt­ur­inn leiðir óhjá­kvæmi­lega til auk­innar los­unar, og miklu meiri los­unar en spar­ast á móti með sjálfri þétt­ing­unni. Það þarf víst að draga úr losun innan borg­ar­innar, en bara ekki með því að auka hana marg­falt meira ann­ars staðar þar sem sést ekki til í kolefn­is­bók­haldi borg­ar­innar.

Höfundur frétta­skýr­ingar er meist­ara­nemi í Blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár