Þótti eðlilegt að ganga um opinbera sjóði eins og nammikistu

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir segir að það komi sér ekki á óvart að vera ásökuð um hræsni af ákveðnum kreðsum eftir hún gagn­rýndi nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis um eigin ummæli.

„Við komum inn í stjórn­málin árið 2012 og við komum inn í umhverfi þar sem það þykir bara eðli­legt að það hvíli leynd á akst­urs­greiðslum til þing­manna. Það þykir bara eðli­legt að þing­menn gangi bara í opin­bera sjóði eins og nam­mikistu. Og það er ekki hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um það. Það þykir ekki eðli­legt að taka ábyrgð á stórum póli­tískum mis­tökum og lög­brotum ráð­herra.“

Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, um stöð­una í íslenskum stjórn­málum þegar Píratar voru stofn­aðir fyrir um sjö árum síðan. Hún var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Siða­nefnd Alþingis komst nýverið að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Þór­hildar Sunnu um Ásmund Frið­riks­son hafi brotið gegn siða­reglum Alþing­is­manna. Ummælin, sem hún lét falla í Silfrinu, voru eft­ir­far­andi: „Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um, þing­menn þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almanna­fé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­sókn á þessum efn­um.“

[adspot]Þór­hildur Sunna seg­ist ósam­mála nið­ur­stöðu siða­nefndar en segir að henni sé ákveðin vor­kunn vegna þeirra fyr­ir­mæla sem for­sætis­nefndin sendir til hennar um að hún megi ekki meta sann­leiks­gildi ummæl­anna. „En sömu­leiðis sést það á áliti siða­nefnd­ar­innar að þrátt fyrir að hún seg­ist meta ummælin og umræð­una í heild þá gerir hún það ekki, heldur ein­blínir ein­ungis á þessi ummæli. Hún skoðar ekki ummæli sem ég lét falla í sama þætti að ég væri ekki að segja að þessir ein­stak­lingar væru sekir, það væri dóm­stóla að skera úr um það. Það væri hins vegar eðli­legt að kalla eftir rann­sókn í þessu máli sem og öðrum.“

Hún hafi verið að benda á ákveðið vanda­mál sem sé til staðar í íslensku sam­fé­lagi sem sé að ráð­herrar og þing­menn þurfi aldrei að bera neina ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár