Rúmlega 95 prósent af tekjum Pírata og Flokks fólksins komu úr ríkissjóði

Flokkur fólks­ins hagn­að­ist um 27 millj­ónir króna í fyrra en Píratar töp­uðu 11,7 millj­ónum. Báðir flokk­arnir fengu engin fram­lög yfir 200 þús­und krónum og komu tekjur þeirra að uppi­stöðu úr rík­is­sjóði.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og Helgi Hrafn Gunnlaugsson, þingmaður Pírata.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins og Helgi Hrafn Gunn­laugs­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tekjur Flokks fólks­ins og Pírata juk­ust til muna í fyrra sam­an­borið við árið áður. Að uppi­stöðu komu þær tekjur úr rík­is­sjóði eða alls 95 pró­­sent af tekjum Pírata og 97,5 pró­sent af tekjum Flokks fólks­ins. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í útdrætti úr árs­reikn­ingi Flokks fólks­ins og Pírata sem Rík­is­end­ur­skoðun birti í dag.

Þessi aukn­ing í tekjum má rekja til þess að árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórn­mála­flokk­a sem eiga full­trúa á þingi frá því að fram­lög til þeirra úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð um 127 pró­­sent, að til­­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi.

Fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tek­in. Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­­­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­­­kosn­­­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­­­lega 2,8 millj­­­örðum króna úr rík­­­is­­­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­­­semi sinn­i.

Flokkur fólks­ins fékk 6,9 pró­­sent atkvæða í kosn­­ing­unum 2017 og Píratar 9,2 pró­sent atkvæða.

Flokkur fólksins hagnaðist um 27 milljónir

Tekjur Flokks fólks­ins voru alls 52,3 millj­ónir króna í fyrra. Líkt og kom fram hér fyrir ofan komu þær tekjur að uppi­stöðu úr rík­is­sjóði eða alls rúm­lega 51 milljón. Rekstur flokks­ins kost­aði alls 25,7 millj­ónir og skil­aði rekstur flokks­ins því tölu­verðum hagn­aði eða alls 26,9 millj­ónum króna.

Flokk­ur­inn skuld­aði 920 þús­und krónur í lok síð­asta árs og lækk­uðu skuldir hans milli ára úr 5,8 millj­ónum króna. 

Flokkur fólks­ins fékk ekki ein­stak­lings­fram­lög hærra en 200 þús­und krónur í fyrra.

Skuldir Pírata jukust til muna á milli ára

Píratar fengu einnig engin fram­lög yfir 200 þús­und krónur frá ein­stak­lingum í fyrra. Að upp­stöðu komu tekjur Píratar úr rík­is­sjóði eða alls 77,8 millj­ónir. Heild­ar­tekjur flokks­ins voru 81,8 millj­ónir í fyrra en rekstur flokks­ins kost­aði alls 92,4 millj­ónir og skil­aði rekst­ur­inn því smá­vægi­legu tapi.

Flokk­ur­inn skuld­aði alls 23 milj­ónir í árs­lok en flokk­ur­inn skuld­aði rúma eina milljón árið þar á undan.

Ný lög sam­­­þykkt í fyrra

Ný lög um fjár­­­­­mál stjórn­­­­­mála­­­flokka voru sam­­­þykkt á Alþingi í des­em­ber í fyrra. Á meðal breyt­inga sem þau lög fela í sér eru að stjórn­­­­­mála­­­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­um. Hámarks­­­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krón­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­greindur í árs­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­ur.

Hug­takið „tengdir aðil­­­ar“ var líka sam­ræmt, en Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun gerði í fyrra athuga­­­semdir við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­­­mun­andi félög í eigu sömu aðila.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­­­mála­­­flokk­anna skila árs­­­reikn­ingum sínum til rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun mun hætta að birta tak­­­mark­aðar upp­­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­­ur­­­skoð­end­­­um.

Þessi breyt­ing á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár