Breskir skattgreiðendur tapa milljarði punda á sölu í RBS

Bresk stjórn­völd hafa selt 5,4 pró­sent hlut í Royal Bank of Scotland (RBS) á 2,1 millj­arð punda, eða sem nemur ríf­lega 440 millj­arða króna. Fjár­mun­irnir verða nýttir til þess að greiða niður skuldir rík­is­sjóðs Breta, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá breska fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Rík­is­sjóður Bret­lands lagði bank­anum til 45,5 millj­arða punda í fjár­málakrepp­unni haustið 2008 og eign­að­ist þá ríf­lega 80 pró­sent hlut í bank­anum. Gengið í við­skipt­unum þá var um 500 pens á hlut, en í söl­unni nú er gengið 330 pens á hlut, og því tapið umtals­vert, eða um millj­arður punda miðað við 5,4 pró­sent hlut.

Rekstur RBS hefur gengið erf­ið­lega und­an­farin ár og er gert ráð fyrir mik­illi hag­ræð­ingu á næstu árum. Frá árinu 2008 hefur bank­inn tapað um 50 millj­örðum punda, og hag­rætt veru­lega í rekstri. Gert er ráð fyrir að áfram­hald verði á þeirri þróun, en breska ríkið á nú 73 pró­sent hlut í bank­anum.

Í umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC kemur fram að fjár­mála­ráðu­neytið stefni að því að reyna að ná öllum pen­ingum skatt­greið­enda til baka sem settir voru í bank­ann, en miðað við þetta verð sem fékkst fyrir hlut­inn nú, er tapið umtals­vert. Vonir standa til þess að virði hluta­fjár bank­ans muni aukast með tím­anum.


UK govern­ment starts Royal Bank of Scotland sell-off http://t.co/4ylI727aih


— The Guardian (@guardian) August 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár