Einlæg lög frá óttalegum rokkara

Tón­list­ar­kona sem hefur gefið út plötur með hljóm­sveit sinni, meðal ann­ars í Kína, safnar nú fyrir sóló­plötu á Karolína fund.

Elín Berg­ljót­ar­dóttir hefur verið árum saman í Hljóm­sveit­inni Bellstop og hefur gefið út þrjár breið­skífur með þeirri hljóm­sveit þar á meðal eina í Kína en Elín var búsett þar í sex ár.

Nú vinnur Elín að sóló­plötu í Reykja­vík sem er á íslensku og kemur út á íslandi með haustinu.

Elín hefur verið að syngja og semja texta frá unga aldri . Guð­mundur Jónsson gít­ar­leik­ari og laga­höf­undur kemur að laga­smíðum á nýju sóló­plöt­unni hennar Elínar.

Þetta verður ein­hvers­konar blanda af rokk­skot­inni fólk tón­list með hell­ing af hjarta og sál.

Segðu okkur frá verk­efn­inu þínu?

„Mig hefur langað til að gera plötu á íslensku í nokkur ár og hef verið að skrifa niður texta og ljóð bara svona fyrir mig að eiga þegar tím­inn kæmi. Svo seint á árinu 2019 þá skildi ég við mann sem ég hef verið með í 24 ár. Þegar svona mikið rót verður á lífi manns þá þarf maður að hafa ein­hvers­konar tján­ing­ar­form og mitt helsta tján­ing­ar­form eru textar og tón­list svo ég bara elti það alla leið og úr urðu lög sem ég er enn að leggja loka­hönd á en það gengur mjög vel að koma þeim á legg enda á nægu efni að taka.

[adspot]Þema verk­efn­is­ins er klár­lega hjartað í mér. Þessi lög eru mjög ein­læg án þess þó að vera eitt­hvað sér­stak­lega væmin enda er ég ótta­legur rokk­ari í mér en fila samt að tala um og yrkja um hlut­ina eins og þeir eru því ann­ars lærir eng­inn neitt að því sem maður er að segja og upp­lifa ef maður getur ekki verið ekta. Svo þessi plata verður alla­veg­ana ekta ég get lofað því.

Svo er nátt­úr­lega mjög magnað að vera að vinna að svona verk­efni um þetta mál­efni og þá blossar upp heims­far­aldur og fólk fer að forð­ast að vera nálægt hvort öðru akkúrat þegar maður þarf sem mest á því að halda að fá knús og félags­skap en ég set þær til­finn­ingar þá bara líka í list­ina hún er eins og vasa­klútur sem þerrar öll mín tár og hjálpar mér að finna leið­ina áfram og standa með sjálfri mér.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár