Tengsl efnahagsástands og hjartaáfalla rannsökuð

Líklegt er að aukið vinnu­fram­boð til skamms tíma eykur líkur á hjarta­á­falli hjá karl­mönnum. Þetta eru nið­ur­stöður íslenskrar rann­sóknar á tengslum hjarta­á­falla og vinnu­á­lags. Skatt­lausa árið 1987 var skoðað sér­stak­lega.

Aukið vinnuframboð til skamms tíma getur valdið meiri streitu meðal karlmanna og þar með hjartaáföllum.
Aukið vinnu­fram­boð til skamms tíma getur valdið meiri streitu meðal karl­manna og þar með hjarta­á­föllum. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Líkur á hjarta­á­falli hjá íslenskum karl­mönnum á aldr­inum 45 til 54 ára juk­ust meira en hjá karl­mönnum á aldr­inum 55 til 64 á skatt­lausa árinu 1987 á Íslandi. Þetta sýnir ný rann­sókn fræði­manna við Háskóla Íslands. Rann­sóknin birt­ist nýverið í Journal of Health Economics, virtasta vís­inda­tíma­riti heims á sviði heilsu­hag­fræði.

Markmið rann­sókn­ar­innar var að kanna hvort aðstæður í efna­hags­lífi hefðu áhrif á líkur á hjarta­á­föllum og hvort skýr­inga væri að leita í tíma­bund­inni aukn­ingu á vinnu­fram­boði, er fram kemur í til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands.

Skattlausa árið skoðað

Í rann­sókn­inni var sjónum beint sér­stak­lega að árinu 1987, þegar skatt­kerfi Íslands tók breyt­ingum og ákveðið var að breyta kerf­inu yfir í stað­greiðslu­skatt­kerfi og afnema tekju­skatt fyrir árið 1987. Það gerði það að verkum að vinnu­fram­boð jókst og næga vinnu var að fá fyrir þá sem vildu vinna mikið. Því var kannað var hvort þessi tíma­bundna aukn­ing á vinnu­fram­boði hefði áhrif á tíðni hjarta­á­falla.

Nið­ur­stöður gefa til kynna að skýr­inga á auknum líkum á hjarta­á­föllum meðal karla á skatt­lausa árinu 1987 og ári síðar sé að leita í skamm­tíma aukn­ingu vinnu­fram­boðs meðal þeirra sem voru sjálf­stætt starf­andi. Þeir sem voru sjálf­stætt starf­andi juku meira við sig í vinnu en aðrir og sú staða á vinnu­mark­aði virð­ist skýra þá aukn­ingu hjarta­á­falla sem varð hjá körlum á skatt­lausa árinu. Möguleg skýr­ing á þessu er að yngri menn­irnir reynd­ust auka meira við sig í vinnu en eldri karl­arnir sem virð­ist jafn­framt vega upp á móti ald­urstengdri áhættu hjarta­á­falla.

Skattskrár bornar saman við hjartaáfallaskrár

Skatt­skrár voru bornar saman við skrár yfir hjarta­á­föll á Íslandi hjá fólki á aldr­inum 45 til 74 ára, á tíma­bil­inu 1982 til 1992. Í ljós kom að 24 pró­senta aukn­ing frá með­al­tals­líkum á hjarta­á­föllum yfir rann­sókn­ar­tíma­bilið varð árið 1987 hjá körlum 45-64 ára og 15,6 pró­senta aukn­ingu árið 1988.

„Það að vera við góða heilsu – og geta með góðu móti fórnað frí­tíma fyrir vinnu­tíma í afmark­aðan tíma – er hins vegar óháð því hvort ein­stak­ling­ur­inn er með ógreindan kransæða­sjúk­dóm. Þetta vekur því spurnignar um það hvort þeir sem yngri voru hafi síður vitað hvort þeir til­heyrðu áhættu­hópi þegar kemur að hjarta­á­föllum. Ef til vill hafa þeir í minna mæli leitað læknis eða sinnt heilsu­eft­ir­liti en þeir sem til­heyra eldri ald­urs­hópnum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Höfundar grein­ar­innar eru Þór­hildur Ólafs­dóttir, dokt­or­snemi við Hag­fræði­deild, Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir, pró­fessor við Hag­fræði­deild, Birgir Hrafn­kels­son, pró­fessor við Raun­vís­inda­deild, og Guð­mundur Þor­geirs­son, pró­fessor við Lækna­deild. Rann­sóknin er hluti af dokt­ors­rann­sókn Þór­hildar í heilsu­hag­fræði sem ber heitið „Áhrif skyndi­legra breyt­inga í hag­kerfi á heilsu og heilsu­tengda hegðun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsókn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár