Borgin greiddi yfir 300 milljónir í afturvirkar húsaleigubætur

Af þeim sem áttu rétt á húsa­leigu­bótum aftur í tím­ann eru 80 látnir. Unnið er að því að gera upp við dán­arbú þeirra eða lög­erf­ingja.

Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar greiddi í dag 323,4 mkr. til 423 ein­stak­linga sem áttu rétt á aft­ur­virkum húsa­leigu­bótum. Auk greiðslu á sér­stökum húsa­leigu­bótum sem námu 203,7 mkr. voru greiddir drátt­ar­vextir að upp­hæð 119, 7 mkr.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

„Borg­ar­ráð sam­þykkti þann 3. maí síð­ast­lið­inn að fela vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar að afgreiða kröfur um greiðslu sér­stakra húsa­leigu­bóta fyrir tíma­bilið 1. júní 2012 til 31. des­em­ber 2016 frá leigj­endum Brynju – Hússjóði Öryrkja­banda­lags Íslands, á grund­velli dóms Hæsta­réttar í máli nr. 728/2015, án til­lits til þess hvort umsókn hafi legið fyrir. Auk þess var lagt til að drátt­ar­vextir yrðu greiddir til þeirra sem ættu rétt á greiðslum sér­stakra húsa­leigu­bóta aftur í tím­ann án þess að gerð væri sér­stök krafa um það,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­innar.

Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar sendi öllum þeim leigj­endum sem gætu hafa átt rétt á bótum bréf í byrjun nóv­em­ber.

Annars vegar var ein­stak­lingum til­kynnt að þeir ættu rétt á greiðslu sér­stakra húsa­leigu­bóta og drátt­ar­vaxta aftur í tím­ann ásamt útreikn­ingi auk til­kynn­ingu um greiðslu­dag. Hins vegar var ein­stak­lingum til­kynnt að þeir ættu ekki rétt og þeim kynntur réttur sinn til rök­stuðn­ings og heim­ild til að áfrýja ákvörðun til áfrýj­un­ar­nefndar vel­ferð­ar­ráðs.

„Þess má að lokum geta að af þeim rúm­lega 500 ein­stak­lingum, sem áttu rétt á greiðslu sér­stakra húsa­leigu­bóta aftur í tím­ann, eru 80 ein­stak­lingar látnir. Unnið er að því að fá upp­lýs­ingar varð­andi umsjón­ar­menn dán­ar­búa eða lög­erf­ingja og von­ast vel­ferð­ar­svið borg­ar­innar til þess að hægt verði að ljúka þeim greiðslum sem allra fyrst,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þann 25. októ­ber 2018 sam­þykkti borg­ar­ráð hækkun á fjár­hags­á­ætlun vel­ferð­ar­sviðs vegna aft­ur­virkra greiðslna sér­stakra húsa­leigu­bóta ásamt drátt­ar­vöxtum. Talið er að heild­ar­greiðslur til ein­stak­linga auk stað­greiðslu af drátt­ar­vöxtum geti numið allt að 400 mkr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár