Algjör einhugur er meðal félagsmanna Flugfreyjufélags Íslands um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí „sem felur í sér tugprósenta launalækkanir og skerðingu á réttindum til frambúðar“.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir ennfremur að afstaða félagsmanna hafi verið könnuð á fundi í dag og niðurstaðan hafi verið sú að félagsmenn eru „með öllu mótfallnir því að umturna gildandi kjarasamningi á einu bretti og fórna kjörum og réttindum sem tekið hefur áratugi að byggja upp“.
Flugfreyjufélagið ítrekar samningsvilja sinn um að koma til móts við Icelandair á meðan núverandi ástand varir og er áfram tilbúið til samtals um sanngjarnar breytingar á gildandi kjarasamningi.
Icelandair Group segir að meðallaun flugfreyja fyrir fullt starf hafi numið 520 þúsund krónum í fyrra og yfirflugfreyjur hafi verið að meðaltali með 740 þúsund krónur á mánuði fyrir fullt starf. Þetta kemur fram í svörum félagsins við fyrirspurn mbl.is.
Í svari Icelandair Group kemur einnig fram að dagpeningar hafi að meðaltali verið 140-145 þúsund krónur á mánuði.
[links]Í tilkynningu frá Flugfreyjufélaginu í morgun kom fram að félagið hafi allt frá því faraldurinn braust út leitað allra leiða til að koma til móts við Icelandair. Þar er bent á að flugfreyjur hafi verið án kjarasamnings í eitt og hálft ár og því ekki notið kjarabóta ólíkt flestum á vinnumarkaði. Engu að síður hafi félagið boðið Icelandair tilslakanir á kjarasamningi félagsmanna meðan mestu erfiðleikarnir gangi yfir.
Félagið hafi um miðjan apríl lagt fram tilboð um langtímasamning sem hafi falið í sér verulegar tilslakanir, aukinn sveigjanleika og lengri vinnutíma. Nú stilli Icelandair stéttarfélögunum upp við vegg og reyni að gera þau ábyrg fyrir stöðunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir