Gylfi: Verðbólgan ekki vegna lóðaskorts

Meintur lóða­skortur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ekki ástæða þess að fast­eigna­verð hefur hækkað, að mati hag­fræði­pró­fess­ors sem á sæti í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands Mynd: Skjáskot/RÚV

Hækkun hús­næð­is­verðs und­an­farna mán­uði er ekki skipu­lags­mi­s­tökum að kenna, heldur afleið­ing af vaxta­lækk­unum og breyttri neyslu­hegðun. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands sem á sæti í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Í grein­inni fer Gylfi yfir áhrif hús­næð­is­verðs á verð­bólgu, en sam­kvæmt honum hafa verð­breyt­ingar á hús­næð­is­mark­aði áhrif á tekju­skipt­ingu og verð­trygg­ingu lána, auk þess sem það leikur stórt hlut­verk í hag­stjórn. Mik­il­vægt sé þó að rugla ekki þessu þrennu saman.

Húsnæðisverð hærra vegna vaxtalækkana

Samkvæmt Gylfa eru eru áhrif vaxta á hús­næð­is­verð mik­il­væg fyrir hag­stjórn. Hann segir lækkun vaxta valda því að verð á öllum eignum – hús­næðis, hluta­bréfs, sum­ar­bú­staða og lista­verka – hækki. Hins vegar ætti hærra eign­ar­verð einnig að auka eft­ir­spurn og hvetja fyr­ir­tæki til að ráð­ast í fjár­fest­ingu og fram­leiðslu á þessum eignum.

Samkvæmt Gylfa var lækkun seðla­banka­vaxta í fyrra ætlað að auka eft­ir­spurn á meðan far­sótti gengi yfir og bæta þannig upp fyrir minni útflutn­ing ferða­þjón­ustu. Þessi lækkun hafði í för með sér örari hækkun hús­næð­is­verðs, en sú hækkun var ekki fyr­ir­séð vegna þess að ótt­ast var að far­sóttin hefði nei­kvæð áhrif á eft­ir­spurn eftir hús­næði.

„Það er ekki rétt eins og haldið hefur verið fram að vextir hafi verið hækk­aðir á þessu ári vegna þess að lóða­skortur hafi haft í för með sér hækkun hús­næð­is­verðs sem síðan drífi verð­bólg­una áfram,“ segir Gylfi. „Vextir hafa einnig verið lækk­aðir í öðrum löndum á COVID-tímum og áhrifin þar, eins og hér, komið fram í þróun hús­næð­is­verðs.“

Því segir Gylfi að vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í síð­ustu viku hafi „alls ekki“ verið vegna þess að sveit­ar­fé­lög hefðu ekki skipu­lagt ný hverfi, heldur vegna þess að sú pen­inga­stefna sem hefur örvað hag­kerfið á tímum far­ald­urs­ins eigi ekki lengur við.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár