„Ég þoli ekki þegar maður er settur í box“

„Ég fór með það veganesti í lífið að ögra þessum staðalí­myndum,“ segir Björn Stef­ánsson leikari, sem fer með annað aðal­hlut­verkanna í Fjalla­baki, eða Brokeback Mountain, á sama tíma og eitruð karl­mennska rís í heiminum.

Leikritið Fjallabak er nú sýnt á fjölum Borgar­leikhússins en þar leika þeir Björn Stef­ánsson og Hjörtur Jóhann Jónsson kúrekana og elskhugana Jack og Ennis. Leikritið, sem byggir á Pulitzer-verðlauna­smásögu Annie Proulx, fjallar um forboðnar ástir tveggja bandarískra kúreka á sjöunda áratug síðustu aldar, á þeim tíma er samkyn­hneigð var ólögleg. Þar er einnig komið inn á eitraða karl­mennsku, sem mikið er áberandi í umræðu nútímans.

Heimildin ræddi við Björn Stef­ánsson, eða Bjössa í Mínus eins og hann er gjarnan kallaður, um leikritið, eitraða karl­mennsku og ólíkar skoðanir og sitt hvað fleira. 

Af hverju finnst þér þetta leikrit skipta máli í dag?

„Sem leikari sem hefur unnið sem slíkur undan­farin 12 ár, fær maður ýmis hlutverk. Maður fær kannski hlutverk í barna­leikriti og í söngleik. En síðan fær maður svona verk, Fjallabak, eða Brokeback Mountain; svona verkefni þar sem erindið er svo brýnt og sterkt, sérstak­lega núna þar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár