Íslendingar hafa mestar áhyggjur af spillingu í fjármálum og stjórnmálum

Spilling í fjár­málum og/eða stjórn­málum veldur lands­mönnum mestum áhyggjum en áhyggjur af heil­brigð­is­þjón­ustu og hús­næð­is­málum fara minnk­andi.

Spilling í fjár­málum og/eða stjórn­málum veldur lands­mönnum mestum áhyggjum en áhyggjur af heil­brigð­is­þjón­ustu og hús­næð­is­málum fara minnk­andi. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 11. til 15. febr­úar 2019.

Svar­endur voru spurðir um hvaða þrjú atriði þeir hefðu mestar áhyggjur af á Íslandi eða í íslensku sam­fé­lagi. Líkt og í fyrra voru það spill­ing í fjár­málum og/eða stjórn­málum, eða 44 pró­sent, fátækt og/eða félags­legur ójöfn­uður, eða 35 pró­sent, heil­brigð­is­þjón­usta, eða 35 pró­sent, og hús­næð­is­mál, eða 30 pró­sent, sem reynd­ust helstu áhyggju­valdar þjóð­ar­innar, þó að röðun þeirra hafi tekið breyt­ingum á milli ára.

Af þeim áhyggju­efnum sem spurt var um hafa áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum auk­ist mest frá könnun árs­ins 2018 eða um sem nemur 11 pró­sentu­stigum. Áhyggjur af menntun hafa minnkað mest af öllum mál­efnum eða um því sem nemur 13 pró­sentu­stigum frá könnun síð­asta árs.

[adspot]

Húsnæðismál áhyggjuefni yngra fólksins

Spilling í fjár­málum og/eða stjórn­málum reynd­ist svar­endum 68 ára og eldri efst í huga, eða 62 pró­sent. Hús­næð­is­mál voru hins vegar helsta áhyggju­efni svar­enda á aldr­inum 18 til 29 ára, eða 50 pró­sent.

Stuðn­ings­fólk Pírata, eða 71 pró­sent, Mið­flokks, eða 63 pró­sent, og Flokks fólks­ins, eða 60 pró­sent, var lík­leg­ast til að segj­ast hafa mestar áhyggjur af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum. Stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins reynd­ist einnig lík­leg­ast til að segj­ast hafa áhyggjur af fátækt og/eða félags­legum ójöfn­uði, eða 57 pró­sent, og hús­næð­is­málum, eða 47 pró­sent, en stuðn­ings­fólk Við­reisnar var lík­leg­ast til að segj­ast hafa mestar áhyggjur af heil­brigð­is­þjón­ustu, eða 42 pró­sent. Þá reynd­ist stuðn­ings­fólk Vinstri grænna lík­legra en stuðn­ings­fólk ann­arra stjórn­mála­flokka til að segj­ast hafa áhyggjur af lofts­lags­breyt­ingum, eða 33 pró­sent.

Alls svör­uðu 934 ein­stak­lingar könn­un­inni, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár