Fasteignum fjármálafyrirtækja fækkað verulega

Eftir hrun eign­uð­ust fjár­mála­fyr­ir­tæki, þar á meðal bankar, spari­sjóðir og eigna­söfn, mik­inn fjölda fast­eigna. Eftir árið 2012 hafa fast­eignir í eigu fyr­ir­tækj­anna farið hratt fækk­andi og eru nú sam­an­lagt rúm­lega 1400.

Fyrstu árin eftir hrun eign­uð­ust fjár­mála­fyr­ir­tæki fjölda­margar fast­eignir hér á landi. Þegar mest lét, árið 2012, áttu fyr­ir­tækin sam­an­lagt 4.633 eignir. Mikið vatn hefur hins vegar runnið til sjávar á síð­ustu sex árum og áttu fyr­ir­tækin sam­an­lagt 1.482 fast­eignir í lok árs í fyrra.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um fast­eignir í eigu fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Fjármálafyrirtæki áttu rúmlega 4500 eignir árið 2012

Í fyr­ir­spurn Ólafs eru talin upp 25 fjár­mála­fyr­ir­tæki, þar á meðal spari­sjóðir, bankar og eigna­fé­lög, og spurt er hversu margar fast­eignir hver aðili hafi átt á tíma­bil­inu 2008 til 2018.

Á fjórum árum fóru sam­an­lagðar fast­eignir þess­ara 25 fjár­mála­fyr­ir­tæki úr 631 eignum árið 2008 í 4633 árið 2012, í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins. Eftir 2012 fór fjöldi fast­eigna fækk­andi hjá meiri­hluta fyr­ir­tækj­anna og í lok árs 2018 voru sam­an­lagðir eignir fyr­ir­tækj­anna 1482. .

Hilda ehf. átti mest 122 eignir

[links]Eitt af þessum fjár­mála­fyr­ir­tækjum er Hilda ehf., dótt­ur­fé­lag ESÍ, sem sá um umsýslu fulln­ustu­eigna Seðla­bank­ans, ann­ars vegar fast­eignir og lóðir og hins vegar lánsafns sem inni­heldur kröfur á fyr­ir­tæki. Félagið var sett í slit árið 2017 og var síðan afskrifað í júní 2019.

Hilda var stofnað í lok árs en átti engar skráðar eignir fyrr en í lok árs 2011 sam­kvæmt svari dóms­mála­ráð­herra. Í lok árs 2011 átti Hilda 13 eignir, árið eftir átti félagið 122 eignir. Árin eftir fækk­aði eignum félags­ins jafnt og þétt í kjöl­far sölu. Skráðir eignir félags­ins voru 91 árið 2013, 79 árið 2014, 47 árið eftir, 10 árið 2017 og 4 í fyrra.

Félagið Drómi hf., fyrrum eigna­safn SPRON og Frjálsa fast­eigna­bank­ans, átti mestar eignir árið 2012 sam­kvæmt svar­inu eða alls 126 eignir. Árið 2009 átti félagið 64 eignir, 76 árið á eftir, 125 árið 2012. Árið 2013 átti Drómi 72.

Í lok árs 2013 var hluti eigna og skulda Dróma fært til Hildu þegar samn­ingar náð­ust á milli ESÍ, Dróma og Arion banka. Um var að ræða fyr­ir­tækja­lán og fulln­ustu­eignir Dróma, meðal ann­ars það íbúð­ar­hús­næði sem félagið hafði gengið að á starfs­tíma sín­um. Samkvæmt svari dóms­mála­ráð­herra átti félagið eina eign árin 2014 og 2015.

Íbúðalánasjóður eigandi rúmlega 2300 fasteigna árið 2012

Jafn­framt má sjá í svari dóms­mála­ráð­herra að Íbúð­lána­sjóður átti í lok árs í fyrra 330 eignir. Fjöldi eigna í eigu sjóðs­ins náði hámarki árið 2012 eða alls 2318 fast­eignir. Þær hafa síðan verið seldar á síð­ustu árum og þeim því fækkað hratt á síð­ustu sex árum.

Eignum Íslands­banka hefur einnig fækkað til muna frá árinu þegar fjöldi skráðra fast­eigna hjá bank­anna 678. Í lok 2018 átti bank­inn 128 eignir, sam­kvæmt svari dóms­mála­ráð­herra.

Listann yfir fjölda fast­eigna fjár­mála­fyr­ir­ækj­anna má sjá í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár