Tveir nefndarmenn vildu meiri lækkun vaxta

Tveir með­limir pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans vildu lækka stýri­vexti um 0,5 pró­sentu­stig við síð­ustu vaxta­á­kvörðun fyrir tveimur vikum síðan, en vext­irnir voru lækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tveir með­limir pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans vildu lækka stýri­vexti um 0,5% og nefndi einn þeirra verð­hjöðnun utan fast­eigna­mark­aðar, verri afkomu útflutn­ings­fyr­ir­tækja og auk­innar sam­keppni á vöru­mark­aði því til rök­stuðn­ings. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð nefnd­ar­innar vegna síð­ustu vaxta­á­kvörð­unar.

Í fund­ar­gerð­inni kemur fram að traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið og hækkun gengis krón­unnar hefðu gert nefnd­inni mögu­legt að ná lög­boðnu mark­miði um verð­stöð­ug­leika með lægri vöxtum en ann­ars. Því hafi allir nefnd­ar­menn stutt til­lögu seðla­banka­stjóra um að lækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig.

Hins vegar hefðu tveir þeirra heldur kosið að lækka vexti um 0,5 pró­sentu­stig, en töldu sig engu að síður geta fall­ist á til­lög­una. Taldi einn nefnd­ar­maður raun­vextir útlána til aðila utan fast­eigna­mark­aðs væru of háir þar sem verð­hjöðnun um 0,8% hafi átt sér stað á tíma­bil­inu ef hús­næð­islið­ur­inn er tek­inn úr vísi­tölu neyslu­verðs.

Sömu­leiðis taldi sami nefnd­ar­maður að hátt gengi krón­unnar haml­aði eft­ir­spurn og minnk­aði smám saman eigið fé fyr­ir­tækja í útflutn­ingi, einkum þeirra sem skuld­uðu í krónum. Að því gefnu mætti líta á vaxta­lækkun sem mót­væg­is­að­gerð við háu og hækk­andi gengi krón­unnar.

Einnig benti nefnd­ar­mað­ur­inn á aukna sam­keppni á vöru­mark­aði á tíma­bil­inu, en hún fæli í sér meiri kaup­mátt neyt­enda og lækkun á því stigi atvinnu­leysis sem sam­ræm­ist stöðugri verð­bólgu.

Í pen­inga­stefnu­nefnd sitja þrír aðilar innan Seðla­bank­ans, en þeir eru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og Þórarinn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans.

Tveir nefnd­ar­menn eru utan­að­kom­andi, en þeir eru Gylfi Zoëga pró­fessor í HÍ, og Katrín Ólafs­dóttir lektor í HR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár