Allt íþróttastarf barna heimilt innan- og utandyra 4. maí

Öll starf­semi í leik- og grunn­skólum og íþrótta- og tóm­stunda­starfi fyrir börn verður aftur með eðli­legum hætti eftir 4. maí næst­kom­andi.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Öll starf­semi sem snýr að börnum á að verða aftur með eðli­legum hætti eftir 4. maí næst­kom­andi. Þetta á við um leik- og grunn­skóla, og íþrótta- og tóm­stunda­starf fyrir börn. Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í sam­tali við RÚV en fram kemur í frétt mið­ils­ins að hún hafi kynnt aug­lýs­ing­una um til­slökun á sam­komu­banni á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Áður hafi verið ákveðið að íþrótta­starf utandyra væri heim­ilt.

Svandís seg­ist í sam­tali við RÚV hafa viljað skýra betur reglur þar sem full­orðnir koma saman og hins vegar börn. „Með þess­ari breyt­ingu er verið að opna algjör­lega fyrir eðli­legt skóla­starf í grunn- og leik­skólum. Það þýðir að tveggja metra reglan og fjar­lægð milli fólks, það er ekki hægt að upp­fylla þegar börn eru ann­ars vegar. En það gildir um full­orðna sem eru með; kenn­ar­ana og svo fram­vegis. Allir þurfa að gæta að því hér eftir sem hingað til og þá 50 manna hámark í sama rými,“ segir ráð­herr­ann.

„Sama gildir þá um íþrótta og tóm­stunda­starf fyrir börn. Við erum þá að sjá þau meg­in­þátta­skil 4. maí að starf­semi sem snýst um börn að hún verði með eðli­legum hætti,“ segir hún.

[links]Fram kom á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann 14. apríl síð­ast­lið­inn að skipu­lagt íþrótta­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri gæti haf­ist að nýju, utandyra, en þó með þeim tak­mörk­unum að ekki mættu fleiri en 50 vera saman í hóp og halda skyldi tveggja metra fjar­lægð­inni eins og mögu­legt væri, sér­stak­lega hjá eldri börn­um.

Enn fremur kom fram á fund­inum í síð­ustu viku að annað skipu­lagt íþrótta­starf yrði heim­ilt utandyra, en þó áfram með miklum tak­mörk­un­um. Þannig mættu ekki fleiri en fjórir ein­stak­lingar æfa eða leika sam­an, snert­ingar yrðu óheim­ilar og halda skyldi tveggja metra fjar­lægð á milli fólks. Þá þyrfti að halda notkun á sam­eig­in­legum bún­aði í lág­marki, en ann­ars sótt­hreinsa bún­að­inn á milli notk­un­ar.

Samkvæmt RÚV á nú aftur á móti að heim­ila allt íþrótta­starf barna bæði innan- og utandyra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár