Innlend stjórn á öllum aðgerðum lykilatriði

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hélt erindi um end­ur­reisn íslensks efna­hags­lífs í London School of Economics.

Innlent „eign­ar­hald“ á stefnu, ákvörð­unum og aðgerðum var lyk­ill­inn að árangri þegar tek­ist var á við efna­hags­vand­ann sem Ísland stóð frammi fyrir haustið 2008.

Þetta er ein af megin nið­ur­stöðum í fyr­ir­lestri Lilju D. Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í London School of Economics í fyrra­kvöld. Í fyr­ir­lestr­inum fjall­aði Lilja um við­brögð Íslands við fjár­mála­á­fall­inu haustið 2008 og hvaða lær­dóm mætti draga af því hvernig staðið var að aðgerðum.

Fjöldi fólks sótti fyr­ir­lest­ur­inn, einkum fræði­menn og nem­endur skól­ans, að því er segir í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

„Það er mik­il­vægt að við segjum frá þeim aðgerðum sem við höfum ráð­ist í á und­an­förnum átta árum, til að rétta af efna­hag Íslands eftir fjár­mála­á­fallið 2008. Það er nauð­syn­legt að skipt­ast á skoð­unum við umheim­inn, rök­ræða kosti og galla þeirra leiða sem við höfum valið og draga lær­dóm af reynsl­unni,“ sagði Lilja.

Hún sagði að fyrstu aðgerðir Íslands hafa verið gríð­ar­lega mik­il­vægar, enda hefðu sumar þeirra verið óhugs­andi á seinni stigum flókna verk­efnis sem end­ur­reisnin var.

Eins og kunn­ugt er var lyk­il­að­gerðin neyð­ar­laga­setn­ing mánu­dag­inn 6. októ­ber 2008, sem gerði stjórn­völdum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu mögu­legt að end­ur­skipu­leggja banka­starf­sem­ina án þess að stöðva gang­inn í banka­kerf­inu. Rúmlega mán­uði síðar voru svo fjár­magns­höft sett á með lögum til að hindra stjórn­laust fall krón­unnar og koma á stöð­ug­leika á fjár­magns­mark­aði. „Ég tel t.d. ólík­legt að IMF hefði sam­þykkt allt það sem gert var, enda fóru íslenskir hags­munir þess tíma ekki endi­lega saman við hags­muni þeirra ríkja sem þar ráða för," segir Lilja. Hún segir aðkoma IMF á síð­ari stigum engu að síður hafa verið mik­il­væga og að hin mikla reynsla starfs­manna sjóðs­ins hafi nýst Íslandi vel. „Sem fyrr­ver­andi starfs­maður IMF veit ég hvers megn­ugur sjóð­ur­inn er. Í til­viki Íslands veitti hann góð ráð, gerði mik­il­vægar og gagn­legar úttektir og fylgdi málum fast eftir. Fyrir það erum við þakk­lát, en lausn­irnar sem hafa gef­ist eins vel og raun ber vitni, eru heima­smíð­aðar," sagði Lilja.

Lilja ræddi fjár­magns­höftin, sem hún sagði hafa skapað nauð­syn­legt skjól fyrir Ísland, að því er segir í til­kynn­ingu. Nú þegar losun haft­anna sé langt komin sé mik­il­vægt fyrir Seðla­bank­ann að geta gripið inn í gjald­eyr­is­markað ef greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins sé ógnað. „Fyrir lítið og opið hag­kerfi er annað óhugs­andi, sér­stak­lega í ljósi feng­innar reynslu,“ sagði Lilja, að því er segir í til­kynn­ingu.

Í fyr­ir­lestr­inum setti Lilja aðgerð­irnar í alþjóð­legt sam­hengi og fjall­aði m.a. um áhrif ytri aðstæðna, sem hafa um margt verið hag­stæðar. Hún benti á að mikil aukn­ing í ferða­þjón­ustu hafi skilað Íslandi miklu á sama tíma og inn­flutt verð­bólga hafi verið lág. Ekki væri hins vegar hægt að treysta á við­var­andi hag­felldar ytri aðstæður og því væri nauð­syn­legt fyrir stjórn­völd að fylgj­ast náið með þróun mála og grípa inn í með fag­legum hætti.

Aðspurð sagði utan­rík­is­ráð­herra, að Íslandi hefði reynst vel við að ráða sér sjálft við þessar aðstæður og ekki þurfa að bera stefnu sína eða ein­stakar aðgerðir undir yfir­þjóð­legt vald. „Sú staða skap­aði mikla ábyrgð­ar­til­finn­ingu inn­an­lands og eng­inn vænti þess að fá sendar lausnir utan úr heimi við erf­iðum vanda. Við getum enda verið stolt af því hvernig hefur tek­ist að vinna úr mál­unum og að réttar stefnu­mót­andi ákvarð­anir hafi verið teknar," sagði Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár