Sýn skilar miklum hagnaði í fyrsta skiptið í tvö ár

Eftir níu árs­fjórð­unga af tapi eða litlum hagn­aði skilar Sýn hf. loks­ins árfs­fjórð­ungs­upp­gjöri þar sem mik­ill hagn­aður er af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lagið Sýn hf. skil­aði 172 millj­óna króna hagn­aði á þriðja árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt nýbirtu upp­gjöri félags­ins í Kauphöll. Þetta er fyrsti árs­fjórð­ung­ur­inn sem félagið hefur skilað hagn­aði í tvö og hálft ár, ef frá er tal­inn 8 millj­óna króna hagn­aður á þriðja fjórð­ungi síð­asta árs.

Tekjur félags­ins námu 5,5 millj­örðum króna árs­fjórð­ungnum og höfðu þær hækkað um 471 milljón króna frá sama tíma­bili í fyrra. Ef litið er til fyrstu níu mán­aða árs­ins voru tekjur félags­ins 2,2 pró­sentum meiri en á sama tíma í fyrra. Þar var bæði tekju­aukn­ing af fjöl­miðla­hluta félags­ins og fjar­skipta­hluta hans, en inter­net­tekjur drag­ast þó saman, auk þess sem hægt hefur á tekju­vexti vöru­sölu félags­ins.

Far­síma­tekjur Sýnar jók­ust um rúman þriðj­ung á nýliðnum fjórð­ungi, en sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu skýrist sú aukn­ing af áfram­hald­andi góðum vexti tekjum af vörum sem tengdar eru inter­net hlut­anna (e. Internet of Things). Einnig hækk­uðu reiki­tekjur, auk þess sem fjöldi þeirra sem eru í far­síma­á­skrift hefur auk­ist.

Sýn bíður enn eftir nið­ur­stöðu eft­ir­lits­að­ila vegna sölu á eigin fjar­skipta­innviðum, en fyr­ir­tækið skrif­aði undir samn­ing fyrir slíkri sölu í lok mars í ár. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu mun hluti af væntum tekjum vegna söl­unnar renna til hlut­hafa í gegnum end­ur­kaup á hluta­bréfum, en þær yrðu einnig not­aðar til að lækka lán fyr­ir­tæk­is­ins og ráð­ast í nýfjár­fest­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár