Hagur útgerðarinnar vænkast um 10 milljarða vegna lækkunar olíuverðs

Friðrik Ind­riða­son skoð­aði hvernig verð­hrun á olíu hefur komið við rekstur útgerð­ar­innar í land­inu. Því minna sem útgerðin þarf að borga fyrir olí­una, því betra fyrir rekst­ur­inn.

Hrun á heims­mark­aðs­verði olíu hefur verið mikil búbót fyrir útgerð­ina á þessu ári miðað við árið í fyrra. Gróflega reiknað þarf útgerðin í dag að borga rúm­lega 10 millj­örðum kr. minna fyrir olí­una á árs­grund­velli miðað við árið í fyrra. Og þessi búbót mun halda áfram, alla­vega vel fram á næsta ár og jafn­vel lengur að mati sér­fræð­inga á olíu­mark­að­inum.

Olíu­notkun íslenska fiski­skipa­flot­ans er í kringum 164 kílótonn eða rúm­lega 184 millj­ónir lítra á ári. Þetta magn af olíu kost­aði útgerð­ina 17,1 millj­arð kr., á árs­grund­velli, miðað við verðið á Brent-olí­unni og gengi dollar­ans í fyrra­sumar. Í dag þarf útgerð­ina hins­vegar aðeins að borga 6,8 millj­arða kr. fyrir sama magn af olíu m.v. sömu for­sendur. Hér er gengið út frá að verðið á tunn­unni af Brent-olí­unni var 110 doll­arar í fyrra­sumar en er komið niður í 45 doll­ara í dag. Verðið var raunar komið niður í 45 doll­ara í ágúst s.l. Gengi dollar­ans stóð í 135 kr. í fyrra­sumar en er 132 kr. í dag.

Svipaður hagnaður

HB Grandi birti upp­gjör sitt fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins í vik­unni. Þar kemur fram að það sem ef er árinu nemur hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins 4,5 millj­örðum kr. Á sama tíma­bili í fyrra nam hagn­að­ur­inn 4,7 millj­örðum kr. Hagnaður er sum sé svip­aður milli ára þrátt fyrir mak­ríl­bann Rússa og á lækk­andi olíu­verð þar eflaust stóran hlut að máli. Fram kemur í yfir­liti yfir afkomu HB Granda á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins að tekju­tap vegna mak­ríl­banns­ins sé áætlað á bil­inu 1,4 til rúm­lega 2 millj­arða kr. Tekið er fram að erfitt sé að áætla þetta tap. Það er hins­vegar ljóst að lækk­andi olíu­verð m.a. bætir þetta tap að stórum hluta eins og sést á hagn­að­ar­töl­unum.

Óeðlilega eðlilegur markaður

„Óeðli­lega eðli­legur mark­aður“ var fyr­ir­sögnin á nýlegri úttekt tíma­rits­ins The Economist á olíu­mark­að­inum. Þar kemur fram að allt frá tímum John Rockerfeller og fyr­ir­tækis hans, Standard Oil, undir lok þar­síð­ustu aldar hafi mark­að­ur­inn verið allt annað en eðli­legur. Menn hafi ætíð reynt að hafa áhrif á hann sér til hags­bóta. Sér­stak­lega eftir að OPEC ríkin fóru að möndla sín í millum upp úr 1960 hvernig best væri að halda olíu­verð­inu sem hæstu. Þetta var m.a. gert með kvótum og sam­drætti í fram­leiðsl­unni ef olíu­verðið gaf eitt­hvað eftir.

Eftir að Banda­ríkja­menn hófu fram­leiðslu á leirgasi (fracking) í miklum mæli fyrir tæpum tveimur árum hefur olíu­mark­að­ur­inn verið rek­inn meira og minna á lög­málum fram­boðs og eft­ir­spurnar. Og fram­boðið er ærið þar sem Saudi Arabar hafa síðan hafnað öllum óskum ann­arra OPEC ríkja um að draga úr fram­leiðslu sinni til að hækka verðið. Raunar hafa þeir bætt í ef eitt­hvað er. Markmið Saudi Araba er að ganga af leirgas­iðn­að­inum dauðum í Banda­ríkj­unum og víðar. En fram kemur í The Economist að banda­rísku fram­leið­end­urnir hafi reynst útsjón­ar­samri en gert var ráð fyrir þannig að engan veg­inn sé hægt að sjá fyrir end­ann á þessu stríði.

Gera ráð fyrir lágu olíuverði áfram

Í dag er ekki hægt að finna neina sér­fræð­inga sem spá því að olíu­verðið nái þeim hæðum sem það var í s.l. sumar á næstu árum. Allavega ekki fram yfir árið 2020. Bjart­sýn­asta spá Alþjóða­orku­mála­stofn­un­ar­innar (IEA) segir að olíu­verðið muni hækka stöðugt fram til 2020 þegar það nái 80 doll­urum á tunn­una. Hins­vegar fylgir með hlið­ar­spá um að allt eins gæti olíu­verðið hald­ist um eða 50 doll­urum á tunn­una fram yfir 2020.

Hægt er að finna aðra sér­fræð­inga sem segja þessar spár IEA allt of bjart­sýnar og segja að allt eins gæti olíu­verðið hrapað niður í 25 doll­ara á tunn­una strax á næsta ári. Spár sem þessar ættu að hljóma sem ljúf tón­list í eyrum íslenskra útgerð­ar­manna.

Ástæðan fyrir lágu olíu­verði þessa stund­ina og næstu árin er mikið offram­boð sam­fara minnk­andi notkun. Fram­boðið mun senni­lega aukast eitt­hvað á næst­unni þegar Íran fær aftur aðgang að alþjóð­legum olíu­mörk­uðum. Hvað minnk­andi notkun varðar eru helstu þættir m.a. sam­dráttur í kín­verska efna­hags­kerf­inu og víðar, aukin áhersla margra ríkja á notkun sjálf­bærra orku­gjafa og véla­hönnun í bílum og öðrum far­ar­tækjum sem miðar að því að draga úr elds­neyt­is­notkun þeirra.

Sádí-Arabar reyna að klóra í bakkann

Framundan er des­em­berfundur OPEC ríkj­anna og ljóst er að þar munu koma fram miklar kröfur um að ríkin reyni hvað þau geti til að hífa olíu­verðið upp. Á vef­síð­unni Invest­ing.com kemur fram að Saudi Arabar hafi aðeins reynt að klóra í bakk­ann eftir síð­ustu helgi en ekki haft erindi sem erf­iði. Yfirvöld í þessu olíu­ríki gáfu út þá yfir­lýs­ingu s.l. mánu­dag að þau væru nú viljug til þess að vinna með OPEC og olíu­ríkjum utan sam­tak­anna um að draga úr fram­leiðslu til að hækka verðið. Þetta hafði þau áhrif að tunnan af Brent-olí­unni hækk­aði um dollar í stuttan tíma. En verðið féll strax aftur niður í 45 doll­ara á tunn­una, eða um tveimur klukku­tímum síðar, vegna þess að fjár­festar hafa áhyggjur af hinum miklu olíu­birgðum sem safn­ast hafa upp á síð­ustu mán­uðum vegna offram­boðs á mark­að­inum – birgða­söfnun sem eng­inn sér fyrir end­ann á í augna­blik­inu. Útgerðin, og raunar allir sem nota bensín og olíu á Íslandi, munu því njóta hins lága olíu­verð áfram á næstu árum eins og staðan er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár