Eins og að rétta samloku að svöngum einstaklingi en kippa henni til baka

Logi Ein­ars­son segir að lækkun á fram­lögum til aldr­aðra og öryrkja séu blaut tuska framan í hópa sem skildir voru eftir í góð­ær­inu. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi verið nið­ur­lægður af rík­is­stjórn­inni.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Hringbraut

„Þetta er ekk­ert ósvipað og labba fram hjá svöngum ein­stak­ling og réttir að honum sam­loku og svo þegar hann ætlar að teygja sig í hana, þá gripur þú hana aftur tekur einn fjórða af henni, hendi henni og labbar í burtu. Þetta er auð­vitað bara blaut tuska framan í þessa hópa sem hafa verið skildir eftir.“

[links]Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um þær breyt­ingar að lækka fram­lög til öryrkja um 1,1 millj­arð króna og að fram­lög til upp­bygg­ingar hjúkr­un­ar­heim­ila verði lækkuð um rúman millj­arð króna frá því sem kynnt var í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í sept­em­ber.

Hann var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, ásamt Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur for­manni Við­reisnar í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur var á Hring­braut í gær­kvöldi. Þar ræddu þau breyt­ingar á fjár­lög­um, umræðu um þriðja orku­pakk­ann, kjara­mál, gjald­mið­il­inn og breytta sam­setn­ingu stjórn­mál­anna, svo fátt eitt sé nefnt. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Logi segir að upp­haf­lega fjár­laga­frum­varpið hafi hvorki náð að tryggja efna­hags­legan né félags­legan stöð­ug­leika. „Núna sjáum við hvað for­sendur fjár­lag­anna voru veikar. Þær brustu og nýjar for­sendur lagðar fram. Við það þarf að stoppa upp í eitt­hvað gat. Þá er ráð­ist á þá hópa sem veik­astir standa fyrir, hafa ekki notið góð­ær­is­ins og kjara­aukn­ingar í upp­gang­inum.“

[adspot]Þor­gerður Katrín segir að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi verið nið­ur­lægður í mál­inu. „Það er nákvæm­lega þessi nið­ur­skurður til aldr­aðra og öryrkja og þegar upp er staðið nið­ur­læg­ingin sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar stendur núna frammi fyrir. Rík­is­stjórnin bein­línis tekur málið inn til sín[...] kemur með sínar breyt­ing­ar­til­lögur, meðal ann­ars að skera niður til aldr­aðra og öryrkja og skera niður ditt­inn og datt­inn ann­ars staðar. En skilur eftir fjár­laga­nefnd­ina með ekk­ert svig­rúm til að koma til móts við ákveðin sjón­ar­mið. Bæði fram­lög sem þarf að fara í, eins og bið biðlista SÁÁ og fleira.“

Hún segir að með þessu sé rík­is­stjórnin og meiri­hluti fjár­laga­nefndar strax farin að hverfa frá mark­miðum sem sett voru fram í fjár­laga­á­ætlun hennar. „Síðan á sama tíma og það er verið að skera niður til aldr­aðra og öryrkja þá er verið að keyra í gegnum þingið, bók­staf­lega keyra í gegnum þingið veiði­gjöldin og ég held að einmitt núna sé lag til þess að bíða svo­lítið með veiði­gjöldin og lækkun á auð­linda­gjöldum á útgerð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár