Vextir óverðtryggðra lána hækkað um allt að 1,25 prósentustig á árinu

Hjá bönkum lands­ins hafa fastir vextir óverð­tryggðra lána hækkað mest allra vaxta. Frá jan­úar 2018 hafa fastir vextir óverð­tryggðra lána hækkað um 1,25 pró­sentu­stig hjá Íslands­banka og eru nú hæstir vaxta eða 7,40 pró­sent í des­em­ber.

Vextir óverð­tryggðra lána hafa hækkað mest allra vaxta hjá bönkum lands­ins, Arion banka, Lands­bank­anum og Íslands­banka árið 2018. Vextir óverð­tryggðra íbúða­lána, bæði fastir og breyti­legir, eru nú komnir yfir 6 pró­sent hjá öllum bönk­unum. Mest hafa fastir vextir óverð­tryggðra lána hækkað en hjá Íslands­banka hækk­uðu þeir vextir um 20 pró­sent á árinu 2018 eða um 1,25 pró­sentu­stig og um 1 pró­sentu­stig hjá Arion banka. Fastir vextir óverð­tryggðra lána í Íslands­banka eru nú hæstu íbúða­lána­vextir láns­ins eða 7,40 pró­sent. Þetta má sjá í sam­an­tekt Aur­bjargar um vaxta­þróun íbúða­lána hjá bönk­unum árið 2018. Tekin voru saman grunn­lán íbúða­lána, óverð­tryggt, verð­tryggt, breyti­legir vextir og fastir vextir í 5 ár.

Vextir óverðtryggðra lána allt að 7,40 prósent

Í heild­ina hafa íbúða­lána­vextir hækkað mest hjá Arion Banka á árinu 2018 en vextir óverð­tryggðra lána, bæði fastir og breyti­legir, hækk­uðu um 1 pró­sentu­stig hjá bank­anum á árinu. Vextir verð­tryggðra lána hækk­uðu einnig hjá Arion banka á árinu, um 0,24 pró­sentu­stig og 0,17 pró­sentu­stig

Mest hafa fastir vextir á óverð­tryggðum lánum hækkað hjá Íslands­banka en þeir vextir hafa hækkað um 1,25 pró­sentu­stig frá jan­úar 2018 og voru 7,40 pró­sent þann 16. des­em­ber 2018. Fastir vextir óverð­tryggðra lána hjá Arion banka hækk­uðu um 1 pró­sentu­stig á árinu og fóru úr 5,95 pró­sentum í 6,95 pró­sent. Hjá Lands­bank­anum hækk­uðu sömu vextir um 0,75 pró­sentu­stig og eru nú 6,80 pró­sent.

Breytilegir vextir óverðtryggðra lána hafa hækkað mest hjá Arion banka eða um 1 prósentustig frá janúar 2018. Arion er með hæstu breytilegu vextina á óverðtryggðum lánum eða 6,60 prósent þann 16.desember 2018. Hjá Landsbankanum og Íslandsbanka hafa sömu vextir hækkað um 0,25 prósentustig og eru nú 6 prósent hjá báðum bönkunum.[adspot]

Vextir verðtryggðra lána ekki hækkað jafn mikið.

Vextir hafa hækkað minna þegar kemur að verð­tryggðum lánum hjá bönk­unum. Ef bornir eru saman vextir í jan­úar 2018 og vextir þann 16. des­em­ber 2018 má sjá að vextir verð­tryggðra lána hafa hækkað mest hjá Arion banka. Breyti­legir vextir verð­tryggðra lána hafa hækkað um 0,24 pró­sentu­stig hjá Arion Banka og er nú 3,89. Hjá hinum bönk­unum hafa sömu vextir aftur á móti lækkað eilítið, breyti­legir vextir verð­tryggðra lána hafa lækkað um 0,05 pró­sentu­stig hjá Íslands­banka og 0,1 pró­sentu­stig hjá Lands­bank­anum, eru nú 3,6 pró­sent og 3,55 pró­sent.

Verð­tryggð lán með föstum vöxtum hafa hækkað um 0,17 pró­sentu­stig frá jan­úar 2018 hjá Arion banka og vext­irnir komnir upp í 3,97 pró­sent. Fastir vextir verð­tryggðra lána hafa hins vegar lækkað eilítið frá jan­úar 2018 hjá Íslands­banka um 0,1 pró­sentu­stig og Lands­bank­anum um 0,2 pró­senti­stig.

Mikil aukning í óverðtryggðum íbúðalánum

[links]Í mán­að­ar­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í síð­ustu viku kom fram að mikil aukn­ing hefur verið í óverð­tryggðum lánum á nýliðnum haust­mán­uð­u­m. Í októ­ber­mán­uði námu ný íbúða­lán, að frá­dregnum umfram- og upp­greiðslum eldri lána, alls um 14,3 millj­örðum króna en þar af voru óverð­tryggð lán að fjár­hæð 13,4 millj­örðum króna.

Óverð­tryggð lán voru því um 94 pró­sent af hreinum nýjum íbúða­lánum fjár­mála­stofn­ana til heim­il­anna í októ­ber. Í heild­ina eru íbúða­lán heim­ila lands­ins um 79 pró­sent verð­tryggð á móti 21 pró­sent óverð­tryggðra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár