Stytting vinnuvikunnar hefur jákvæð áhrif

Styttri vinnu­vika hefur jákvæð áhrif á vinnu og dag­legt líf sam­kvæmt nið­ur­stöðum til­rauna­verk­efnis rík­is­ins og BSRB. Þá hefur stytt­ing vinnu­vik­unnar ekki nei­kvæð áhrif á skil­virkni og árangur á vinnu­stöðum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Styttri vinnu­vika dregur úr upp­lifun af kulnun sem og and­legum og lík­am­legum streitu­ein­kennum. Jafn­framt hefur stytt­ing vinnu­vik­unnar ekki nei­kvæð áhrif á skil­virkni og árangur á vinnu­stöðum og starfsandi mælist betri. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum til­rauna­verk­efnis rík­is­ins og BSRB um stytt­ingu vinnu­vik­unnar sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrir skömmu.

Jákvæð áhrif á vinnu og daglegt líf

Til­rauna­verk­efni rík­is­ins og BSRB um stytt­ingu vinnu­vik­unnar var sett af stað vorið 2017. Markmið verk­efn­is­ins var að kanna hvort stytt­ing vinnu­viku úr 40 stundum í 36 stundir á vinnu­stöðum hjá rík­inu leiddi til gagn­kvæms ávinn­ings starfs­manna og þeirra vinnu­staða sem urðu fyrir val­inu til að taka þátt í verk­efn­inu. Þrjár raf­rænar kann­anir voru lagðar fyrir starfs­menn þeirra vinnu­staða sem tóku þátt, en þeir eru Lög­reglan á Vest­fjörðum, Embætti rík­is­skatt­stjóra, Útlend­inga­stofnun og Þjóðskrá Íslands. Þær voru einnig lagðar fyrir starfs­menn fjög­urra ann­arra vinnu­staða með lík ein­kenni til við­mið­unar.

Í könn­un­unum þremur voru metin við­horf til ýmissa þátta sem tengj­ast upp­lifun og líðan í starfi. Kannað var hvernig þátt­tak­endum gekk að sam­ræma vinnu og einka­líf og spurt um vænt­ingar og reynslu af stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sýna jákvæða upp­lifun af stytt­ingu vinnu­vik­unnar og jákvæð áhrif á líðan í vinnu og dag­legu lífi.

Mest dró úr upplifun af kulnun hjá aldurshópnum 41 til 60 árs

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að kann­an­irnar sýndu mark­tækt meiri mun á við­horfum kvenna en karla á til­rauna­vinnu­stöð­unum eftir tólf mán­uði af stytt­ingu vinnu­tíma. Konur upp­lifðu mark­tækt meira jafn­vægi milli vinnu og einka­lífs sem og meiri stuðn­ing vinnu­fé­laga meðan nið­ur­stöður karla stóðu í stað. Nið­ur­stöður sýndu enn fremur að konur upp­lifðu mark­tækt minni hlut­verkarugl­ing og meiri starfs­á­nægju þegar ár var liðið af stytt­ingu vinnu­tíma í sam­an­burði við karl­ana. Hjá báðum kynjum dró hins vegar mark­tækt úr upp­lifun af álagi í starfi.

Þá voru jákvæðar vænt­ingar og upp­lifun af stytt­ingu vinnu­tíma hjá báðum kynjum og öllum ald­urs- og mennt­un­ar­hópum milli kann­ana. Enn fremur dró mark­tækt úr upp­lifun kuln­unar hjá báðum kynjum og öllum nema elsta ald­urs­hópnum en mest dró úr upp­lifun af kulnun í ald­urs­hópnum 41 til 60 ára.

Hefur ekki neikvæð áhrif á skilvirkni

Í verk­efn­inu voru einnig gerðar hag­rænar mæl­ingar þar sem horft er til veik­inda­fjar­vista, yfir­vinnu­stundir, skil­virkni og árangur. Samkvæmt skýrsl­unni er erf­ið­ara að full­yrða um nið­ur­stöður hag­rænna mæl­inga að tólf mán­uðum liðnum en út frá þeim mæl­ingum sem stuðst er við hefur stytt­ing vinnu­vik­unnar ekki nei­kvæð áhrif á árangur og skil­virkni.

Ásmundur Einar kynnti skýrsl­una á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrir skömmu og haft er eftir honum í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu að þetta sé áhuga­verð til­raun sem bendir til jákvæðrar útkomu. „Stytting vinnu­vik­unnar er víða til umræðu og á ég von á því að nið­ur­stöð­urnar gagn­ist við frek­ari skoðun,“ segir Ásmundur Einar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár