Ísland og Bandaríkin - hvað er orðið um hið sérstaka samband?

Und­an­farin miss­eri hafa birst fréttir af hertri afstöðu banda­rískra stjórn­valda vegna hval­veiða Íslend­inga, meðal ann­ars beinum til­mælum Baracks Obama for­seta til emb­ætt­is­manna um að forð­ast sam­skipti við Íslend­inga eins og kostur er. Þetta eru tals­verð umskipti frá fyrri tíð og verður hér gerð grein fyrir sam­skiptum ríkj­anna - þar sem hið sér­staka sam­band er skoðað - og hvort ráð­legt sé að reiða sig á vin­áttu í alþjóða­sam­skiptum.

Ísland og Banda­ríkin gerðu með sér varn­ar­samn­ing árið 1951, á grund­velli hins nýstofn­aða Norður-Atl­ants­hafs­banda­lags - NATO, til að tryggja varnir á svæð­inu og Íslandi þar með. Á móti lögðu Íslend­ingar til land­svæði svo Banda­ríkja­menn gætu rekið hér her­stöð og þá starf­semi sem henni fylgdi. Banda­ríkja­menn höfðu sem kunn­ugt er tekið við af Bretum sem her­námu Ísland árið 1940 og haft hér mikil umsvif á meðan seinni heim­styrj­öldin stóð yfir.

[quote font="0" align="right"]Árið 2006 urðu mikil straum­hvörf eftir að Banda­ríkja­menn lok­uðu Kefla­vík­ur­her­stöð­inni og þar með allri hern­að­ar­legri starf­semi hér á landi.[/quote]

Banda­ríkja­menn studdu stofnun lýð­veld­is­ins árið 1944 og voru fyrstir til að við­ur­kenna hið nýja lýð­veldi. Gætti mjög sterkra áhrifa Banda­ríkja­manna á stjórn­mál á Íslandi á eft­ir­stríðs­ár­unum, sem m.a. réð­ist af ríku­legu fram­lagi þeirra til ýmissa fram­kvæmda undir merkjum Marshall-áætl­un­ar­innar. Stefna og starf­semi í öryggis- og varn­ar­málum næstu ára­tug­ina byggð­ist því að miklu leyti á nánu sam­bandi við Banda­ríkin—því sem stundum var nefnt hið sér­staka sam­band.

Árið 2006 urðu mikil straum­hvörf eftir að Banda­ríkja­menn lok­uðu Kefla­vík­ur­her­stöð­inni og þar með allri hern­að­ar­legri starf­semi hér á landi. Sam­skipti ríkj­anna voru tíð­inda­lítil í kjöl­farið og hafa ýmsir haldið því fram að Banda­ríkja­menn hafi misst áhug­ann á Íslandi, enda í nógu að snú­ast í öðrum heims­hlutum. Nú þegar Barack Obama hefur tví­vegis boðað herta stefnu gagn­vart Íslend­ingum vegna hval­veiða er rök­rétt að spyrja hvað varð um hið sér­staka sam­band og hvert stefna ríkin í sam­skiptum sínum. Var kannski ekk­ert sér­stakt sam­band eftir allt saman?

[caption id="attachment_25620" align="alignnone" width="774"] Barack Obama for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA[/caption]

Banda­ríkja­menn höfðu í raun leit­ast við að draga úr umsvifum á Kefla­vík­ur­flug­velli alveg frá árinu 1961 þegar fyrst komu fram til­lögur um að fækka þar orr­ustu­þotum. Íslend­ingar börð­ust af krafti gegn þessum hug­myndum og höfðu erindi sem erf­iði lengi vel. Þó kom loks að því að Banda­ríkja­menn yfir­gáfu Kefla­vík­ur­stöð­ina með ein­hliða ákvörðun og skömmum fyr­ir­vara árið 2006. Því má þó ekki gleyma að enn er í gildi tví­hliða varn­ar­samn­ingur milli ríkj­anna tveggja. Það gæti hugs­an­lega nægt Banda­ríkja­mönnum og veitt aðgang að land­inu, ef og þegar á þyrftu að halda.

Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafði árið 2004 verið bjart­sýnn á betri lausn í mál­inu. Eftir fund með Georg W. Bush Banda­ríkja­for­seta sagði hann for­set­ann hafa fullan skiln­ing á stöðu Íslend­inga, auk þess sem Colin Powell þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra hafi lokið lofs­orði á Íslend­inga fyrir tryggð og trú­mennsku. Þarna fóru Íslensk stjórn­völd eftir hinum hefð­bundnu Íslensku leiðum sem höfðu gef­ist vel - hvar samið var á grund­velli hins sér­staka tví­hliða sam­bands - og treystu á vin­áttu ríkj­anna og meint per­sónu­tengsl æðstu ráða­manna.

Bandaríkin og hin sérstöku sambönd


Hið sér­staka sam­band er þekkt þegar rætt er um utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna og er þar vísað til þess hvernig sér­stakar aðstæður hafa þróað sam­skipti þeirra við ein­stök ríki, t.d. Ísrael, Bretland og Kanada. Þó er lítið að finna um hið sér­staka sam­band milli Banda­ríkj­anna og Íslands í fræði­legri umfjöllun um fyr­ir­bærið.

Vissu­lega getur sam­band verið byggt á tryggð vegna arf­leifðar og sögu, traustra sam­skipta og sam­eig­in­legra hug­sjóna. Til langs tíma, þegar á reynir, og stefnu­mótun og öryggi rík­is­ins eru ann­ars vegar, er nið­ur­staðan þó gjarnan að sam­band er byggt á hreinum og klárum hags­munum, stundum sam­eig­in­legum, fremur en ein­hvers konar vin­áttu. Það kemur heim og saman þegar við skoðum sam­skipti Íslend­inga og Banda­ríkj­anna nánar.

Ef rýnt er í bréf sem Colin Powell, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, skrif­aði Donald Rumsfeld, sem þá var varn­ar­mála­ráð­herra, um yfir­vof­andi brott­flutn­ing Banda­ríkja­hers frá Íslandi - sést þetta vel. Þar end­ur­spegl­ast hvernig áætl­anir vald­hafa stór­veldis snú­ast ekki um að tryggja hag banda­lags­rík­is­ins, nema stór­veldið hagn­ist á því sjálft. Sem sagt, á meðan Ísland var útvörður örygg­is­svæðis Banda­ríkj­anna mátti hafa af því hag. Þegar þær for­sendur breytt­ust var Ísland ekki lengur eft­ir­sóttur banda­maður.

[caption id="attachment_25621" align="alignnone" width="758"] Donald Rumsfeld, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA[/caption]

Meint vin­átta er því var­huga­verður grunnur að byggja á og dugar skammt þegar á reynir, sem krist­all­ast að ein­hverju leyti í við­brögðum hefð­bund­inna vina­þjóða Íslands í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008. Meðal þeirra sem leitað var til með beiðni um aðstoð var Banda­ríski seðla­bank­inn sem tók henni fálega. Þarna má hugs­an­lega sjá hversu lít­ils virði Ísland hefur verið í augum Banda­ríkja­manna, hvað sem vin­skap og tryggð leið. Þó ber að hafa í huga sjálf­stæði Banda­ríska seðla­bank­ans sem mat stöð­una svo að þetta væri efna­hags­vandi sem lyti að evr­ópsku banka­kerfi og pen­inga­vanda þess. Íslend­ingar ættu að leysa vand­ann í sam­vinnu við Evrópska seðla­bank­ann, sem hefði hags­muna að gæta.

[quote font="0" align="right"]Þó slíkar orðu­veit­ingar séu ein­ungis tákn­rænar þá einmitt vegna hins tákn­ræna eðlis þeirra kann þetta útspil For­set­ans að hafa haft nei­kvæð­ari áhrif á sam­skiptin en íslend­ingar almennt gera sér grein fyrir.[/quote]

Þáver­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna, Carol Van Voorst, sendi emb­ætt­is­er­indi til Washington og hvatti mjög ein­dregið til þess að Ísland fengi aðstoð og fyr­ir­greiðslu. Banda­ríkja­menn hefðu fjár­fest ríku­lega á Íslandi og þrátt fyrir tíma­bundnar þreng­ingar væri Ísland burð­ugt ríki og mik­il­vægur banda­maður sem óráð­legt væri að missa. Van Voorst hlaut reyndar undir lok fer­ils síns á Íslandi óvænta athygli þegar Forseti Íslands ákvað ein­hliða á síð­ustu stundu að hætta við að veita henni fálka­orðu þegar hún kvaddi Forseta form­lega á Bessa­stöðum. Þó slíkar orðu­veit­ingar séu ein­ungis tákn­rænar þá einmitt vegna hins tákn­ræna eðlis þeirra kann þetta útspil For­set­ans að hafa haft nei­kvæð­ari áhrif á sam­skiptin en íslend­ingar almennt gera sér grein fyrir.

Stefna Íslenskra stjórnvalda – Íslendingar í ónáð


Íslend­ingar fóru loks að átta sig á áhuga­leysi Banda­ríkja­manna en brott­för þeirra kall­aði á aukin fram­lög Íslands til NATO sam­starfs­ins sem stóð óhaggað. Fyrri rík­is­stjórn beindi sjónum frá Banda­ríkj­unum, reynt var að fela varn­ar­mál og varn­ar­sam­starf eftir megni, enda annar rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn bein­línis á móti NATO-aðild og varn­ar­sam­starfi við Banda­ríkin. Núver­andi stjórn­völd hafa snúið þessu við og vilja styrkja sam­bandið vestur um haf. Fer það saman við þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að draga Ísland út úr nán­ara Evr­ópu­sam­starfi og styrkja tví­hliða sam­starf í utan­rík­is­málum.

En hér er eðli­legt að spyrja hvort Banda­ríkja­menn hafi yfir höfuð nokkurn áhuga á því í ljósi fregna af síð­ustu sam­skiptum ríkj­anna vegna umdeildra hval­veiða Íslend­inga. Barack Obama sendi út afdrátt­ar­lausa yfir­lýs­ingu árið 2011 þar sem lagt var að Íslend­ingum að hætta hval­veiðum og gefið í skyn á yfir­veg­aðan hátt að harð­ari aðgerða væri að vænta. Í febr­úar á síðsta ári gaf inn­an­ríks­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Sally Jewell, síðan út form­lega yfir­lýs­ingu um að Íslend­ingar væru með hval­veiðum sínum að grafa undan Sátt­mál­anum um villtar teg­undir í útrým­ing­ar­hættu (CITES), sem bannar alþjóð­lega verslun með hvala­af­urðir.

Skömmu seinna voru tökin hert enn frekar, en þá til­kynnti Barack Obama inn­an­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að end­ur­skoða ætti allt tví­hliða sam­starf við Íslend­inga, vegna hval­veiða þeirra; Ráðu­neytið ætti að byggja sam­starfið á því að íslensk stjórn­völd breyti stefnu sinni í hval­veiði­málum um leið og þeir leit­uðu leiða til að draga úr við­skiptum með hvala­af­urðir; og hátt­settir emb­ætt­is­menn og ráð­herrar ættu að meta hvort heim­sóknir til Íslands væru við hæfi. Reyndar fólst í því bréfi ákveðin opnun varð­andi hval­veiðar sem núver­andi stjórn­völd ákváðu að hundsa.

Stuttu síðar flaug Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra til Washington á vor­fund Alþjóða­bank­anns, en not­aði tæki­færið til að hitta Chuck Hagel varn­ar­mála­ráð­herra. Þar voru rædd sam­skipti Íslands og Banda­ríkj­anna og kvað utan­rík­is­ráð­herra tengsl ríkj­anna standa traustum fótum - og hefur eftir Hagel að banda­rísk stjórn­völd þurfi að auka þekk­ingu sína á sviði norð­ur­slóða­sam­starfs, hvar Banda­ríkja­menn geti lært af Íslend­ingum.

Það er ljóst að Hagel lagði þarna lykkju á leið sína með því að hitta Gunnar Braga, þvert á til­skip­anir Obama, sem getur bent til ólíkrar afstöðu varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Það er þó holur hljómur í orðum Hagels því ekk­ert er að finna um sam­starf við Ísland í nýút­kominni norð­ur­slóða­stefnu Banda­ríkj­anna, á meðan vikið er að öðrum ríkjum á Norð­ur­löndum.

Nú snemma árs 2015 er umrædd stefna banda­rískra ráða­manna gagn­vart Íslandi stað­fest að ein­hverju leyti, en í minn­is­blaði sem John Kerry utan­rík­is­ráð­herra sendi Barack Obama fer hann yfir stöðu sam­skipta ríkj­anna í ljósi fyrri til­skip­anna. Þar kemur fram að utan­rík­is­ráðu­neytið haldi áfram að skoða hvort við hæfi sé að við­halda sam­skiptum við Íslend­inga. Enn fremur að eng­inn banda­rískur emb­ætt­is­maður hafi heim­sótt Ísland síðan í apríl á síð­asta ári—og að ekki hafi þótt við hæfi að bjóða Íslend­ingum á umfangs­mikla ráð­stefnu um mál­efni hafs­ins, sem haldin var í júní síð­ast­liðnum.

[caption id="attachment_25622" align="alignnone" width="788"] John Kerry, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA[/caption]

Hvort þessar aðgerðir eru til heima­brúks eins og kallað er, er erfitt að meta. Draga má þá ályktun að Íslensk stjórn­völd vilji leggja sitt af mörkum til að halda góðu sam­bandi við Banda­ríkin. Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að þessar aðgerðir banda­rískra stjórn­valda hafi áhrif á fyr­ir­ætl­anir Íslend­inga í hval­veiði­málum. Hugs­an­lega eru banda­rísk stjórn­völd ekki alveg sam­stíga enda á könnu varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að upp­fylla ákvæði varn­ar­samn­ings­ins og sam­komu­lags­ins á 2006. – en ríkin hafa haldið sínu striki þegar kemur að loft­rým­is­gæslu við Ísland sem banda­rískar flug­sveitir sinna um þessar mundir.

Breytt staða vegna auk­inna hern­að­ar­um­svifa Rússa – sem of snemmt er að dæma um hvernig muni þró­ast – kann að auka áhuga Banda­ríkja­manna á Íslandi. Í ljósi reynsl­unnar er þó var­huga­vert að treysta á slík tengsl sem hryggjar­stykki í utan­rík­is­málum eins og áður var. Eins og málin standa er óhætt að segja að sam­bandið við Banda­ríkin sé í ákveð­inni bið­stöðu - kannski var það aldrei neitt sér­stakt, eða hvað?


Hér hefur verið farið hratt yfir sögu en fullt til­efni er hins vegar til að greina nánar ýmsa þætta sam­starfs Íslands og Banda­ríkj­anna á sviði utan­ríkis-, öryggis- og varn­ar­mála, auk umhverfis- og við­skipta­mála. Verður það gert að ein­hverju marki í frek­ari pistlum hér á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár