Óútskýrt hvers vegna aðalfundi Íslandspósts var frestað

Íslands­póstur er í eigu rík­is­ins, en rekstur fyr­ir­tæk­is­ins hefur gengið erf­ið­lega að und­an­förnu.

Aðal­fundi Íslands­póst, dótt­ur­fé­lags rík­is­ins, var frestað að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en stefnt er að því að halda hlut­hafa­fund áður en aðal­fundur fer fram. Samtímis frest­ast birt­ing árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en heim­ildir blaðs­ins herma að launa­skrið hafi verið tölu­vert hjá stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2018, og að laun Ingi­mundar Sig­ur­páls­sonar, for­stjóra, hafi hækkað umtals­vert á sama tíma og fjár­hags­staða fyr­ir­tæk­is­ins versn­aði hratt.

Ekki hafa komið fram neinar skýr­ingar á frestun fund­ar­ins.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag, segir meðal ann­ars: „Árið 2017 hækk­aði stjórn ÍSP laun for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins um 25 pró­sent og í árs­byrjun 2018 greiddi félagið launa­upp­bót til starfs­manna sinna í ljósi góðrar afkomu. Á haust­mán­uðum var staðan hins vegar sú að eigið fé reynd­ist uppurið og veð­rými í fast­eignum sömu­leiðis. Því lok­aði við­skipta­banki þess, Lands­banki Íslands, fyrir frek­ari lán. Þess vegna leit­aði ÍSP á náðir rík­is­ins sem lán­aði félag­inu 500 millj­ónir
og veitti heim­ild til að lána allt að millj­arð til við­bótar á þessu ári þótt ekki væri búið að greina í hverju rekstr­ar­vand­inn liggur.“

Í stjórn Íslands­pósts eru Bjarni Jónsson, Eiríkur Haukur Hauksson, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, Halldór Gunn­ars­son og Thomas Möller.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár