Leikskólakennurum fækkað um 360 frá árinu 2013

Börnum af erlendum upp­runa hefur fjölgað mikið á skömmum tíma. Meira en helm­ingur þeirra sem starfar við upp­eldi og menntun er ófag­lærður.

Frá árinu 2013 hefur leik­skóla­kenn­urum fækkað um 360, en í fyrra voru um 1.600 starf­andi leik­skóla­kenn­arar í land­inu. Það er 28,1 pró­sent starfs­fólks á sviði upp­eldi og mennt­unar. Fækkun hefur verið sér­stak­lega mikil meðal fólks undir þrí­tugu.

Þetta kemur fram í nýrri sam­an­tekt Hagstofu Íslands, þar sem fjallað er um þróun mála hjá starfs­fólki í upp­eldis- og mennt­un­ar­störfum.

Í sam­an­tekt­inni segir að ástæðan fyrir þess­ari fækkun sé ekki ein­göngu rakin til þess að námið hafi verið lengt um tvö ár, þar sem fækk­unin er í öllum ald­urs­hópum undir 50 ára aldri. Leik­skóla­kenn­arar hafa því verið að færa sig yfir í önnur störf í stórum stíl.

Önnur menntun ráðandi

Starfs­fólk við upp­eldi og menntun barna, sem hefur lokið annarri upp­eld­is­menntun, eins og grunn­skóla­kenn­ara­námi, þroska­þjálfun, diplóma­námi í leik­skóla­fræðum eða leik­skóla­liða­námi var 1.068 tals­ins.

Ófaglært starfs­fólk var rúm­lega helm­ingur (53,2 pró­sent) starfs­fólks við upp­eldi og menntun leik­skóla­barna í des­em­ber 2018.

Alls störf­uðu 6.176 í leik­skólum í des­em­ber 2018 og hafði fjölgað um 158 (2,6 pró­sent) frá fyrra ári, þrátt fyrir að leik­skóla­börnum hafi fækkað á milli ára. Stöðu­gildum fjölg­aði um 2,1 pró­sent og voru 5.400.

Tæplega þúsund með pólsku að móðurmáli

Börn með erlent móð­ur­mál voru 2.572 í des­em­ber 2018, 13,7 pró­sent leik­skóla­barna, og hafa ekki áður verið fleiri börn með erlent móð­ur­mál í íslenskum leik­skólum.

Fjölg­unin er í beinu sam­hengi við fjölgun inn­flytj­enda hér á landi, en eru nú orðnir rúm­lega 47 þús­und, eftir mikla fjölgun á árunum 2013 til 2018.

Pólska er algeng­asta erlenda móð­ur­mál leik­skóla­barna eins og und­an­farin ár, og höfðu 985 börn pólsku að móð­ur­máli.

Næst flest börn hafa ensku að móð­ur­máli (265 börn) og því næst koma spænska (117 börn) og lit­háska (103 börn). Önnur erlend tungu­mál voru töluð af færri en 100 leik­skóla­börnum, sam­kvæmt sam­an­tekt Hagstofu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár