Fall WOW air gæti gefið tilefni til aðhaldsaðgerða í Reykjavík

Gjald­þrot WOW air get­ur haft mik­il og al­var­leg áhrif á rekst­ur Reykja­vík­ur­borg­ar að mati áhættu­mats­deild­ar fjár­mála­skrif­stofu borg­ar­inn­ar. Hún segir borg­ar­sjóð standa sterkan en að hann fari hratt lækk­andi ef verstu spár ganga eftir.

Gjaldþrot WOW air getur haft mjög mikil áhrif á rekstur Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í sviðsmynd áhættumatsdeildar fjármálaskrifstofu borgarinnar um efnahagsleg áhrif af falli WOW air. Þar segir að sjóðstaða borgarráðs sé sterk en fari hratt lækkandi en helst þó jákvæð í um eitt og hálft ár eftir að fall WOW skellur á. Samkvæmt áhættumatsdeildinni gæti þessi lækkandi sjóðstaða gefið tilefni til aðhaldsaðgerða borgarinnar auk endurskoðunar á fjárfestingaráætlun.

Gera ráð fyrir tals­verðum sam­drætti strax

Minnisblað áhættumatsdeildarinnar var lagt fram á borgarráðsfundi í gær. Í minnisblaðinu setur deildin upp sviðsmynd þar sem áhrifin af falli WOW air á helstu áhættuþætti á rekstur og sjóðsstreymi A-hluta fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar eru skoðuð. Sviðsmyndin tekur meðal annars mið af niðurstöðum greiningar starfshóps ríkisstjórnarinnar frá því í fyrra um fall WOW air og nýlegum greiningum Reykjavík Economics og Arion banka um sama mál.

Í sviðsmynd deildarinnar er miðað við eins konar versta mögulega tilvik greininganna og metin eru afleidd áhrif á rekstur Reykjavíkurborgar yfir 5 ára áætlunartímabilið 2019 til 2023. Gert er ráð fyrir tals­verður sam­drætti strax í ár og að verðbólga auk­ist fyrstu tvö árin miðað við for­send­ur fjár­hags­áætl­un­ar, en nálg­ist síðan mark­mið Seðlabanka Íslands seinni hluta fimm ára áætl­un­ar­tíma­bils­ins. Jafnframt er gert ráð fyr­ir að vinnu­magn minnki um 1,5 prósent fyrsta árið en taki svo að aukast að nýju og nálg­ist svo lang­tímameðaltal síðustu tvö árin.

Lægri arðgreiðslur frá OR

Þá segir í minnisblaðinu að talið sé að Orkuveita Reykjavíkur geti orðið fyrir miklum áhrifum af falli WOW air, bæði vegna hærri verðbólgu og gengisveikingar. OR er með mikið af lánum sem bera eigendaábyrgð og eru bæði í verðtryggðum krónum og erlendri mynt. „Því ber að hafa í huga að auk­in verðbólga og veik­ing geng­is hef­ur bein áhrif á skuld­bind­ingu Reykja­vík­ur­borg­ar vegna OR og af­borg­an­ir og vaxta­greiðslur fé­lags­ins af þeim skuld­bind­ing­um,“ seg­ir í minn­is­blaðinu. Því er gert ráð fyrir lægri arðgreiðslum frá OR fyrstu tvö árin af fimm ára fjármálaáætlun.

Í sviðsmyndinni segir að fækkun ferðamanna, aukið framboð á húsnæði og minnkandi eftirspurn vegna hækkandi húsnæðisverð mun leiða til þess að íbúðaverð hækki minna en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun Auk þess eru áhrif­in á verð á at­vinnu­hús­næði sögð verða mun meiri, enda hafi sam­drátt­ur í ferðaþjón­ustu bein áhrif á hót­el- og gist­i­rými, veit­ingastaði og versl­un­ar­hús­næði. Gert er ráð fyrir að verð á atvinnuhúsnæði lækki um um það bil 10 prósent á tveggja ára tímabili.

Rekstrarniðurstaða 3,3 milljörðum lægri

Samkvæmt sviðsmyndinni mun rekstrarniðurstaða versna strax á fyrsta ári en talið er að niðurstaða þessa árs verði um 3,3 milljörðum króna lægri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Enn fremur er talið sjóðstaðan falli hratt yfir tímabilið og í lokin verði handbært fé orðið 35 milljónum króna lægra en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Það er vegna minnkandi tekna af útsvari, fasteignagjöldum og sölu byggingarréttar og gatnagerðargjalda. Auk þess sem verð á íbúðarhúsnæði hækki hægar en í fjárhagsáætlun og verð á atvinnuhúsnæði lækki á tímabilinu.

Í minnisblaðinu er þó bent á að niðurstöður þeirra aðila sem lagðar eru til grundvallar í sviðsmynd deildarinnar séu háðar mikilli óvissu sem og mat fjármálaskrifstofu á afleiddum áhrifum af þeim á rekstur Reykjavíkurborgar. „Óvíst er hvort og hversu hratt aðrir aðilar muni koma inn á flugmarkað og fylla í skarð WOW air sem og hversu mikið aðrar atvinnugreinar geta tekið við því vinnuafli sem tapast í ferðaþjónustu. Að auki eru almennt taldar einhverjar líkur á því að Seðlabankinn grípi í taumana og lækki vexti og örvi þar með hagvöxt,“ segir að lokum í minnisblaðinu.

Mikilvægt að ferðamenn haldi áfram að koma

Á fundi borgarráðs í gær sögðu borg­ar­ráðsfull­trúar meirihlutans niðurstöðu áhættumatsdeildarinnar vera fóður í áherslur og viðbrögð borgarinnar í kjölfar gjaldþrotsins. Nær allir ferðamenn sem komi til Íslands komi til Reykjavíkur og meginþungi allra fyrirtækja í ferðaþjónustu geri út frá borginni. „Þess vegna hef­ur borg­in gríðarlega hags­muni að því að ferðamenn haldi áfram að koma til Íslands svo ferðamennska haldi áfram að blómstra,“ seg­ir í bókuninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár