Nauðungarsölum hefur fækkað mikið á undanförnum árum

Stökk var í nauð­ung­ar­sölum frá árinu 2012 til 2013 en þeim hefur nú fækkað mjög.

Nauð­ung­ar­sölum hefur fækkað úr 1008 árið 2013 í 69 árið 2018. Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Ólafi Ísleifs­syni, þing­mann Mið­flokks­ins, um nauð­ung­ar­sölur, fjár­nám og gjald­þrota­skipti.

Mikil aukn­ing í nauð­ung­ar­sölum átti sér stað frá árinu 2012 til 2013. Árið 2012 voru nauð­ung­ar­sölur alls níu tals­ins miðað við 1008 nauð­ung­ar­sölur árið 2013.

Árin 2014 til 2016 sveifl­að­ist fjöldi nauð­ung­ar­salna þónokkuð og stóð í 449 tals­ins árið 2014, 590 árið 2015 og 438 árið eftir. Fjöldinn lækk­aði tölu­vert árið 2017, þ.e. niður í 168 nauð­ung­ar­sölur. Það sem af er ári 2019 hafa 14 nauð­ung­ar­sölur átt sér stað.

Í svar­inu er varðar fjár­nám kemur fram að 8153 fjár­nám hjá ein­stak­lingum voru fram­kvæmd af Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2018 sam­an­borið við 10163 árið 2013.

Í svar­inu kemur einnig fram að bú 312 ein­stak­linga hafi verið tekin til gjald­þrota­skipta árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár