Lilja segir afsögn Sigríðar hafa verið rétta ákvörðun

Vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins ætlar ekki að taka end­an­lega afstöðu til þess hvort að það eigi að áfrýja nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrr en að búið sé að fram­kvæma og fara yfir hags­muna­mat.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Sigríði Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, að segja af sér emb­ætti í síð­ustu viku.

[links]„Það sem hún gerir, og er auð­vitað hennar ákvörðun, er að hún ákveður að stíga til hliðar til þess að skapa frið um það hvernig við förum í næstu skref. Ég tel að þetta hafi verið rétt hjá henni að gera þetta með þessum hætti.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Lilju í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Þar ræddi hún nýlega nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, rót­tækar breyt­ingar til að mæta kenn­ara­skorti, fjöl­miðla­frum­varpið sitt og margt fleira.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu um að það væri brot á mann­rétt­indum þeirra sem koma fyrir Lands­rétt að fjórir ólög­lega skip­aðir dóm­arar dæmi í málum þeirra hefur mik­illi spennu í íslensku sam­fé­lagi. Dóm­ar­arnir fjórir geta ekki dæmt og um tíma starf­aði Lands­réttur ekki.

Nú er hart tek­ist á um hvort hvort það eigi að reyna á að vísa nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins til efri deildar hans eða una nið­ur­stöð­unni og vinda sér í að eyða þeirri óvissu sem er til staðar.

Lilja sagði að fram undan væri hags­muna­mat á því hvað sé best að gera. Það mik­il­væg­asta væri að eyða þeirri óvissu sem sé til staðar um starf­semi Lands­réttar. „En það er þannig að það mun taka tíma.“

[adspot]Það þurfi að hennar mati að fara yfir málið og átta sig á því hverjir kost­irnir séu við að áfrýja mál­inu. Við það þurfi sam­vinnu dóm­stóla, lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmda­valds. „Að mínu mati er réttar­ör­yggi og allt sem teng­ist dóm­stólum lands­ins er svo stórt mál að við verðum í sam­ein­ingu að nálg­ast þetta mál með þessum hætti.“

Lilja seg­ist hafa verið þeirrar skoð­unar að skyn­sam­leg­ast væri að áfrýja nið­ur­stöð­unni, en hún eigi eftir að sjá hags­muna­matið og hvernig það komi út. „Ég vil að við gerum þetta þannig að þetta liggi allt fyrir.“

Hennar end­an­lega afstaða mun síðan liggja fyrir að því loknu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár