Skýrsla um tilkomu Íslands á gráa listann væntanleg

Dóms­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra ætla að kynna skýrslu um aðdrag­anda þess að Íslandi var sett á gráa lista FAFT og hvernig stjórn­völd ætli að koma land­inu af list­anum.

Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son,fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra stefna á að skila skýrslu um aðdrag­anda þess að Ísland lenti á gráa lista FATF og hvernig stjórn­völd ætla sér að koma Íslandi af honum. Sú skýrslu verður kynnt fyrir Alþingi. Ráð­herr­arnir komu fyrir efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í dag til að ræða um stöðu Íslands á gráum lista FATF. 

Erfitt að segja til um afleiðingarnar

[links]Tilkynnt var á föstu­dag­inn að Ísland hefði verið sett á gráan lista alþjóð­­legu sam­tak­ana Fin­ancial Act­­ion Task Force (FAT­F) vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Ísland bæt­ist á list­ann ásamt Mongólíu og Simbabve.

Bjarni sagði á fund­inum að erfitt væri að segja til um hvaða afleið­ingar vera Íslands á gráum lista FATF muni hafi. Hann segir að stjórn­völd hafi farið yfir þá óvissu­þætti sem þessu fylgi og fylgst með þeim, svo sem áhrif­um veru Íslands á list­an­um á gengi krón­unn­ar, lausa­fjár­stöðu­stöðu bank­anna, erlenda fjár­fest­ingu, láns­hæf­is­mat og gjald­eyr­is­mark­aði. Enn sem komið er hafi vera Íslands á gráa list­an­um lítil eða eng­in áhrif haft.[adspot]

Engin raunveruleg dæmi um peningaþvætti

Bjarni sagði jafn­framt að það væri spurn­ing hvort fylgdi meiri álits­hnekkir: Að vera með nokkur atriði útistand­andi sam­kvæmt úttekt FATF eða vera með raun­veru­leg pen­inga­þvætt­is­vanda­mál?

„Mik­il­vægt er að hafa það í huga að það hafa aldrei komið fram í þess­ari vinnu ásökun eða ábend­ing um að það væri raun­veru­legt vanda­mál til staðar eða dæmi um raun­veru­leg pen­inga­þvætt­is­mál sem íslensk stjórn­völd ættu að hafa áhyggjur af. Þetta held ég að menn ættu að hafa í hug þegar menn tala um orð­spors­á­hætt­una sem þessu fylgir,“ sagði Bjarni.

Jafn­framt sagði hann að sam­töl hans við aðra ráð­herra, svo sem á fundi nor­rænna fjár­mála­ráð­herra, hefðu held­ur dregið úr áhyggj­um hans af meint­um álits­hnekkjum. Marg­ir væru því sam­mála að Ísland ætti ekki heima á list­an­um.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og nefnd­ar­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, svar­aði þá Bjarna og sagði að það að engin dæmi væru um pen­inga­þvætt­is­mál hér á landi væri frekar vís­bend­ing um veik­leika eft­ir­lits­kerf­is­ins fremur en að hér á landi væri ekki slík mál að finna.

Skýrsla væntanleg

Að lokum til­kynnti Bjarni að hann og dóms­mála­ráð­herra hefðu rætt um að koma skýrslu fyrir Alþingi um þetta efni. Aðdrag­anda þess að Ísland lenti á gráa list­anum og hvernig stjórn­völd ætli sér að koma land­inu af list­anum.

Fimmta úttekt FATF mun fara fram árið 2023 og árétt­aði Áslaug Arna að með stýri­hópnum, sem skip­aður var árið 2018, væru stjórn­völd betur í stakk búin að taka við ábend­ingum frá FATF.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár