Kaninn kann þetta: Nýliðavalið í NFL 2018

Liðin í amer­íska fót­bolt­anum völdu sér nýja leik­menn um síð­ustu helgi. Venju sam­kvæmt var nokkuð um drama­tík og tveggja klúta sögur ein­stakra leik­manna.

Árlega er haldið draft (nýliða­val) í NFL deild­inni í amer­íska fót­bolt­anum. Þar gefst liðum deild­ar­innar tæki­færi til að bæta nýjum hæfi­leik­a­ríkum leik­mönnum við liðs­heild sína.

Draft day er kannski ekki alveg á pari við Ofur­skál­ina eða Superbowl í alþjóð­legum vin­sældum en samt sem áður afar vin­sæll hjá aðdá­endum íþrótt­ar­innar og kær­komin afþrey­ing meðan beðið er eftir að deildin hefj­ist að nýju að hausti.

NFL draftið hefur breyst í tím­anna rás, eftir því sem deildin hefur stækkað bæði að umfangi og vin­sældum. Nýjar reglur og við­mið eru iðu­lega tekin upp til að sjá til þess að valið sé sem sann­gjarn­ast og stuðli að heil­brigðri sam­keppni innan deild­ar­innar.

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

Hvert lið í deild­inni, alls 32 tals­ins, fá einn val­rétt í hverri umferð en umferð­irnar eru sjö í nýliða­val­inu. Liðið sem end­aði í neðsta sæti á síð­asta tíma­bili byrjar valið og þannig rað­ast þau þar til sig­ur­veg­ari Ofur­skálar­innar á síð­ata val­rétt.

Draftið er haldið að vori til á ári hverju, frá fimmtu­degi til laug­ar­dags. Aðeins ein umferð fer fram á fimmtu­dags­kvöldi og hefur hvert lið tíu mín­útur til að velja sinn leik­mann. Önnur og þriðja umferð fer fram á föstu­degi og umferðir fjögur til sjö á laug­ar­degi. Tíminn sem liðin hafa til að velja sér leik­mann minnkar frá hverri umferð til þeirrar næstu. Fari liðin fram yfir tím­ann geta þau áfram valið sér leik­mann, en eiga það á hættu liðin á eftir því í röð­inni velji leik­mann sem þau hafa auga­stað á.

Liðin geta skipt á val­rétti sín á milli, allt eftir því hversu mikla þörf þeir hafa á nýjum og sterkum leik­mönnum. Þó að lítið sjá­ist af samn­inga­við­ræðum milli lið­anna bak við tjöldin liggur fyrir að þessar örfáu mín­útur sem hvert lið hefur til umráða til að velja leik­menn­ina geta verið afar dramat­ískar, enda erfitt fyrir liðin að sjá fyrir hvaða leik­menn verða á lausu þegar kemur að þeim í röð­inni að velja.

Hvert lið er með full­trúa á staðnum þar sem valið fer fram sem er í stans­lausu sam­bandi við stjórn­endur lið­anna í höf­uð­stöðvum þeirra. Þegar stjórend­urnir hafa ákveðið hvað skal velja skrifa full­trú­arnir nafnið, leik­vall­ar­stöðu og skóla leik­manns­ins niður á blað og afhenda NFL starfs­manni valið. Um leið og starfs­mað­ur­inn fær blaðið í hend­urnar er valið orðið form­legt og klukkan fer að telja niður fyrir val næsta liðs. Strax í kjöl­farið eru aðrir látnir vita af val­inu sem að lokum og mjög fljót­lega eftir þetta er gert opin­bert af for­seta NFL deild­ar­innar.

Hverjir eiga möguleika á því að vera draftaðir eða valdir?

Til að eiga mögu­leika á því að kom­ast í hóp þeirra sem koma til greina í nýliða­val­inu þurfa leik­menn að hafa lokið grunn­skóla eða high school fyrir minnst þremur árum og upp­fylla akademísk og önnur skil­yrði, eins og til dæmis að hafa ekki þegið greiðslu fyrir íþrótta­iðkun sína.

Full­trúar deild­ar­innar kanna og stað­festa hvort leik­menn eigi séns á að koma til greina í val­inu, og skoðar þannig bak­grunn um það til 3.000 háskóla­leik­manna á ári hverju.

Valið er nokkuð ein­falt á að líta fyrir áhuga­menn. Að baki því eru þó ótrú­legar rann­sóknir lið­anna á getu nýlið­anna, umfangs­miklar próf­anir á kast­getu þeirra, styrk, snerpu og öllu því sem til þarf til að skara fram úr í NFL deild­inni. Að auki eru sér reglur um svo­kall­aða free agenta sem losna frá lið­unum.

Vel heppnað val á einum ein­stökum leik­manni getur og hefur breytt stefnu liða bæði þegar kemur að árangri þeirra og vin­sældum. Liðin gera sitt besta til að meta leik­menn til fram­tíðar og hvaða val sem er getur orðið að næstu NFL stór­stjörnu. Ein­stak­lingur sem val­inn er í sjöttu umferð gæti allt eins orðið að næsta Tom Brady.

Valið í ár - dramatísku hápunktarnir

Nýliða­valið í ár fór fram á heima­velli Kúrek­anna frá Dallas á AT&T Stadium í Texas. Forseti NFL deild­ar­innar Roger Goodell er ávallt kynnir og þrátt fyrir að það sé fastur liður eins og venju­lega að hlusta á alla áhorf­endur hvar sem í liði þeir standa í deild­inni sam­ein­ast í hatri á mann­inum, þá venst það aldrei að fylgj­ast með múgæs­ingnum sem fer af stað þegar hann gengur á svið í nýliða­val­inu á ári hverju. Þúsundir aðdá­enda íþrótt­ar­innar og ein­stakra liða öskra og baula á Goodell, sem er sam­tímis hatað­asti maður NFL íþrótt­ar­innar og sá valda­mesti.

Ár hvert eru ávallt nokkrum tugum leik­manna raðað á mis­mun­andi lista álits­gjafa og kunn­áttu­manna eftir getu, það er að segja þeir sem skora hæst í sínum stöðum og búist er við að verði þeir fyrstu til að vera valdir. Það á það til að vera bæði ein­stak­lega dramat­ískt og pín­legt þegar leik­menn sem búist er við að fari fljótt sitja eftir án liðs í gegnum val eftir val.

Oftast eru leik­menn­irnir við­staddir og fá afhenta treyju síns liðs um leið og þeir eru valdir. Stuðn­ings­menn hvers liðs fjöl­menna alltaf, sér­stak­lega á fimmtu­dags­kvöld­inu og því er mikið um dýrðir og lófa­klapp þegar bestu leik­menn­irnir eru valdir hver á fætur öðrum.

En sumt er merki­legra í draft­inu en annað fyrir ýmsar sakir.

Ryan Shazier: Don't call it a comeback!

Stærsta stund nýliða­vals­ins í ár var hreint ekki neinn þeirra ekki nýliða­val heldur ein­fald­lega einn þeirra ein­stak­linga sem kom upp á svið í val­inu.

Ryan Shazier, leik­maður Pitts­burg Steelers, slas­að­ist eft­ir­minni­lega illa í leik liðs­ins gegn Cincinnati Bengals í des­em­ber síð­ast­liðnum. Svo virt­ist sem Shazier gæti ekki hreyft fæt­urnar eftir tæk­lingu og var færður strax á spít­ala. Leik­mað­ur­inn hafði hlotið áverka á mænu og lam­ast fyrir neðan mitti. Hann gekkst síðar undir aðgerðir og hefur verið á bata­vegi en mun ekki spila á þess­ari leik­tíð.

Shazier mætti hins vegar gang­andi upp á svið í fyrstu umferð til að kynna val sinna manna í Steelers. Hann fór ekki hratt yfir né var hann stöð­ugur en gekk þó ákveðnum skrefum að með unn­ustu sína sér til halds og trausts að púlt­inu. Aðeins fjórum mán­uðum eftir meiðsli sem orsök­uðu mænu­skaða, krefj­andi aðgerðir sem end­uðu í hjóla­stól stóð Shazier uppi á sviði og kynnti þann leik­mann sem fyrstur bætt­ist við lið Pitts­burg Steelers, varn­ar­mað­ur­inn Terrell Edmunds. Áhorf­endur, eðli máls­ins sam­kvæmt, fögn­uðu honum ákaft og ekki var þurrt auga í salnum. Þeir eru ekki margir sem hafa trú á því að Shazier spili nokkurn tím­ann framar en hann seg­ist stefna ótrauður á end­ur­komu.

Shaquem Griffin: Hetjusagan

Seattle Seahawks völdu í fimmtu umferð tví­bu­r­ann og varn­ar­mann­inn Shaquem Griffin, sem ekki væri í frá­sögur fær­andi nema fyrir þær sakir að Shaquem er ein­hentur.

Shaquem missti vinstri hönd­ina þegar hann var fjög­urra ára gam­all. Í móð­ur­kviði flækt­ist vefur um hönd­ina sem gerði það að verkum að blóð­flæðið skert­ist. Fyrstu ár ævi hans ein­kennd­ust af gríð­ar­legum sárs­auka, sem meðal ann­ars urðu til þess að barn­ungur Griffin ætl­aði að skera af sér hönd­ina til að lina þján­ing­arnar. Fjögurra ára fékk hann nóg og var höndin fjar­lægð af skurð­læknum.

Seahawks hafði nælt sér í bróður hans, Shaquill, í þriðju umferð í nýliða­val­inu í fyrra. Tví­bura­bræð­urnir spil­uðu saman á skóla­styrk fyrir UCF háskól­ann í Flórída og gengu til liðs við skól­ann á þeim for­sendum að þeir vildu vera saman í liði. Tíma­bilið í fyrra, eftir að Shaquill hafði verið draft­aður í nýliða­val­inu en ekki Shaquem var því það fyrsta sem þeir eyddu ekki saman á vell­inum. Shaquem fór aftur til UCF og kláraði skóla­árið með háskóla­lið­inu án taps á leik­tíð­inni. Í pruf­unum sem NFL heldur fyrir nýlið­ana fyrir draftið, þar sem þeir sýna hvað í þeim býr með sprettum, lyft­ingum, köstum og öðru sem til þarf í sportið, sýndi Shaquem sínar bestu hliðar og vakti feiknar mikla athygli.

Shaquem hafði eytt bæði föstu­dags og laug­ar­dags­kvöld­inu í nýliða­val­inu á vall­ar­svæð­inu þar sem valið fór fram, gang­andi um á rauða tepp­inu og horf­andi á yfir 100 leik­menn verða fyrir val­inu hjá mis­mund­andi liðum, án þess að heyra eigið nafn lesið upp. Fjöl­skyldan ákvað því á síð­asta degi vals­ins að eyða kvöld­inu heima á hót­eli.

Ég get ekki andað!

Símtalið kom rétt eftir hádegi á laug­ar­dag. Seattle Seahawks, lið bróður hans, höfðu valið hann í fimmtu umferð, 141 val þessa drafts. Einu svörin sem Shaquem gat gefið verð­andi þjálf­ara sínum og og fram­kvæmda­stjóra Seahawks voru: „Ég get ekki andað!“

David Akers og Vince Young: Höfum gaman að þessu

David Akers er ekki nýliði sem var val­inn um síð­ustu helgi. Hann er fyrr­ver­andi spark­ari hjá Phila­delphia Eagles (sem unnu deild­ina í vor fyrir þá sem voru búnir að gleyma því, sem eru lík­leg­ast flestir) og tók að sér að kynna val liðs­ins í annarri umferð. Svona líka.

Akers nýtti tím­ann uppi á sviði í Dallas vel og náði öllum að óvörum að verða óvin­sælli og upp­skera meira baul og öskur frá Texas­búum heldur en Roger Goodell.

Hey Dallas, síð­ast þegar þið komust í Ofur­skál­ina voru þessir nýliðar ekki einu sinni fæddir!

„What’s up Dallas?,“ öskr­aði Akers og sagð­ist hafa heyrt í Dallas­búum í Phila­delp­hiu í fyrra og taldi upp hvaða titla Eagles hefði unnið á síð­asta tíma­bili. Hann tók svo til við að sá salti í sárin. „Hey Dallas, síð­ast þegar þið komust í Ofur­skál­ina voru þessir nýliðar ekki einu sinni fæddir!“

Akers kynnti síðan val sinna manna í Eagles sem völdu sókn­ar­mann­inn Dallas Goedert og gekk svo af svið­inu eftir að ljúka atriði sínu með góðu „Go Birds“!

Vince Young stal einnig sen­unni uppi á sviði, en það með nokkuð öðrum hætti en David Akers.

Young var gert að til­kynna val síns liðs, Tennessee Titans, í annarri umferð en liðið valdi varn­ar­mann­inn Harold Landry. Young var í meiri­háttar vand­ræðum með að bera fram hið ein­falda nafn Harold sem kom út eins og Honor eða Arnold. Twitter lét sitt ekki eftir liggja og hafði væg­ast sagt gaman að.

Hverjir unnu nýliðavalið?

Flestir sér­fræð­ingar virð­ast vera á einu máli um að Denver Broncos hafi komið mjög vel undan nýliða­val­inu. Mörg lið vant­aði leik­stjórn­anda sem gerði það að verkum að sá leik­maður sem tal­inn var bestur þeirra sem voru í boði, varn­ar­mað­ur­inn Bradley Chubb, stóð þeim til boða í fimmta vali í fyrstu umferð. Broncos náðu að bæta við sig nokkrum fleiri góðum leik­mönnum síðar í val­inu, sem nokkrir eiga mögu­leika á byrj­un­ar­liðs­sætum í vetur. Stjórn­endur Denver geta hið minnsta verið nokkuð sáttir við helg­ina.

Tampa Bay Buccaneers gerðu ef til vill engar glor­íur en það er ljóst eftir valið að varn­ar­lína liðs­ins verður ofboðs­lega erfið að eiga við fyrir and­stæð­inga þeirra í NFC deild­inni. Hinn lit­ríki stærð­ar­innar varn­ar­maður Vita Vea (Tevita Tuli’aki’ono Tulpu­lotu Mosese Va’hae Fehoko Faletau Vea), ásamt tveimur öðrum minni spá­mönnum í vörn­ina, ætti að styrkja nú þegar feiknar sterka vörn liðs­ins. Hvort það verði nóg skal ósagt látið.

Lið New York Giants hefur einnig verið nefnt sem lið sem gerði vel um helg­ina. Liðið átti annan val­rétt í fyrstu umferð og nældi sér þar í sókn­ar­mann­inn Saquon Barkley og að auki Will Hernandez en báðir voru þeir taldir meðal þeirra 15 bestu sem í boði voru. Báðir ættu að geta orðið byrj­un­ar­liðs­menn strax. Leik­menn­irnir bæt­ast í sókn­ar­línu sem inni­heldur nú þegar Odell Beckham, Sterling Shepard og Evan Engram, auk leik­stjórn­and­ans Eli Manning, verður erfið fyrir hvaða vörn sem er að takast á við.

Alls voru fimm leik­stjórendur í val­inu teknir í fyrstu umferð. Af fyrstu tíu nýlið­unum sem voru valdir voru fjórir leik­stjórn­endur. Cleveland Browns tóku Baker Mayfield frá Oklahoma í fyrsta vali fyrstu umferð­ar­innar. New York Giants tóku eins og áður sagði Saquon Barkley en í þriðja vali tóku grannar þeirra í New York Jets leik­stjórn­and­ann Sam Darnold og Cleveland bættu við sig bak­verð­inum Denzel Ward í fjórða vali. Leik­stjórn­and­inn Lamar Jackson var síðan val­inn af Baltimore Raven í síð­asta vali fyrstu umferðar.

Svo langt í að þetta byrji!

Áður en við vitum af verður grill- og ferða­sum­arið búið, börnin byrjuð aftur í skól­anum, trampólínið komið í bíl­skúr­inn, brjál­æðið um versl­un­ar­manna­helg­ina og á menn­ing­arnótt bless­un­ar­lega liðið hjá og rútínan hafin að nýju.

Þá verður loks­ins hægt að setj­ast niður á nota­legu haust­kvöldi, reyndar nótt á okkar tíma, opna Budlight, leyfa sér osta­snakk eftir mið­nætti án sam­visku­bits og horfa á upp­haf­s­leik næsta tíma­bils þann 7. sept­em­ber milli ríkj­andi meist­ara Phila­delphia Eagles og Atlanta Falcons í Phila­delphia í þess­ari íþrótt allra íþrótta.

Þangað til er hægt að fylgj­ast með æfinga­leikjum lið­anna á und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu en þeir leikir hefj­ast í byrjun ágúst.

Ef það er ekki nóg má benda á að þegar hefur verið opnað fyrir deil­ar­skrán­ingar í Fantasy!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár