Ótrúlegt ár Ed Sheeran

Ed Sheeran var nokkuð viss um að 2017 yrði hans ár, en hann hefur slegið hvert metið á fætur öðru með nýju plöt­unni sinni, Divide. Öll platan, 16 lög, er nú að finna á topp 20-list­anum í Bret­landi.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ed Sheeran átti von á því að nýja platan hans, ÷ (Divide), yrði vin­sæl. Í við­tali við Guardian þegar platan var enn óút­komin sagði hann að 2017 yrði árið hans. Þegar blaða­maður Guardian spurði hann hvernig honum myndi líða ef platan yrði ekki eins vin­sæl og sú síð­asta sagð­ist hann vera til í að veðja hverju sem er upp á að það yrði ekki til­fellið. „Næsta plata, ég lofa þér því, mun selj­ast minna, en þessi plata mun selj­ast meira. Ég held að ég muni ekki eiga ár eins og þetta aftur.“

Platan kom út fyrir viku, 3. mars. Þó Sheeran hafi verið nokkuð viss um vin­sæld­irnar átti ekki von á því sem gerð­ist næst. Nefni­lega því að öll sextán lögin á plöt­unni yrðu meðal 20 vin­sæl­ustu laga Bret­lands í einu. Hann á sextán lög af tutt­ugu á breska vin­sæld­ar­list­anum, þar af eru níu af tíu efstu lög­unum hans lög. Á Bill­bo­ard Twitter list­anum eru 13 lög frá honum, sem er met. Aldrei fyrr hefur lista­maður átt jafn mörg lög á list­anum í einu.

Hann hefur slegið fleiri met, og tveimur dögum eftir að platan kom út höfðu lögin fengið yfir einn millj­arð spil­ana á Youtube. Plötu hefur aldrei verið streymt eins oft á Spotify á einum degi og nýju plöt­unni hans Sheeran, tæp­lega 57 milljón hlust­anir voru á plöt­una á útgáfu­deg­inum einum saman. Metið fyrir flestar hlust­anir á eitt lag á Spotify var líka slegið. Yfir tíu milljón sinnum var hlustað á lagið Shape of You föstu­dag­inn 3. mars. 69 milljón hlust­anir á einn tón­list­ar­mann á einum degi var enn annað metið sem hann sló á Spotify þann dag­inn.

Og engin plata hefur selst eins vel á vínyl og Divide und­an­farin tutt­ugu ár. 13.500 ein­tök á vínyl seld­ust fyrstu vik­una, af 419 þús­und áþreif­an­legum ein­tökum. Löglega var plöt­unni hlaðið niður 672 þús­und sinnum, sem þýðir að enn eitt metið hefur verið slegið. Platan er sú plata eftir karl­kyns tón­list­ar­mann sem hefur selst hrað­ast, í sög­unni. Til sam­an­burðar var síð­asta plata David Bowie, Blackstar, sú plata sem hrað­ast seld­ist í fyrra. Hún seldi 146 þús­und ein­tök í fyrstu vik­unni.

Á ekkert í Adele...ennþá

Þrátt fyrir að allt útlit sé fyrir að eng­inn tón­list­ar­maður skáki Sheeran á þessu ári er annar Breti öruggur með flest af sínum tón­list­ar­legu heims­metum. Það er söng­konan Adele, sem sló heil­mikið af öðrum metum í fyrra, þegar hennar plata, 25, kom út eftir langa bið og mikla eft­ir­vænt­ingu. Adele hélt hins vegar plöt­unni sinni af streym­isveitum fyrst um sinn til að ýta undir sölu, þannig að hún á engin Spotify met eins og Sheeran.

Aftur á móti voru tæp­lega 3,4 millj­ónir ein­tök seld af plöt­unni 25 í Banda­ríkj­unum, sam­kvæmt mæl­ingum Nielsen Music, sem hefur mælt plötu­sölu frá árinu 1991 og tekið inn í mæl­ingar sínar streymi og sölu á ein­staka lögum. Ekki að ein­staka lög hafi skipt miklu máli hjá Adele, næstum því hver einn og ein­asti keypti plöt­una í heild sinni.

25 er fyrsta platan í sögu þess­ara mæl­inga til þess að selj­ast í yfir þremur millj­ónum ein­taka á einni viku. Áður en platan kom út hafði því verið velt upp í fjöl­miðlum hvort hún gæti mögu­lega jafnað sölu­metið, sem stráka­sveitin 'NSYNC átti þá. Þeir seldu 2,4 millj­ónir af No Strings Attached í vik­unni eftir að hún kom út árið 2000. Adele jafn­aði ekki bara metið heldur sló það svo ræki­lega að talið er ólík­legt að nokkur muni ná henni.

Adele er eina mann­eskjan sem hefur selt fleiri plötur en ég á síð­ustu tíu árum.

Og í Bret­landi var sömu sögu að segja. 800 þús­und ein­tök og gott betur seld­ust í fyrstu vik­unni þar, yfir 100 þús­undum meira en sölu­hæsta platan þar í landi fram að því. Fyrsta dag­inn seld­ust 300 þús­und ein­tök. Be Here Now með Oasis, hafði áður verið mest selda platan á einni viku, en hún seld­ist í 696 þús­und ein­tökum vik­una sem hún kom út árið 1997. Hún sló alls konar önnur met í öðrum löndum. Til að mynda setti hún sölu­met á Nýja-Sjálandi og sló þar út Susan Boyle, sem hafði átt metið þar í landi. 25 fór í fyrsta sæti á iTu­nes list­anum í 106 af 119 löndum þessa fyrstu viku og seld­ist þar í 900 þús­und ein­tökum.

En Ed Sheeran er alls ekki búinn að gef­ast upp fyrir sam­keppn­inni við Adele. Hann hefur sagt að hún sé hans helsti keppi­nautur. „Adele er eina mann­eskjan sem hefur selt fleiri plötur en ég á síð­ustu tíu árum. Hún er eina mann­eskjan sem ég þarf að selja fleiri plötur en gerði. Það er hel­víti mikið afrek af því að síð­asta platan hennar seld­ist í 20 milljón ein­tökum. En ef ég set hana ekki sem við­miðið þá er ég að selja mig of ódýrt,“ sagði hann við GQ áður en platan hans kom út. Hann er líka keppn­is­maður, og pass­aði vel að eng­inn annar tón­list­arrisi væri að gefa út plötu á sama tíma og hann. Eina mann­eskjan sem gæti skákað honum á árinu er góð vin­kona hans, Taylor Swift.

En þangað til þetta kemur í ljós ætlar hann á tón­leika­ferða­lag til að halda partí­inu gang­andi. Ekki nóg með það heldur til­kynnti hann að hann ætl­aði að setja saman stráka­sveit, sem hann ætlar að semja tón­list ofan í og láta fara með sér á tón­leika­ferða­lag. Hann lætur sér ekki nægja að semja eigin tón­list, og lög fyrir aðrar stór­stjörnur eins og Justin Bieber og the Weeknd, heldur ætlar hann nú að stjórna sinni eigin stráka­sveit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár