Áframhald á inngripum Seðlabankans

Seðla­banki Íslands hefur á und­an­förnum dögum verið að vinna gegn veik­ingu krón­unnar með inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði.

Áfram­hald var á inn­gripum Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði í dag, og greip hann þrí­vegis inn í við­skipti, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Á síð­ustu þremur við­skipta­dögum hefur hann verið iðinn við að grípa inn í við­skipti, með gjald­eyr­is­kaupum, til að vinna gegn veik­ingu krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum.

Meðal ástæðna fyrir þrýst­ingu á veik­ingu krón­unnar, er sala erlendra aðila á verð­bréfum og skulda­bréfum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Meðal þeirra erlendu aðila sem hefur verið að losa um stöður í fyrr­nefndum eigna­flokkum, er fyr­ir­tækið Eaton Vance Mana­gement.

Fjár­fest­ing­ar­sjóðir Eaton Vance áttu rík­is­skulda­bréf, lán, íslensk hluta­bréf og kröfur á íslensk félög fyrir sam­an­lagt lið­lega 67 millj­örðum króna í lok júlí­mán­aðar á þessu ári. ­Fyr­ir­tækið er umsvifa­mesti erlendi fjár­festir­inn hér á landi og er í hópi tutt­ugu stærstu hlut­hafa í fjöl­mörgum skráðum félög­um. Frá þessu var greint í Mark­að­inum

https://www.frettabladid.is/markadurinn/hatt-i-sjoetiu-milljara-fjarfesting-eaton-vance

, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í nóv­em­ber. Af þess­ari heild­ar­tölu voru um 30 millj­arðar í óverð­tryggðum skulda­bréfum.

Gengi krón­unnar hefur veikst nokkuð að und­an­förnu, en í dag veikt­ist krónan um 0,67 pró­sent gagn­vart evru og 0,87 pró­sent Banda­ríkja­dal, þrátt fyrir ítrekuð inn­grip seðla­bank­ans.

Evra kostar nú 136,5 krónur og Banda­ríkja­dalur tæp­lega 120 krónur.

Seðla­bank­inn hefur ekki upp­lýst um umfang inn­grip­anna, það er upp á hversu mikið þau voru í hvert skipti. Með inn­gripum á markað reynir bank­inn að koma meiri stöð­ug­leika á gjald­eyr­is­mark­aði, með það að mar­miði að vernda geng­is­stöð­ug­leika og stöð­ug­leika í hag­kerf­inu.

Verð­bólga hefur farið nokkuð hækk­andi að und­an­förnu, og mælist nú 3,7 pró­sent, en verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár