Tryggja þurfi sjálfstæði seðlabankans með lögum og gera til hans miklar kröfur

Nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands segir í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu að gera þurfi miklar kröfur til eigi að geta orðið seðla­banka­stjórar.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og nefnd­ar­maður í Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, segir í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag, að mik­il­vægt sé að end­ur­skoðuð lög um starf­semi Seðla­banka Íslands treysti sjálf­stæði hans í sessi.

Hann segir lögin þurfa að vera skýr hvað sjálf­stæðið varðar, og en að þau þurfi jafn­framt að gera kröfur til bank­ans sem lyk­il­stofn­unar í íslensku sam­fé­lagi. Vel geti komið til greina að seðla­banka­stjóri komi erlendis frá, en reynslan af erlendum nefnd­ar­mönnum í pen­inga­stefnu­nefnd hafi verið góð, að sögn Gylfa.

„Það er ein­föld ástæða fyrir því að seðla­bönkum er gefið sjálf­stæði. Ástæðan er sú að þannig er unnt að treysta því best að þeir tryggi lága verð­bólgu þegar til lengri tíma er litið þótt það kosti óvin­sælar aðgerðir til skamms tíma. Reynslan hefur sýnt að verð­bólga er lægst í þeim löndum þar sem seðla­bankar eru sjálf­stæð­astir. Stjórn­mála­menn sem þurfa stöðugt að hafa vin­sældir sínar í huga gætu frekar fallið í þá freist­ingu að kaupa sér vin­sældir til skamms tíma með vaxta­lækk­unum sem örv­uðu efna­hags­lífið þótt verð­bólga hækki þegar til lengri tíma er litið. Þess vegna væri þeim síður treyst til þess að við­halda lægri verð­bólgu.

Mikil við­brögð við 25 punkta vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í byrjun nóv­em­ber er skýrt dæmi þess hve erfitt væri fyrir stjórn­mála­menn að bera ábyrð á pen­inga­stefnu sem eðli máls sam­kvæmt krefst jafn oft vaxta­hækk­unar og vaxta­lækk­unar.

Seðla­banka Íslands var veitt sjálf­stæði með lögum árið 2001. Það er mik­il­vægt að í nýjum lögum sé slíkt sjálf­stæði tryggt en jafn­framt að hann beri ábyrgð á gerðum sínum. Hér eru nokkur sem mætti taka til greina til þess að tryggja slíkt sjálf­stæði:

Tryggja verður að seðla­banka­stjóri og aðstoð­ar­banka­stjórar hafi menntun og reynslu á sviði hag­fræði og fjár­mála. Á Íslandi eru gerðar strangar kröfur til hag­fræði­mennt­unar fram­halds­skóla­kenn­ara og verða a.m.k. sömu kröfur að vera gerðar til seðla­banka­stjóra.

En menntun á sviði fjár­mála og hag­fræði tryggir ekki ein og sér hæfi­leika til að taka far­sælar ákvarð­anir. Þess vegna er mik­il­vægt að setja reglur um hverjir geti setið í nefndum sem meta hæfi umsækj­enda: að þeir hafi líka a.m.k. sama bak­grunn og kraf­ist er af seðla­banka­stjóra og séu ekki tengdir umsækj­endum eða póli­tískum hags­munum. Æskilegt væri að fá erlenda sér­fræð­inga í slíkt nefnd­ar­starf.

Seðla­banka­stjóri Bret­lands er Kanada­maður og hefur reynst vel. Ekkert ætti að úti­loka að góður umsækj­andi sem er af erlendu bergi brot­inn geti sótt um starf seðla­banka­stjóra eða aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra. Reynslan af tveimur erlendum rík­is­borg­urum sem setið hafa í pen­inga­stefnu­nefnd síðan árið 2009 er góð.

Ráðn­inga­tími bæði seðla­banka­stjóra, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og nefnd­ar­manna pen­inga­stefnu­nefndar verður að vera nægi­lega langur til þess að þessir aðilar hugsi til langs tíma og þurfi sem minnst að huga að því hvort ráðn­ing þeirra verði lengd um annað tíma­bil.

Setja verður seðla­banka skýr mark­mið sem síðan er hægt að nota til þess að dæma frammi­stöðu hans. Slík mark­miða­setn­ing gerir einnig auð­veldar að spá fyrir um ákvarð­anir hans,“ segir í Gylfi meðal ann­ars í grein sinni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár