Vill skylda önnur sveitarfélög til að byggja félagslegar íbúðir með lagasetningu

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir að borgin standi fyrir 80-90 pró­sent af þeirri félags­legu hús­næð­is­upp­bygg­ingu sem sé yfir­stand­andi. Nágranna­sveit­ar­fé­lög sitji hjá. Hann vill setja lög til að skylda þau til þátt­töku.

„Ég hef sagt að við eigum að áskilja okkur rétt til þess að skylda sveit­ar­fé­lög til þess að hækka hlut­fall sitt af félags­legum íbúðum í eigu sveit­ar­fé­laga. Bara með lögum. Það verður að gera það með lögum ef það ger­ist ekki öðru­vísi.“

Þetta sagði Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í gær­kvöldi þegar hann var spurður út í stöðu félags­legs hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Mikill skortur er á félags­legu hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og biðlistar eftir slíku langir. Í lögum um hús­næð­is­mál og lögum um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga eru ekki til­greind tölu­leg við­mið um hversu mikið af félags­legu hús­næði sveit­ar­fé­lög skulu bjóða upp á. Sú staða leiðir til þess að sveit­ar­fé­lög innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins leggja mis­mikla áherslu á fram­boð félags­legra íbúða. Samkvæmt nýrri könnun Vara­sjóðs hús­næð­is­mála, sem birt var í nýrri skýrslu um stöðu og þróun hús­næð­is­mála sem kynnt var á nýaf­stöðnu hús­næð­is­þingi, eru til að mynda 18 sinnum fleiri félags­legar íbúðir miðað við höfða­tölu í Reykja­vík en eru í Garðabæ.

[adspot]Dagur segir að sér finn­ist það skipta miklu máli að það sé ekki bara Reykja­vík­ur­borg sem sé að leggja til lóðir eða sam­þykkja skipu­lag fyrir félags­legt hús­næði, heldur þurfi það að gilda um allt höf­uð­borg­ar­svæðið og landið allt. Þá sé hægt að leysa vand­ann tvö­falt hraðar að minnsta kosti.

[links]Í þætt­inum kom fram að Degi finn­ist yfir­stand­andi ástand ekki ganga lengur. „Reykja­vík býr um þriðj­ungur lands­manna. En borgin er að standa fyrir 80-90 pró­sent af þeirri félags­legu hús­næð­is­upp­bygg­ingu sem er í gangi. Við erum að taka langstærsta skerf af þessum nauð­syn­legu verk­efnum, og það eru allir sam­mála um að þessar áherslur séu nauð­syn­legar. Núna er búið að tala um þetta ansi lengi. Og ég er búinn að tala um þetta.“

Hann segir Reykja­vík einnig vera í algjörri for­ystu þegar kemur að sam­starfi við óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög og úthlutun lóða til slíkra. „Ég velti því fyrir mér, í tengslum við kjara­samn­inga, hvort það sé ekki hægt að ná ein­hverju stærra sam­komu­lagi um meiri aðkomu ann­arra, og aðkomu okkar, að því til fram­tíðar þannig að þau plön séu þá kláruð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár