Svívirt, myrt og gleymd börn í Kanada

Börn voru tekin frá foreldrum sínum til dvalar og menntunar í kaþólskum skólum í Kanada. Grafir þeirra og sögur eru nú að koma fram í dags­ljósið.

Vettvangur líkfundar
Vett­vangur lík­fundar Hér nærri Marieval Indian Res­idential School í Saskatchewan hafa fund­ist 750 ómerktar grafir. Mynd: GEOFF ROBINS / AFP

Fjölda­grafir á annað þúsund barna, sem fundist hafa við gamla heimavistar­skóla í Kanada undan­farnar vikur, varpa ljósi á skelfi­lega arfleifð sem aldrei var gerð upp. Börn kanadískra frum­byggja voru tekin frá þeim með skipulögðum hætti og vistuð við oft hörmulegar aðstæður þar sem menning þeirra var barin úr þeim. Síðustu stofnunum af þessu tagi var ekki lokað fyrr en 1996 og glæpir sem þar voru framdir eru enn að líta dagsins ljós. 

Kerfið var formlega kallað Canadian Indian Residential School System en í raun var um nauðungar­vistun að ræða. Því var komið á laggirnar undir lok 19. aldar með það að markmiði að útrýma menningu frum­byggja og aðlaga næstu kynslóðir þeirra að siðum hvíta mannsins til að skapa betri samfélags­þegna. Var það meðal annars gert með líkamlegu ofbeldi og öðrum þvingunum. Þau sem töluðu sitt eigið tungumál eða reyndu að virða forn trúar­brögð sín voru einangruð og pyntuð til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár