Vonast eftir frjálslyndri ríkisstjórn eftir næstu kosningar

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir segir að núver­andi rík­is­stjórn sé síð­asta vígi gamla flokka­kerf­is­ins. Skýrustu víg­lín­urnar á Alþingi í dag séu á milli frjáls­lyndis og íhalds­semi.

„Ég held að núver­andi rík­is­stjórn sé síð­asta vígi gamla flokka­kerf­is­ins.“

Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, um stöð­una í íslenskum stjórn­málum í dag og bætir við að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir, með Vinstri græna, Fram­sókn­ar­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn inn­an­borðs, hafi gert loka­til­raun til að halda hinu svo­kall­aða 4+1 kerfi lif­andi. „Að sýna lands­mönnum að stöð­ug­leik­inn kemur bara með þessu gamla gam­al­gróna og góða. Ég vona bara að tím­inn sanni að það sé kannski ekki æski­leg­ast að hafa svona rosa­lega íhalds­saman flokk á hægri vængnum og pínu íhalds­saman flokk á vinstri vængnum að reyna að vinna sama og halda að það verði ein­hver fram­þróun úr því.“

Hún var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Í þætt­inum ræðir Þór­hildur Sunna þann nýja póli­tíska veru­leika sem felst í því að kerfi með átta eða níu flokkum á stjórn­mála­svið­inu sé að festa sig í sessi, í stað þess að gamli fjór­flokk­ur­inn fékk ávallt saman um 90 pró­sent í kosn­ingum og stundum komst einn til við­bótar að. Hún segir að línur séu að markast innan hins nýja kerfis þar sem lík­ari flokkar starfi saman að ýmsum málum, líkt og hefð er fyrir á hinum Norð­ur­lönd­unum.

[adspot]Píratar séu orðnir nokkuð sjó­aðir í þessu enda flokk­ur­inn stofn­aður 2012 og hefur verið á þingi síðan 2013. Hann sé því elsti „nýi flokk­ur­inn“ á þingi í dag. „Við sjáum hvernig lín­urnar eru að skipt­ast í íhalds­sem­ina og frjáls­lyndið. Það eru skýr­ustu lín­urnar á þing­inu. Þingmenn sem styðja alþjóða­sam­starf. Styðja lýð­ræði, gagn­sæi og fag­leg vinnu­brögð. Og svo flokkar sem að eru mjög tor­tryggnir gagn­vart útlöndum, tala um sér­fræð­inga að sunnan og meina það líka gagn­vart alþjóða­stofn­unum sem hafa gríð­ar­lega mikið að bjóða okkur. Og finnst að stjórn­mála­menn eigi að skipta gæð­unum á milli sín. Hafi þetta, þótt þeir við­ur­kenni það kannski ekki ennþá, en hafi það virki­lega djúpt innra með sér „ég á þetta ég má þetta“ konsept gagn­vart rosa­lega mörgu.“

Aðspurð hvort að hún sjái fyrir sér að næstu rík­is­stjórnir muni teikn­ast upp eftir þessum línum segir Þór­hildur Sunna að flokkar með svip­aða sýn séu að minnsta kosti best til þess fallnir að vinna saman. „Ég vona að næsta rík­is­stjórn verði sam­sett af frjáls­lyndum flokkum sem vilja auka alþjóða­sam­starf, vilja vinna gegn loft­lags­á­hrifum, vilja efla jafn­rétti, lýð­ræði og gagn­sæi í stjórn­málum. Að það verði ekki þessi rosa­legi íhaldsás sem að við erum búin að vera að sjá í ýmsum málum und­an­farið sem haldi áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár