Fermetraverð nýbygginga 100 þúsund krónum hærra en annarra íbúða

Ásett fer­metra­verð nýbygg­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist nú um 600.000 krónur og hefur hækkað um 8 pró­sent á einu ári. Fer­metra­verð ann­arra íbúða er að með­al­tali um 100.000 krónum lægra.

Ásett verð nýbygg­inga hækkar nú hraðar en ásett verð ann­arra íbúða. Auglýst fer­metra­verð í nýbygg­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 8 pró­sent síð­ast­liðið ár sam­an­borið við 5 pró­sent hækkun á ásettu verði ann­arra íbúða. Ásett fer­metra­verð nýbygg­inga mælist nú 100.000 króna hærra en ann­ara íbúða og er fer­met­er­inn á um 600.000 krónur. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Nýjar íbúðir seljast í auknum mæli undir ásettu verði

Í nýrri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs segir að nýjar íbúðir selj­ast nú í auknum mæli undir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Tæplega helm­ingur allra seldra nýbygg­inga selst nú undir ásettu­verði sam­an­borið við um um 80 pró­sent eldri íbúða. Í jan­úar til mars í fyrra seld­ust að með­al­tali 33 pró­sent nýrra íbúða undir ásettu verði en fyrstu þrjá mán­uði þessa árs var það hlut­fall 48 pró­sent. Aðrar íbúðir en nýbygg­ingar hafa í gegnum tíð­ina verið tals­vert lík­legri til að selj­ast undir ásettu verði og það sem af er ári mælist það hlut­fall að með­al­tali 81 pró­sent. Á sama tíma­bili í fyrra var það hins vegar um 79 pró­sent.

Á sama tíma hefur ásett verð hækkað hraðar á nýbyggðum íbúðum en á öðrum innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í apríl síð­ast­liðnum var aug­lýst fer­metra­verð í nýbygg­ingum að með­al­tali um 8 pró­sent hærra en í apríl 2018 en í öðrum íbúðum hækk­aði aug­lýst með­al­fer­metra­verð um 5 pró­sent á sama tíma­bili.

Með­al­fer­metra­verð í nýbygg­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú um 18 pró­sent hærra en í öðrum íbúðum og það bil hefur almennt farið vax­andi frá því í ágúst í fyrra. Auglýst fer­metra­verð nýbygg­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist nú hátt í 600.000 krónur að með­al­tali á meðan ásett verð ann­arra íbúða þar er um 500.000 krónur á fer­metra.

Meðalsölutími nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu styttist

Þá hefur með­al­sölu­tími nýrra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu styst á síð­ustu mán­uðum, eða frá því í októ­ber í fyrra, á sama tíma og með­al­sölu­tími ann­arra íbúða hefur hækkað lít­il­lega. Með­al­sölu­tími nýrra íbúða sem seld­ust í mars­mán­uði var 148 dagar sam­an­borið við 184 daga í októ­ber. Með­al­sölu­tími ann­arra íbúða en nýbygg­inga hefur aftur á móti farið örlítið hækk­andi frá því í fyrra­sumar. Hann mæld­ist í mars­mán­uði 85 dagar en 71 dagur í októ­ber í fyrra, en í skýrsl­unni kemur fram að októ­ber­mæl­ingin er um 10 dögum undir með­al­tali tíma­bils­ins frá upp­hafi árs 2014.

Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur með­al­sölu­tími nýbygg­inga farið hækk­andi það sem af er ári en nokkurn veg­inn staðið í stað í til­felli ann­arra íbúða. Í mars­mán­uði tók að með­al­tali 197 daga eða ríf­lega hálft ár að selja þær nýbyggðu íbúðir sem seld­ust í þeim mán­uði sam­an­borið við rúma 4 mán­uði í októ­ber. Það sem af er ári hefur að með­al­tali tekið 128 daga að selja aðrar eignir en nýjar fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið sam­an­borið við 126 daga í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár