Mynd: Bára Huld Beck

Meiri líkur en minni á því að hægt verði að mynda miðjustjórn sem teygir sig til vinstri

Þrjár gerðir fjög­urra flokka stjórna sem inni­halda miðju- og vinstri­flokka mæl­ast með meiri líkur á að geta orðið til en sitj­andi rík­is­stjórn hefur á því að sitja áfram.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja; Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks mælist nú 45,5 pró­sent og hefur ekki mælst lægra frá því að kosn­inga­spáin var fyrst keyrð vegna kom­andi kosn­inga, í apríl síð­ast­liðnum. Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 7,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og veru­legt vafa­mál er hvort rík­is­stjórnin haldi. Líkurnar á því mæld­ust yfir 60 pró­sent í lok ágúst en mæl­ast nú 35 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni.

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBDBMDVVPSBVPSCDBMF
>=410.000.000.000.000.000.00
>=420.000.000.000.000.000.00
>=410.000.000.000.010.000.00
>=400.010.000.000.020.010.00
>=390.010.000.000.030.020.00
>=380.020.000.000.060.030.00
>=370.040.000.000.100.060.01
>=360.060.000.000.160.100.02
>=350.110.010.000.230.150.04
>=340.170.020.000.320.230.06
>=330.250.030.000.430.320.10
>=320.350.050.000.540.430.16
>=310.460.090.010.650.540.24
>=300.580.150.010.750.650.33
>=290.690.220.030.830.750.43
>=280.780.320.050.890.830.55
>=270.860.430.090.930.890.65
>=260.920.540.150.960.940.75
>=250.950.650.230.980.960.83
>=240.980.750.330.990.980.89
>=230.990.830.441.000.990.94
>=220.990.900.581.001.000.96

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ingum.

Hægt er að sjá nýj­ustu kosn­inga­spánna, sem er frá því í gær, hér að neðan.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 17. sept­em­ber (16,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 19,8 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (20,1 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (23,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 15 – 17. sept­em­ber (vægi 20,3 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Einungis eitt mynstur nær eitt pró­sent líkum, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Sú stjórn er þó póli­tískur ómögu­leiki þar sem Sam­fylk­ingin hefur úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk.

Nokkrar fjögurra flokka stjórnir mögulegar

Þrjár fjög­urra flokka stjórnir án Sjálf­stæð­is­flokks reikn­ast nú með meiri líkur á mögu­leika en sú þriggja flokka stjórn sem nú situr að völdum. Líkurnar á myndun fjög­urra flokka rík­is­stjórnar sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki, Vinstri grænum og Pírötum mæl­ast nú 54 pró­sent. Þær mæld­ust 33 pró­sent í ágúst.

Líkur á fjölda þing­sæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þing­sætaDVPSBCMJF
>=220.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.010.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.020.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.040.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.060.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.100.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.130.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.150.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.150.00.000.010.010.000.000.000.00
>=130.130.010.010.030.020.000.000.000.00
>=120.100.030.030.050.040.010.000.000.00
>=110.060.050.060.090.070.030.000.000.00
>=100.030.090.110.140.120.060.000.000.00
>=90.010.140.160.170.160.120.000.010.00
>=80.000.180.180.180.180.180.010.030.00
>=70.000.180.170.150.160.210.040.090.01
>=60.000.140.130.100.120.180.090.150.04
>=50.000.090.080.050.070.120.160.200.09
>=40.000.050.040.020.040.060.210.210.17
>=30.000.020.010.010.010.020.140.110.14
>=20.000.000.000.000.000.000.030.010.02
>=10.000.010.010.000.000.010.120.060.12
>=00.000.010.000.000.000.000.200.130.41

Líkur á miðju­stjórn þar sem Viðreisn tæki sæti Vinstri grænna myndi mæl­ast nú 45 pró­sent og lík­urnar á stjórn skipuð þeim flokkum sem stýra málum í Reykja­vík­ur­borg; Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Pírötum og Viðreisn, mælist með 43 pró­sent líkur á því að geta orðið.

Sjálfstæðisflokkurinn tapað mestu í september

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins með 21,6 pró­sent fylgi, en flokk­ur­inn hefur samt sem áður tapað fylgi í hverri ein­ungis kosn­inga­spá sem keyrð hefur verið frá byrjun mán­aðar og lækkað alls um 2,7 pró­sentu­stig.

Sam­fylk­ingin mælist næst stærst með 13 pró­sent fylgi og hefur bætt við sig 1,3 pró­sentu­stigi frá því að kosn­inga­bar­áttan hófst af alvöru um síð­ustu mán­aða­mót.

Píratar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru svo með jafn­mikið fylgi, 12,2 pró­sent, og Vinstri græn eru skammt undan með 11,7 pró­sent. Viðreisn mælist með ell­efu pró­sent slétt og Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 7,3 pró­sent. Í neðstu sæt­unum í deild þeirra flokka sem mæl­ast með mögu­leika á að ná inn sitja Mið­flokk­ur­inn með sex pró­sent og Flokkur fólks­ins með 4,7 pró­sent.

Sýnd­ar­kosn­ing­arnar sýna ​​að 41 pró­sent líkur á því að Flokkur fólks­ins komi ekki manni inn á þing, 20 pró­sent líkur á að Mið­flokk­ur­inn nái ekki manni inn en ein­ungis 13 pró­sent líkur á að Sós­í­alista­flokkur Íslands þurfi að bíta í það súra epli.

Til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði ekki inn 29 pró­sent í síð­asta mán­uði. Nú mæl­ast mestar líkur, alls 21 pró­sent, á því að sá flokkur nái inn fjórum þing­mönnum og 20 pró­sent líkur eru á því að þeir verði fimm.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár