Miðjuflokkar í lykilstöðu nokkrum dögum fyrir kosningar en Sjálfstæðisflokkur tapar enn

Leið­togaum­ræður á RÚV fóru fram 31. ágúst síð­ast­lið­inn og með þeim hófst kosn­inga­bar­áttan af alvöru. Frá fyrstu kosn­inga­spá sem keyrð var eftir þær og fram til dags­ins í dag hafa þrír flokkar tapað fylgi.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Vinstri græn og Píratar bæta við sig fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Fyrst­nefndi flokk­ur­inn fer úr 6,9 í 7,3 pró­sent eftir að hafa verið að dala frá síð­ustu mán­aða­mótum, þegar hann topp­aði í rúm­lega átta pró­sent fylgi. Haldi þetta fylgi sér í kosn­ing­unum verður Sós­í­alista­flokk­ur­inn sá flokkur sem tekur til sín mest nýtt fylgi um næstu helgi, þegar lands­menn ganga að kjör­borð­inu, en hann er í fram­boði til Alþingis í fyrsta sinn.

Vinstri græn hækka um 0,3 pró­sentu­stig og mæl­ast með 11,7 pró­sent fylgi, sem er þó enn rúm­lega 30 pró­sent undir kjör­fylgi flokks­ins.

Píratar mæl­ast nú með 12,2 pró­sent fylgi sem er það mesta sem þeir hafa mælst með í sept­em­ber­mán­uði. Þeir eru nú með jafn mikið fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og eru ásamt honum í þriðja til fjórða sæti yfir stærstu flokka lands­ins.

Þrír standa í stað

Sam­fylk­ingin stendur nán­ast í stað milli spáa og er enn að mæl­ast næst stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins með 13 pró­sent fylgi. Um tíma virt­ist flokk­ur­inn stefna í verri útkomu en 2017, þegar hann fékk 12,1 pró­sent atkvæða, en fylgið hefur auk­ist nokkuð eftir því sem leið á sept­em­ber. Nið­ur­staðan verður þó alltaf von­brigði fyrir flokk­inn miðað við hvar hann stóð í byrjun árs, þegar fylgið mæld­ist næstum 16 pró­sent. Þessi við­bót sem bæst hefur við síð­ustu daga gæti þó skipt máli þegar kemur að því að mynda rík­is­stjórn.

Mið­flokk­ur­inn er á sömu slóðum og hann hefur meira og minna verið frá því í lok ágúst með sex pró­sent fylgi og Flokkur fólks­ins mælist minnstur þeirra flokka sem eiga mögu­leika á að kom­ast inn á þing með 4,7 pró­sent stuðn­ing.

Sjálfstæðisflokkur hefur tapað 2,7 prósentustigum í september

Þrír flokkar tapa ein­hverju sem nemur milli spáa. Viðreisn tapar mest, 0,4 pró­sentu­stigum, og mælist með slétt ell­efu pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur áfram að síga og mælist nú með 21,6 pró­sent stuðn­ing. Fylgi þessa stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins hefur lækkað í hverri ein­ustu kosn­inga­spá sem keyrð hefur verið frá 3. sept­em­ber, en þá mæld­ist það 24,3 pró­sent. Sú spá var sú fyrsta sem Kjarninn birti eftir að fyrstu leið­togaum­ræður yfir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu fóru fram, en með þeim hófst hin eig­in­lega kosn­inga­bar­átta.

Á rúmum tveimur vikum hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn því tapað 2,7 pró­sentu­stigum af fylgi sem er meira en nokkur annar flokkur á því tíma­bili. Raunar hafa ein­ungis tveir aðrir flokkar lækkað í kosn­inga­spánni sem ein­hverju nemur frá 3. sept­em­ber. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur misst 0,8 pró­sentu­stig og Mið­flokk­ur­inn 0,5 pró­sentu­stig.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lækkar líka milli spáa, alls um 0,3 pró­sentu­stig, og mælist með 12,2 pró­sent fylgi. Hann er þó enn eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi nú þegar örfáir dagar eru til kosn­inga.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja; Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks mælist nú 45,5 pró­sent og hefur ekki mælst lægra frá því að kosn­inga­spáin var fyrst keyrð vegna kom­andi kosn­inga, í apríl síð­ast­liðnum. Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 7,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og minni líkur að rík­is­stjórnin haldi eins og stendur. Stjórnin þyrfti því að bæta fjórða flokknum við til að halda meiri­hluta að óbreyttu.

Miðjuflokkar í lykilstöðu

Sú fjög­urra flokka stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks sem er með mest fylgi er rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata og Vinstri grænna með sam­an­lagt 49,1 pró­sent fylgi. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra yrði minnsti flokk­ur­inn í slíku stjórn­ar­mynstri.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hlýtur að vera hugsi yfir stöðu síns flokks sem stefnir í að tapa 45 prósent af því fylgið sem flokkurinn fékk 2017.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hlýtur að vera hugsi yfir stöðu síns flokks sem stefnir í að tapa 45 pró­sent af því fylgið sem flokk­ur­inn fékk 2017.

Reykja­vík­ur­mód­elið er ekki langt undan með 47,9 pró­sent sam­eig­in­legan stuðn­ing, en það sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Pírötum, Vinstri grænum og Viðreisn.

Fimm flokka stjórn frá miðju til vinstri með Reykja­vík­ur­mód­els­flokk­unum og auk Fram­sóknar væri með 60 pró­sent stuðn­ing og stóran meiri­hluta á þingi.

Fjögurra flokka hægri stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Við­reisnar og Mið­flokks er einnig töl­fræði­lega mögu­leg og myndi vera með 50,8 pró­sent fylgi.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 17. sept­em­ber (16,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 19,8 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (20,1 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (23,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 15 – 17. sept­em­ber (vægi 20,3 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár