Fyrsta ferð WOW air frestast

End­ur­reist WOW air mun fara sína fyrstu ferð um miðjan októ­ber. Til stóð að hún myndi eiga sér stað í byrjun mán­að­ar­ins.

MiMichele Ball­ar­in
MiMichele Ball­ar­in Mynd: Bára Huld Beck

WOW air mun fara sína fyrstu ferð um miðjan októ­ber næst­kom­andi. Ferlið geng­ur hæg­ar en von­ast var til, meðal ann­ars vegna tafa á af­hend­ingu léns og fleiri hluta. Frá þessu greinir mbl.is.

Í frétt­inni kemur fram að stíf vinna við end­ur­reisn WOW air standi nú yfir beggja vegna Atl­antsála, en meðal þess sem unnið er að þessa dag­ana sé bók­un­ar­vél og vef­ur nýja fé­lags­ins.

Samkvæmt Við­skipta­Mogg­anum er stefnt að því að fljúga jóm­frú­arflug hins end­ur­reista fé­lags í síð­asta lagi um miðjan næsta mánuð. Upp­haf­lega átti að fljúga fyrsta flugið frá Dul­les-flug­velli í Washingt­on til Íslands í byrj­un októ­ber en ekki verður að því.

[links]Fram kom í fréttum í byrjun sept­em­ber að WOW air myndi hefja lág­far­gjalda­flug­rekstur til Banda­ríkj­anna og Evr­ópu í næsta mán­uði.

Stærsti hlut­hafi USA­er­ospace Associ­ates LLC, sem samið hefur um kaup á eignum úr þrota­búi WOW air, er Michele Roos­evelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ball­ar­in. Hún hafði áður gert til­raun, og náð samn­ingum um, að kaupa eignir WOW air.

­Á­ætl­anir nýrra eig­enda að WOW air vöru­merk­inu gera ráð fyrir vax­andi umsvifum þegar líður á kom­andi vetur og aukin áhersla verður lögð á þátt vöru­flutn­inga í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár