Þarf að aftengja flokkspólitík frá skipun í stöður innan dómsvaldsins

Pró­fessor í stjórn­mála­fræði bendir á að það sé per­sónupóli­tík í Lands­rétt­ar­mál­inu sem hafi áhrif á stjórn­ar­sam­starf þeirra flokka sem mynda rík­is­stjórn­ina.

„Póli­tískt held ég að þá eru skila­boðin þau að það fram­ferði sem menn höfðu tamið sér hérna fyrir nokkrum árum, og þeim ára­tugum sem liðu á undan, þar sem stjórn­mála­menn fóru bara fram í krafti valds síns og gerðu nokkurn veg­inn það sem þeim sýnd­ist með því að teygja skiln­ing lag­anna að ein­hverju leyti í þær áttir sem þeir sjálfir vildu helst túlka, að sú tíð er kannski lið­inn. Og að menn verði að átta sig á því að það sé ekki hægt að fara fram með sama hætti.“

Þetta er meðal þess sem Eiríkur Berg­mann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, sagði um dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu og afsögn Sig­ríðar Á. Andersen úr emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í þætt­inum. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neðan.

Eiríkur minnti á að það væri líka per­sónupóli­tík í mál­inu sem hafi áhrif á stjórn­ar­sam­starf þeirra flokka sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. „Í fyrri rík­is­stjórn þá er það Sigríður Andersen sem að tekur út úr hópi hæf­ustu helsta lög­fræði­lega ráð­gjafa Vinstri grænna, Ástráð Har­alds­son, sem hefur starfað með vinstri­hreyf­ing­unni í ára­tugi. Það er ekki bara að hann sé fag­lega og póli­tískt nátengdur Vinstri grænum heldur er hann tengdur for­ystu­fólki þar fjöl­skyldu­böndum. Á sama tíma og hann er tek­inn út þá er eig­in­kona núver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins færð úr neðri sætum og situr í dómnum í stað­inn fyrir Ástráð og hina.“

Þar á Eiríkur við Arnfríði Ein­ars­dóttur, einn þeirra fjög­urra umsækj­enda í Lands­rétt­inn sem hæf­is­nefndin mælti ekki með að skipa í rétt­inn en Sigríður ákvað samt að skipa. Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fleiri hafa bent á þessa stöðu. Í grein­ar­gerð sinni fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu, í mál­inu sem Ísland tap­aði síð­ast­lið­inn þriðju­dag, hélt Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður því meðal ann­ars fram að dóms­mála­ráð­herra hefði hand­valið umsækj­endur á þann lista sem hún lagði fyrir Alþingi til sam­þykktar. Það hafi hún gert á grund­velli vin­áttu og póli­tískra tengsla. Í mála­til­bún­aði Vil­hjálms var því haldið fram að Arn­fríður hafi verið skipuð sem hluti af hrossa­kaupum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Brynjar Níelsson gaf í stað­inn eftir odd­vita­sæti sitt í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum til Sigríðar Á. Andersen.

Eiríkur sagði að þessi staða geri sam­starfið innan rík­is­stjórn­ar­innar flókið. „Og er til að bæta ofan á flækju­stigið þar sem menn eru per­sónu­lega tengdir leik­end­unum sem að eru þarna á bak­við.“

Hann segir að þetta sýni að það þurfi að taka það alvar­legar að aftengja flokkspóli­tík frá skipun í stöður innan dóms­valds­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár