Ástæða til að fylgjast með bólumyndun á fasteignamarkaði

Hækkun á íbúð­ar­hús­næði hefur á síð­ustu mán­uðum farið tölu­vert fram úr kaup­mátt­ar­aukn­ingu, sem gefur ástæðu til að fylgj­ast með verð­bólu­myndun á fast­eigna­mark­aði. Íbúða­verð hefur hækkað um 16 pró­sent á einu ári.

Íbúða­verð á land­inu öllu hækk­aði um 1,8 pró­sent í febr­úar og er þetta sjö­undi mán­uð­ur­inn í röð þar sem verð­hækk­unin er yfir einu pró­senti milli mán­aða. Á þessum sjö mán­uðum hefur hús­næð­is­verð á Íslandi hækkað um 12,7 pró­sent. Þetta er dregið saman í grein­ingu Íslands­banka, sem er unnin úr tölum Hag­stof­unnar. Ástæða er til að hafa vak­andi auga fyrir því hvort verð­bóla kunni að vera að mynd­ast á íbúða­mark­aði um þessar mundir, segir bank­inn.

Íbúða­verð á lands­byggð­inni hækkar nú nokkuð hraðar en íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en hækkun á lands­byggð­inni var 2,4 pró­sent í febr­úar á meðan hún var 1,6 pró­sent á íbúðum í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 1,4 pró­sent í sér­býli. Þetta hefur verið þró­unin síð­ustu mán­uði, að íbúða­verð á lands­byggð­inni hækki umfram höf­uð­borg­ar­svæðið.

Þegar litið er yfir síð­ast­liðið ár nemur hækkun íbúða­verðs 16 pró­sentum, en slíkur hraði í hækk­unum hefur ekki mælst síðan í upp­hafi árs­ins 2008. Raunverð íbúð­ar­hús­næðis hefur á þessum tíma hækkað um 13,8 pró­sent, þar sem verð­bólga hefur verið lítil og nokkuð stöðug. Þetta er mesta raun­verðs­hækkun á íbúð­ar­hús­næði sem mælst hefur frá því í apríl 2006. Raunverð íbúða er nú orðið hátt í sögu­legu sam­hengi og nálægt því sem það fór hæst í síð­ustu upp­sveiflu, segir Íslands­banki.

Mikil hækkun launa, fjölgun starfa, vöxtur deili­hag­kerf­is­ins og lítið fram­boð nýbygg­inga eru helstu ástæð­urnar fyrir þess­ari hröðu hækkun íbúða­verðs að mati bank­ans. Laun hafi hækkað um tæp­lega níu pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, störfum fjölgað um 7,6 pró­sent á sama tíma og fjöldi ferða­manna auk­ist veru­lega.

Merki um þenslu og ástæða til að óttast verðbólu

Bankinn segir íbúða­mark­að­inn nú hafa mörg ein­kenni þenslu. Fyrir utan mikla hækkun á verði hafi heild­ar­fjöldi íbúða á sölu­skrá ekki verið minni eins langt aftur og gögn eru til um. 920 íbúðir voru aug­lýstar til sölu undir lok síð­asta árs, 35 pró­sentum færri en á sama tíma árið á undan. Þá hafa íbúðir aldrei selst eins hratt að með­al­tali og nú, en með­al­sölu­tími íbúða er 1,6 mán­uðir.

Þá bendir bank­inn á það að eftir að verð­þróun á íbúð­ar­hús­næði hafi fylgt launa­þró­un­inni nokkuð vel í þess­ari upp­sveiflu sé nú farið að skilja þarna á milli. Þetta hefur verið að ger­ast und­an­farna mán­uði, þar sem hægt hefur á kaup­mátt­ar­aukn­ingu á sama tíma og hækk­anir á hús­næð­is­verði hafa orðið hrað­ari. „Gefur það ástæðu til að hafa vak­andi auga fyrir því hvort verð­bóla kunni að vera að mynd­ast á íbúða­mark­aði um þessar mundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár