Í krafti fjöldans

Guðni Karl Harð­ar­son fjallar um þriðja orku­pakk­ann í aðsendri grein.

Hvernig á að skrifa þegar maður fer að vera vitni að því að æðstu ráða­menn ætla að svíkja þjóð­ina með því að fara gegn afger­andi vilja hennar og sam­þykkja Orku­pakka 3? Hvað getum við gert?

Ég get eig­in­lega ekki lýst því hvernig mér líður. Það er eig­in­lega búið að tæma ork­una úr lík­ama mínum. Hræði­legt að hugsa sér til þeirrar fram­tíð­ar­sýnar þar sem búið að selja orku lands­ins okkar til pen­inga­ber­serkja sem munu kaupa og selja sér orku eftir vild til þess eins að græða og græða bara meira. Og með algjöru til­lits­leysi til ann­ars fólks sem býr í þessu landi. Síðan endar þetta með sæstreng þar sem þeir sem hafa keypt sér ork­una geta selt hana úr landi til að önnur lönd í Evrópu geta fengið hana og notið. Sem svo verður til þess að raf­orku­verð til Íslend­inga mun stór­hækka.

Íslend­ingar eru mesta raf­orku­þjóð í heimi. Við fram­leiðum tvö­falt meiri raf­orku á hvern íbúa. Hagnaður hins opin­bera af raf­orku­fyr­ir­tækjum okkar er um 50 millj­arðar á ári og fer vax­andi. Við almenn­ingur í þessu landi eigum að njóta afrakstur þess en ekki þeir sem vilja kaupa, selja og græða. Þjóðin á raf­ork­una og alla mögu­leika að nýta okkur til okkar hags­bóta.

Ég hef fylgst með ýmsum greinum og umræðum um þetta mál. Þar sem við sem viljum verja orku lands­ins okkar eru kall­aðir ýmsum nöfnum. Meira að segja pró­fess­orar tala um að and­stæð­ingar séu aðal­lega bara full­veld­is­sinnar og öll þessi and­staða sé tengd því. Ég get hvergi séð neitt sem mælir með sam­þykki. Sama hvað skrifað hefur verið um málið. Flest okkar vitum að þegar orku­geir­inn hefur verið mark­aðsvæddur, mun hann fyrr eða síðar hafna í klóm fjár­festa.

Hvað sem er í mjög mik­il­vægum málum á þjóðin rétt á að fá að kjósa um í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Varðandi nefnda fyr­ir­vara þá munu þeir fara eftir því hvernig stjórn við fáum á Íslandi, lít­andi til baka þegar VG og Sam­fylk­ingin settu þjóð­ina í þá aðstöðu að fara í við­ræður um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið án þess að spyrja hana að því. Svona til sam­an­burðar. Það er ljóst eftir lestur þar til gerðs skjals á milli EB og EES að öll raf­orku­tengd mál eiga að renna frá EES yfir í EB. Þið sem hafið áhuga lesið endi­lega EES-við­bætir við Stjórn­ar­tíð­indi Evr­ópu­sam­bands­ins - TILSKIPUN EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sam­eig­in­legar reglur um innri mark­að­inn fyrir raf­orku og um nið­ur­fell­ingu til­skip­unar 2003/54/EB(*) ---- 2017/EES/31/46.

Það er eig­in­lega ótrú­legt til þess að hugsa að þing­menn skuli ætla sér að sam­þykkja Orku­pakka 3 þvert gegn vilja mik­ils meiri­hluta þjóð­ar­innar sem er and­stæð­ingur hans. Grund­vall­ar­at­riði er að það er þjóðin sjálf sem á ork­una. Og ófrá­víkj­an­legt að við getum notið alla orku lands­ins okkar sjálf, ein­göngu til eigin nota.

** Ágæti þing­maður þú sem ætlar þér að sam­þykkja Orku­pakka 3. Ég skora á þig að hugsa málið vand­lega. Hvað þú gerir þjóð þinni með því! Ég hvet þig/ykkur til að hugsa til almenn­ings í þessu landi með virð­ingu og trausti. Verið heið­ar­legir og leyfið fólki að kjósa um þetta mjög mik­il­væga mál. **

Til okkar hinna. Notum tím­ann vel meðan þingið er í fríi fram til 29. apríl til að úthugsa hvernig almenn­ingur á Íslandi getur komið í veg fyrir að þingið geti sam­þykkt Orku­pakka 3.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár