Mesti samdráttur í fjölda ferðamanna frá því að talningar hófust

Laun­þegum í atvinnu­greinum tengdri þjón­ustu fækkar um fimm pró­sent milli ára.

Fjöldi ferða­manna í maí 2019 er 24 pró­sentum færri miðað við í maí í fyrra. Þeir voru 111 þús­und nú eða 36 þús­und færri en í sama mán­uði í fyrra. Þetta er mesti sam­dráttur erlendra far­þega og erlendra ferða­manna frá því að taln­ing ferða­manna hófst, að því er kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Í apríl 2019 var hins vegar næst­mesti sam­dráttur í fjölda ferða­manna innan sama mán­aðar miðað við apríl 2018. Fækkunin á milli ára nam þá 19 pró­sentum.

Í apríl fækk­aði gistin­óttum á hót­elum og gisti­heim­ilum um 4 pró­sent, en um 18 pró­sent á Airbnb miðað við apríl 2018. Nýting hót­el­her­bergja lækk­aði einnig, eða um 5 pró­sent á milli ára.

Launþegum í ferðaþjónustu fækkar

Samkvæmt Hag­stof­unni fækkar laun­þegum í atvinnu­greinum tengdum ferða­þjón­ustu um fimm pró­sent milli ára, eða úr 27.300 í 25.900.

Af atvinnu­greinum tengdum ferða­þjón­ustu var mesta fækk­unin í far­þega­flutn­ingum með flugi þar sem fækk­unin nam 18 pró­sentum á milli ára. Fjöldi laun­þega fór þá úr 4.700 í 3.900.

Fækkar um rúmlega íbúafjölda landsins milli ára

Búast má við því að fækkun ferða­manna verði við­var­andi út þetta ár. Samkvæmt upp­færðri far­þeg­a­spá Isavia, sem birt var í síð­ustu viku, mun fjöldi erlendra far­þega sem koma til Íslands verða 1.927 þús­und á þessu ári. Það eru 388 þús­und færri far­þegar en komu hingað til lands í fyrra, sem var metár.

Til sam­an­burðar voru allir íbúar lands­ins sam­an­lagt 358.780 tals­ins í lok mars síð­ast­liðn­um. Því mun ferða­mönnum sem sækja Ísland heim fækka um rúm­lega mann­fjölda lands­ins milli áranna 2018 og 2019.

Þá mun skiptifar­þegum sem koma til Íslands fækka um 43 pró­sent milli ára, úr tæp­lega 3,9 millj­ónum í tæp­lega 2,2 millj­ón­ir.

Helsta ástæða þessa er gjald­þrot WOW air 28. mars síð­ast­lið­inn og óvissa vegna stöð­u ­Boeing MAX flug­véla Icelanda­ir, sem óvíst er hvenær muni kom­ast aftur í gagn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár