Drífa: Hækkanirnar hjá hinu opinbera hafa áhrif inn í kjaraviðræðurnar

Forseti ASÍ vill meiri aðkomu stjórn­valda að kjara­við­ræðum.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag að ýmsar hækk­anir á gjöldum sem taka gildi nú um ára­mót „tali beint inn í kjara­samn­ings­við­ræður“ fram undan.

[links]Framundan eru hækk­anir nú um ára­mót, bæði hjá rík­inu og sveita­fé­lögum, og segir Drífa að þetta hafi áhrif á kjör fólks. „Allar hækk­anir, breyt­ingar á gjald­skrám og hreyf­ingar hjá hinu opin­bera sem hafa áhrif á kjör fólks tala inn í kjara­samn­inga. Nú bera allir ábyrgð á því að ná settum mark­miðum, þ.e.a.s. að þyngja ekki róð­ur­inn heldur létta hann fyrir tekju­lægstu hópana. Fjár­mála­ráð­herra hefur lýst því yfir að það skuli stefnt að því að hækka laun þeirra lægst laun­uðu. Við verðum öll að róa í sömu átt,“ segir Drífa í við­tali við Morg­un­blaðið.

[adspot]Efling, VR og Verka­lýðs­fé­lag Akraness hafa nú þegar vísað kjara­deilu við Samtök atvinnu­lífs­ins og hefur fundur verið boð­aður í deil­unni 9. jan­úar.

Drífa segir í við­tali við Morg­un­blaðið að hún vilji sjá frek­ari aðkomu stjórn­valda að kjara­við­ræð­unum. Þetta eigi einkum við um hús­næð­is­mál og skatta­mál. „Rík­is­stjórnin hreykir sér af því að hafa hækkað per­sónu­af­slátt umfram verð­lag. Þetta eru rúm­lega fimm hund­ruð krónur og þær vega ekki rosa­lega þungt. Barna­bætur eru ekki orðnar það sama og þær voru fyrir tíu til fimmtán árum,“ segir Drífa í við­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár