Búin að finna kjallara undir botninum á siðferði í íslenskri pólitík

Þing­flokks­for­maður Pírata segir að mun­ur­inn á ofteknum akst­urs­greiðslu­málum þing­manna í Noregi og á Ísland sé að þar sem málið rann­sakað og póli­tísk ábyrgð tekin. Hér sé málið ekki rann­sakað og póli­tísk ábyrgð sé engin.

„Núna upp­lifi ég það að það hefur tek­ist ein­hvern veg­inn að finna kjall­ara undir botn­inum á sið­ferði í íslenskri póli­tík þar sem það þykir ekki sið­legt að benda á skort á rann­sókn á grun­sam­legu athæfi og krefj­ast hennar. Að það sé ekki smart.“

Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, um þá nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis að hún hafi gerst brot­leg við siða­reglur með því að segja að rök­studdur grunur væri um að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefði dregið að sér fé.

Hún var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Þór­hildur Sunna bendir á að erlendis sé það refsi­verður verkn­aður að svíkja út opin­bert fé. „Það er talið refsi­vert og erlendis er það rann­sakað. Tökum nýlegt dæmi um hana Heke Haukeland Liadal þar sem norska þingið hefur óskað eftir því að lög­reglan rann­saki meint fjár­svik. Við rann­sókn þings­ins á þeim greiðslum sem komu til hennar kom í ljós að hún gat ekki gert grein fyrir akstri 3.806 kíló­metra. Hún fékk ein­hverjar 200 þús­und krónur of mikið greiddar. Þetta hefur verið rann­sakað og hún hefur nú verið látin stíga til hliðar.“

[adspot]Í máli Ásmundar liggi hins vegar fyrir að hann hafi, tíu dögum fyrir sjón­varps­þátt­inn þar sem Þór­hildur Sunna lét ummælin falla, við­ur­kennt, eftir að gengið hafi verið á hann, að hafa þegið greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem fylgdi upp­tökum á sjón­varps­þætti ÍNN sem snérist um Ásmund sjálfan. Ásmundur end­ur­greiddi þann kostnað, alls 178 þús­und krónur í febr­úar 2018 eftir að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­fólki ÍNN“.

Þór­hildur Sunna segir að um sama verknað sé að ræða, hjá Ásmundi og Heke Haukeland Liadal. Og ef sá verkn­aður sann­ast þá sé hann refsi­verður. „Erlendis er hann rann­sak­aður og það er tekin póli­tísk ábyrgð. Hér heima er hann ekki rann­sak­aður og það er ekki tekin póli­tísk ábyrgð. Þú sérð það að for­sætis­nefnd vís­aði frá ósk um það að rann­saka akst­urs­greiðsl­urnar til hans. Ég hef verið að benda á að það sé eðli­legt að rann­saka þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár