Macron nýr forseti Frakklands

Allt bendir til stór­sig­urs Emmanu­els Macron í frönsku for­seta­kosn­ing­unum.

Emmanuel Macron er nýr forseti Frakklands.
Emmanuel Macron er nýr for­seti Frakk­lands. Mynd: EPA

Emmanuel Macron er nýr for­seti Frakk­lands og allt bendir til þess að hann hafi unnið stór­sigur í seinni umferð frönsku for­seta­kosn­ing­unum, sem fóru fram í dag. Útgöngu­spár benda til þess að hann hafi fengið 65,5 pró­sent atkvæða. Það er meira en kann­anir höfðu bent til.

Macron verður yngsti for­seti í sögu Frakk­lands. Þúsundir stuðn­ings­manna hans eru sam­an­komnir við Louvre safnið í París.

Marine Le Pen fékk 34,5 pró­sent atkvæða sam­kvæmt útgöngu­spá. Hún hefur þegar við­ur­kennt ósigur sinn og ávarpað stuðn­ings­menn sína. Hún sagði flokk sinn vera orð­inn stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokk­inn. Hún þakk­aði fyrir stuðn­ing­inn við sig, og sagði stuðn­ings­menn sína hug­rakka. Frakkar hefðu valið að halda áfram á sömu braut, valið hefði staðið milli þjóð­ern­is­sinna og alþjóða­sinna.

Le Pen og Þjóð­fylk­ingin eru ekki af baki dottin, og munu nota árang­ur­inn í for­seta­kosn­ing­unum í kom­andi þing­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár